Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Page 20
Easy2Clean
Mött veggmálning
sem létt er að þrífa
Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum
Svansvottuð
betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig
styðja við innlenda sjálfbæra fram-
leiðslu. Við viljum nýta hin kraftmiklu
og hreinu hráefni í náttúrunni fyrir
húðina sem svo skolast til baka út í
náttúruna þaðan sem þau komu. Við
viljum stuðla að vitundarvakningu á
náttúrulegum hrávörum sem skapa
jákvæða hringrás milli manns og
náttúru,“ út-
skýrir Theodóra.
Vörur Angan
eru allar hand-
gerðar af mikilli
nákvæmni til að
tryggja gæði.
„Fyrstu tvær
vörurnar eru
byggðar á salti
sem fellur út í
sjálfbærri salt-
framleiðslu á Reykjanesi. Saltið er
mjúkt og steinefnaríkt, sem hentar
vel í húðvörur. Saltið er streitulos-
andi, djúphreinsandi, eykur blóðflæði
og örvar endurnýjun húðarinnar. Í
þarabaðsaltinu notum við handtínt
bóluþang sem er þurrkað með jarð-
varma og er stútfullt af andoxunar-
efnum, steinefnum og slímefnum sem
mýkja húðina. Einnig dregur það úr
bólgum, örvar framleiðslu kollagens
og er slakandi. Ilmkjarnaolíurnar
völdum við bæði út frá andlegri virkni
og örvun þeirra á skynfærin,“ segir
Íris.
Í saltskrúbbnum nota þær síðan
handtínd fjallagrös. Theodóra og Íris
segja fjallagrös eiga langa sögu á Ís-
Nafnið Angan er skírskotun í„ilminn af íslenskri nátt-úru“.
Þær Theodóra Mjöll og Íris Ósk
deila sýn á fullnýtingu náttúrulegra
hráefna ásamt því að hvetja til vit-
undarvakningar á eiginleikum þeirra.
Markmið fyrirtækisins er að skapa
einfaldar og áhrifaríkar húðvörur
sem gefa húðinni raka, mýkt og ilm,
en fyrstu tvær vörurnar frá Angan
eru þarabaðsalt og saltskrúbbur sem
innihalda íslensk fjallagrös.
Theodóra hefur víðtækan bak-
grunn, en hún starfar sem hár-
greiðslukona og rithöfundur, var
stjórnandi eigin þátta á Stöð 2 og er
með BA-próf í vöruhönnun frá
Listaháskóla Íslands. Íris hefur síð-
astliðin tíu ár verið búsett í Kaup-
mannahöfn, þar sem hún stundaði
nám við Arkitektaskólann og starfaði
sem arkitekt. „Við höfum verið vin-
konur síðan 2004, en við kynntumst í
Iðnskólanum í Reykjavík þegar við
vorum þar í námi.“ Vinkonurnar segj-
ast alltaf hafa deilt áhuga á hönnun
og listum. „Í byrjun ársins vorum við
að spjalla saman og deildum hug-
mynd sem við vorum að vinna að hvor
í sínu lagi,“ útskýrir Theodóra, sem
segir hugmyndir þeirra hafa verið
keimlíkar, en í kjölfar samtalsins
tóku vinkonurnar ákvörðun um að
þarna væri réttur tími til að samnýta
krafta og reynslu þeirra beggja og
stofna fyrirtæki.
„Við trúum því að með því að sam-
eina krafta okkar beggja náum við
áhugaverðari og betri útkomu. Við
köstum ólíkum hugmyndum á borðið
og tölum krítískt um þær, sem leiðir
okkur í að uppgötva eitthvað nýtt og
óvænt,“ segir Íris.
Þá segjast þær sækja innblástur
alls staðar að. „Frá bókum, ljós-
myndum, hönnun og arkitektúr, en
síðast en ekki síst úr náttúrunni.“
Spurðar hvers vegna þær hafi
ákveðið að gera húðvörur segjast þær
hafa séð tækifæri á markaðnum fyrir
sjálfbærar húðvörur með íslenskar
náttúrulegar hrávörur í forgrunni.
„Okkur finnst afar mikilvægt að
landi frá landnámi og hafa þau verið
notuð meðal annars til lækninga.
„Fjallagrösin hafa bakteríudrepandi
eiginleika, eru mýkjandi og græð-
andi. Í skrúbbnum er einnig að finna
lífrænar olíur sem gefa húðinni mýkt
og raka,“ segir Theodóra og bætir við
að lífræn hráefni eru framleidd og
ræktuð án allra
aukaefna og með því
að notast við lífræn
hráefni tryggi þær
að vörurnar séu
lausar við aukaefni.
„Með því að notast
við lífræn hráefni
stuðlum við að já-
kvæðri framleiðslu í
sátt við umhverfið,“
útskýrir Íris.
Umbúðirnar eru ákaflega vand-
aðar og segja þær hönnunarbak-
grunn þeirra endurspegla útlitið.
„Þar sem við erum báðar með
hönnunarbakgrunn lögðum við mik-
inn metnað í hönnun og útlitið í kring-
um Angan-vörumerkið. Græni litur
umbúðanna er tilvísun í íslensku nátt-
úruna og gömlu jurtaapótekaraflösk-
urnar ásamt því að þær vernda og
lengja ferskleikann á náttúrulegu
innihaldsefnunum. Græni liturinn
stendur meðal annars fyrir jafnvægi
og ró, sem hentar svo vel fyrir bað-
vörur,“ segir Theodóra að lokum og
bætir við að nú vinni vinkonurnar í
því að þróa fleiri vörur til þess að
bæta í Angan-flóruna.
Morgunblaðið/Eggert
Græni litur umbúðanna stendur meðal annars fyrir
jafnvægi og ró, sem hentar vel fyrir baðvörur.
Baðsaltið inniheldur meðal annars handtínt bóluþang sem er
þurrkað með jarðvarma.
Húðvörur úr
fjallagrösum
Angan er nýtt íslenskt, sjálfbært og handgert
húðvörumerki stofnað af vinkonunum Theo-
dóru Mjöll Skúladóttur Jack og Írisi Ósk Lax-
dal, sem segja afar mikilvægt að styðja við
innlenda sjálfbæra framleiðslu
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
’Græni litur um-búðanna er tilvísun ííslensku náttúruna oggömlu jurtaapótekara-
flöskurnar ásamt því að
þær vernda og lengja
ferskleikann á náttúrulegu
innihaldsefnunum.
Theodóra Mjöll Skúladóttir
og Íris Ósk Laxdal. Angan-
vörurnar eru meðal annars
fáanlegar í verslununum
Hrími og Snúrunni.
HÖNNUN Stjaki er nýr kertastjaki frá íslenska hönnunarhúsinu HAF úr pólýhúðuðu stáli sem hentar bæði fyrir sprittkerti og hefðbundinkerti. Stjakann má auðveldlega skreyta eftir árstíðum en hann er
fáanlegur í verslununum Epal og í Rammagerðinni.
Stjaki frá HAF
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.11. 2016