Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Side 5
Almennt útboð á hlutabréfum í Skeljungi hf.
hefst kl. 12.00 mánudaginn 28. nóvember og lýkur kl. 16.00 miðvikudaginn 30. nóvember.
Útboð á 23,5–31,5%
Útboðið tekur til 493.401.798 hluta eða 23,5% í félaginu í eigu SF IV slhf. og nemur söluandvirði þeirra
að lágmarki 3.010 milljónum króna. Arion banki hf. og SÍA II slhf. áskilja sér rétt til að stækka útboðið í
allt að 661.368.368 hluti (31,5%) og er söluandvirði þeirra að lágmarki 4.034 milljónir króna. Markmið
útboðsins er meðal annars að það geri félaginu kleift að uppfylla skilyrði Nasdaq Iceland um dreifingu
hlutabréfa sem tekin eru til viðskipta á Aðalmarkaði, að hlutirnir verði seldir á sem hagstæðustu verði
og að félagið verði ákjósanlegur fjárfestingarkostur á eftirmarkaði.
Tekið verður við áskriftum rafrænt á vef Arion banka, www.arionbanki.is
Tvær áskriftarleiðir eða tilboðsbækur eru í boði en endanleg ákvörðun um stærð tilboðsbóka mun taka
mið af eftirspurn í útboðinu, bæði hvað varðar verð og magn.
Meginregla við úthlutun verður að taka þeim áskriftum sem berast á hæsta gengi. Gert er ráð fyrir að
niðurstöður útboðs verði birtar opinberlega 1. desember. Útboðið er með fyrirvara um að hlutir í félaginu
verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Slíkt samþykki birtir Nasdaq Iceland ásamt
tilkynningu um fyrsta mögulega viðskiptadag með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara. Eindagi
kaupverðs er áætlaður 7. desember og stefnt að því að viðskipti geti hafist á Aðalmarkaði 9. desember.
Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi
Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um félagið og skilmála útboðsins í lýsingu sem félagið
birti 14. nóvember 2016 og er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti. Lýsinguna má nálgast á vef
Skeljungs, www.skeljungur.is/um-skeljung/fjarfestar og á skrifstofu félagsins að Borgartúni 26 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar
Fyrirtækjaráðgjöf fjárfestingabankasviðs Arion banka hf. hefur umsjón með útboðinu og hefur
fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. umsjón með skráningu félagsins. Nánari upplýsingar og aðstoð
vegna útboðsins má nálgast hjá söluaðilum þess, fyrirtækjaráðgjöf og markaðsviðskiptum
fjárfestingabankasviðs Arion banka (www.arionbanki.is) eða hjá verðbréfaþjónustu Arion banka
í síma 444 7000 og tölvupóstfangi skeljungur-utbod@arionbanki.is.
Hlutafjárútboð í Skeljungi
Tilboðsbók A
Hver áskrift 100.000 – 10.000.000 kr.
Verðbil 6,1–6,9 kr./hlut
Eitt endanlegt verð, jafnt eða lægra en í B
Tilboðsbók B
Hver áskrift yfir 10.000.000 kr.
Lágmarksverð 6,9 kr./hlut
Eitt endanlegt verð, jafnt eða hærra en í A