Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Qupperneq 28
Valgerður Guðsteinsdóttir er
fyrsta íslenska konan sem keppir
sem atvinnumaður í hnefaleikum.
Hún er tvöfaldur Íslandsmeistari í
áhugamannahnefaleikum og ætlar
sér langt í atvinnumennskunni.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
„Sér ekki á
mér eftir
bardagann“
Ljósmyndir/Árni Torfason
V
algerður Guðsteins-
dóttir varð um síðustu
helgi fyrsta íslenska
konan til að keppa sem
atvinnumaður í hnefa-
leikum. Valgerður vann fyrsta bar-
daga sinn, gegn Angélique „Reyna“
Hernández, á mótinu Rising Stars
en bardaginn fór fram í hnefa-
leikaklúbbi í Haninge í Stokkhólmi.
Á Íslandi er aðeins leyfilegt að
keppa í áhugamannahnefaleikum og
er Valgerður tvöfaldur Íslands-
meistari í íþróttinni. Til að taka þátt
í atvinnubardaga þurfti hún því að
fara út og fá sænskt keppnisleyfi.
„Það er ekkert hlaupið að því en
ég á góða að, umboðsmann og þjálf-
ara og fólk sem trúir á mig,“ segir
Valgerður.
Valgerður þjálfar í Hnefa-
leikastöðinni hjá hnefaleikafélaginu
ÆSIR. Þjálfari hennar er Vil-
hjálmur Hernandez og umboðs-
maður Guðjón Vilhelm Sigurðsson.
Eins og orðið sjálft ber vitni um
geta peningar fylgt atvinnu-
mennsku. „Það þarf að vinna sig upp
í það. Ég fékk ekkert greitt fyrir
þennan bardaga,“ segir hún.
„Þjálfarinn minn viðraði þessa
hugmynd við mig fyrst fyrir örugg-
lega tveimur árum. Við töldum að at-
vinnuboxið myndi henta mér vel en
það þarf að vanda til verka áður en
maður fer út í svona. Það var síðan á
þessu ári sem ég fór að sækja stíft til
að komast í þetta og þjálfarinn minn
studdi vel við það,“ segir hún en
Guðjón Vilhelm útvegaði sænska
keppnisleyfið. Félagi hennar úr ÆS-
IR, Kolbeinn Kristinsson, hefur
keppt þarna úti og hún segir að það
hafi hjálpað til við að byggja upp
traust og styrkt tenginguna við Ís-
land.
„Kolli er kominn með góð sam-
bönd en hann er að æfa mikið er-
lendis og er til dæmis á Álands-
eyjum núna. Það greiðir leiðina
svolítið,“ segir hún en Kolbeinn
keppti einmitt sama kvöld og vann
líka sinn bardaga þrátt fyrir að hafa
aðeins verið boðið með fimm daga
fyrirvara. Hann er því ósigraður og
hefur unnið átta atvinnubardaga.
Hvernig var tilfinningin áður en
þú steigst inn í hringinn í fyrsta at-
vinnubardagann?
„Mér leið mjög vel, það var létt,
gott stress í mér. Það var loksins
komið að fyrsta atvinnubardag-
anum. Um leið og ég steig inn í
hringinn gat ég ekki hætt að brosa
því ég var svo glöð,“ segir hún.
Öruggur sigur
Var þetta öruggur sigur?
„Já, algjörlega. Ég mætti henni á
hennar heimavelli og fólk taldi hana
nú eiga sigurinn vísan áður en það sá
mig,“ segir Valgerður sem var frá
byrjun ákveðin í að taka þetta.
„Ég var búin að leggja það mikið á
mig. Aðdragandinn var líka langur
andlega, að vera alltaf með þetta í
kollinum en vita ekki alveg hvort
þetta gæti orðið. Ég fékk bardagann
með fimm vikna fyrirvara og fékk að
vita strax hverri ég myndi mæta. Ég
var ekkert að fletta henni upp en sá
síðasta bardagann hennar daginn
áður en ég mætti henni,“ segir Val-
gerður sem var þá stödd heima hjá
Mikael Hook, sem er virtur dómari í
þessum heimi.
„Hann sagði mér að fólk ætti von
á jöfnum bardaga, ég sagði bara
strax við hann að ég ætti ekki von á
því,“ segir Valgerður sem svaraði
því líka neitandi þegar hann spurði
hvort hún væri orðin smeyk.
„Angélique er flott stelpa. Ég vissi
það bara að ég ætlaði að sýna henni
strax að ég væri komin til að vinna
þetta og stjórna þessu og ég gerði
það. Strax í fyrstu lotu náði ég
þungu höggi á hana sem sendi hana
beina leið í strigann. Hún kom sér
fljótt á fætur aftur en ég var með
alla stjórn á bardaganum það sem
eftir var,“ segir Valgerður en and-
stæðingurinn hafði áður unnið einn
bardaga og tapað öðrum naumlega á
stigum.
Var þetta ekki góð tilfinning?
„Jú, rosalega. Ég held að ég hafi
verið eins og lítið fiðrildi þarna og
ekki hætt að brosa fyrr en ég var
komin inn í klefa aftur.“
Hvaða hæfileika þarf maður að
hafa til að vera góður boxari?
„Eins og með allar aðrar íþróttir
byrjar maður á byrjuninni. Maður
lærir grunninn, sér hvort maður hef-
ur gaman af þessu en grundvöllurinn
til að æfa eitthvað til lengdar er að
hafa gaman af því. Svo byggist þetta
upp skref fyrir skref. Maður lærir
tækni, að kýla í púða, að vinna með
andstæðingi eða félaga. Þetta snýst
líka um vöðvaminni, setja hreyfingar
inn hjá líkamanum og það var einmitt
Valgerður vann örugg-
an sigur í sínum fyrsta
atvinnubardaga.
HEILSA Margir vilja skiljanlega gera vel við sig á aðventunni. Með heilsuna í hugamá þó takmarka neysluna á sykruðum jólablöndum og fá sér heldur vatn
að drekka. Þá verður bara meira pláss eftir fyrir annað góðgæti.
Vatn á aðventunni
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.11. 2016