Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Qupperneq 8
Í FÓKUS
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.11. 2016
FERILLINN Hadid hefur setið fyrir frá tveggja ára
aldri þegar útsendari Guess kom auga á hana. Síðar
gerði hún hlé á fyrirsætuferlinum til að blaða í skóla-
skræðum en sneri aftur sextán ára gömul. Hún flutti
til New York fyrir þremur árum og skrifaði undir
samning við IMG-módel. Hadid þreytti frumraun
sína á tískuvikunni í New York sama ár og hefur ekki
litið um öxl síðan. Fyrsta árið sýndi hún föt fyrir ekki
minni spámenn en Marc Jacobs, Chanel, Michael
Kors, Jean Paul Gaultier og Max Mara og síðan hafa
flest stærstu tískuhúsin bæst við, svo sem Versace,
Chanel, Elie Saab, Anna Sui, Miu Miu, Balmain,
Diane Von Furstenberg og Tommy Hilfiger. Frá og
með þessu hausti er hún með sína eigin línu hjá
Tommy Hilfiger, Gigi. Hadid hefur setið fyrir á for-
síðum flestra helstu tískublaða heims og í fyrra var
hún fyrirsæta ársins hjá Daily Front Row. Hún var
kynnir á iHeartRadio Much Music Video-verðlaun-
unum í sumar og svo Bandarísku tónlistarverðlaun-
um. Hvort hún fær fleiri slík verkefni kemur í ljós.
Hadid er vinsæl fyrirsæta. Hér sýnir hún vor/sumartísk-
una fyrir Versace á tískuvikunni í Mílanó í september sl.
AFP
Sat fyrst fyrir
tveggja ára gömul
GIGI HADID, sem er bandarísk fyrirsæta, er skyndilega á allra vörum. Og
kemur það ekki til af góðu; hún þykir hafa móðgað verðandi forsetafrú
vestra. Ekki er ofsögum sagt að bandaríska þjóðin sé viðkvæmari fyrir for-
setafrú sinni en sjálfum forsetanum. Mánuðum samar hafa spéfuglar í sjón-
varpi dregið Donald Trump sundur og saman í háði og síst slegið af eftir að
hann var kjörinn forseti fyrr í þessum mánuði. Svo hermir Gigi Hadid eftir
Melaniu Trump á Bandarísku tónlistarverðlaununum og allt fer á hliðina.
Hadid setti stút á varirnar, gerði sér upp austur-evrópskan hreim og
mælti: „Ég elska manninn minn, Barack Obama forseta, og börnin okkar,
Sasha og Malia.“ Brandarinn var augljós tilvísun í víðfræga ræðu Melaniu
Trump á flokksþingi Repúblikanaflokksins síðasta sumar en hún þótti sem
kunnugt er draga dám af ræðu Michelle Obama á flokksþingi Demókrata-
flokksins fyrir átta árum.
Samfélagsmiðlar loguðu í kjölfarið, eins og sagt er,
og margir snupruðu Hadid og sökuðu hana um yfir-
gang og jafnvel rasisma í garð hinnar verðandi for-
setafrúr sem fædd er í Slóveníu.
Hadid varð augljóslega um þetta og birti handskrif-
aða afsökunarbeiðni á Twitter. Þar kom fram að hún
hefði sjálf fellt burt það sem henni þótti særandi í
handritinu sem hún fékk frá handritshöfundum þátt-
arins en það hafi greinilega ekki dugað til. Hún hafi alls
ekki haft neitt illt í huga; um græskulaust grín hafi ver-
ið að ræða eins og hún hafi margoft mátt þola sjálf sem
áberandi einstaklingur í glamúrlífi þjóðar. „Það er trú
mín að Melania skilji sjóbisness og það hvernig þættir
eru skrifaðir og þeim vindur fram. Ég bið alla sem ég
kann að hafa móðgað velvirðingar og vil bara það besta
fyrir landið okkar,“ sagði Hadid í bréfinu.
Þessi viðbrögð eru umhugsunarverð fyrir þá æringja
sem gætu í framhaldinu látið sér detta í hug að herma
eftir Melaniu Trump enda vandséð hvernig það á að
vera hægt án þess að tala með sterkum austur-
evrópskum hreim. Þannig talar Melania.
Ef til vill sjá þeir strax sæng sína upp reidda; for-
setafrúin gæti einfaldlega verið utan þjónustusvæðis
æringja. Friðhelg. orri@mbl.is
ÆTT Jelena Noura „Gigi“ Hadid
fæddist árið 1995 og er því 21 árs
að aldri. Hún er fædd og uppalin í
Los Angeles en móðir hennar er
af hollensku bergi brotin og fað-
irinn ættaður frá Palestínu. Hún
mun vera afkomandi prinsins af
Nasaret, Zahir al-Umar, sem réð
ríkjum í Norður Palestínu um
miðja átjándu öldina. Systir Gigi,
Bella, sem er ári yngri, er líka fyr-
irsæta en þær eiga líka bróðurinn
Anwar. Þá á hún tvær eldri hálf-
systur, samfeðra, og hvorki fleiri
né færri en fimm stjúpsystur; dæt-
ur seinni eiginmanns móður henn-
ar.
Afkomandi
prins
Aumingja Gigi Hadid vissi ekki hvað var í vændum þegar hún mætti sultuslök á
Bandarísku tónlistarverðlaunin í Los Angeles síðastliðinn sunnudag.
AFP
ÁSTIR Hadid var á föstu með
söngvaranum Cody Simpson um
tveggja ára skeið en upp úr sam-
bandi þeirra slitnaði á síðasta ári.
Á þessu ári hefur hún slegið sér
upp með öðrum söngvara, Zayn
Malik, og sátu þau meðal annars
fyrir saman í tískutímaritinu
Vogue í maí síðastliðnum.
Malik, sem er Breti, sendi frá
sér sína fyrstu sólóplötu fyrr á
þessu ári og hefur hún notið mik-
illa vinsælda, fór meðal annars á
topp bæði breska og bandaríska
vinsældalistans. Malik er einnig
þekktur fyrir að vera einn af stofn-
meðlimum drengjabandsins One
Direction sem notið hefur mik-
illar lýðhylli frá því það sigraði í X
Factor-keppninni í Bretlandi árið
2010. Malik er tveimur árum eldri
en Hadid, fæddur 1993.
Hadid á tískusýningu í París í haust.
AFP
Á föstu með
söngvara
Er forseta-
frúin friðhelg?
Hadid í sínu
fínasta pússi
á Bandarísku
tónlistar-
verðlaun-
unum.
AFP
Hadid ásamt Jay Pha-
roah sem kynnti
Bandarísku tónlist-
arverðlaunin með
henni um síðustu helgi.
AFP
’ Það er trú mín að Melania skilji sjó-bisness og það hvernig þættir eru skrif-aðir og þeim vindur fram. Ég bið alla semég kann að hafa móðgað velvirðingar.
Melania Trump þiggur koss frá bónda sínum, verð-
andi Bandaríkjaforseta, Donald Trump.
AFP
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VANTAR
ÞIG
PÍPARA?
Íslensku
þjónustufyrirtækin
eru á finna.is