Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Qupperneq 30
Áhugi Steina á fatahönnun segir hannhafa kviknað stuttu fyrir 25 ára afmæl-ið sitt. Þá hafði hann teiknað fatnað
sem hann langaði að klæðast á afmælinu og
bað móður sína, sem hann hafði fylgst með
sauma í mörg ár, að sauma fyrir sig. „Þá segir
hún að ég geti allt eins gert þetta sjálfur. Hún
hafði trú á því að ég gæti gert þetta, sem var
síðan raunin og var þetta fyrsta tilraunin í að
hanna og sauma sjálfur. Ég fer síðan í læri hjá
Mími og tek sniðsaum og sniðbreytinga-
námskeið sem kenndi mér helling. Eftir það
fór ég að hugsa meira um hönnun og að mig
langaði að gerast hönnuður og stofna mitt eigið
merki.“
Steini fór að horfa mikið á ull og ullarfatnað í
kjölfarið. „Mér finnst ullin rosalega skemmtileg
og mér fannst vanta svolítið meira „fútt“ í ullina
og langaði að gera hana tískumiðaðri,“ útskýrir
Steini sem hóf að hanna öðruvísi munstur á
lopapeysur heldur en þennan týpíska bekk sem
hann segir einkenna flestar lopapeysur.
Á þessum tíma starfaði hann í verslun
Cintamani sem var þá að þróa prjónaflíkur.
„Ég ákvað sýna hönnunarteyminu teikn-
ingar af prjónaflíkum sem ég hafði hannað og
var fljótlega tekinn inn í hönnunarteymið.“
Þrátt fyrir stutt stopp í hönnunarteyminu fór
Cintamani að selja hönnun hans í verslunum og
gerir enn.
Hinn 17. september síðastliðinn lét Steini
drauminn rætast og stofnaði eigin verslun á
Skólavörðustíg sem selur meðal annars eigin
hönnun sem hann saumar að hluta til í kjallara
verslunarinnar.
„Þetta er harður bransi fyrir okkur sem er-
um ný og minni en risafyrirtækin. Leiguverð
og annað er rosalega stór pakki. Ég ákvað þó
að láta reyna á þetta. Annaðhvort ganga hlut-
irnir upp eða ekki. Maður getur alveg eins ver-
ið með hugmyndina í hausnum í mörg ár eða
látið verða af því og sjá svo til hvert stefnir því
ekki er hægt að bíða endalaust.“
Fylgist vel með tískunni
Steini fylgist vel með hvernig vörur fólk er að
kaupa og virðist líka við og hannar í samræmi
við þarfir og óskir kúnnanna. Hann segir fólk
almennt opið fyrir því að sjá ný munstur og ný
efni í ullinni. „Ég hef verið að vinna mikið með
hermannamunstur núna og stefni að því að
koma með tvö ný munstur í desember.“
Aðspurður hvaðan hann sæki innblástur
segist Steini meðal annars hafa skoðað gamalt
veggfóður á netinu þegar hann vann að nýjasta
munstrinu.
„Ég sæki líka innblástur af götunni og
skoða mikið tískublöð. Maður fylgist vel með
því sem er í tísku og þess vegna tók ég til
dæmis hermannamunstrið inn því það fer
alltaf í hringi. Það er eitthvað sem ég hafði
heldur ekki séð áður í íslenskri ull.“
Steini segir Íslendinga ekki hafa klæðst ull-
inni mikið því fatnaðurinn hefur verið svo ein-
hæfur hingað til.
„Það hefur þó verið að breytast og hönnuðir
eru farnir að gera meira úr ull en hina týpísku
peysur sem allir eru í og var komin með með
ákveðinn sveitastimpil á sig. Fólk fer ekkert að
detta inn á kaffihús í lopapeysunni eða rölta
um göngugötur borgarinnar í henni.“
Steina langaði að gera ullarföt sem fólk gæti
notað við öll tækifæri. „Þú ert þá bara í tísku-
fatnaði úr ull. Mig langar að koma ullinni meira
í „streetware fashion“ án þess að fólk horfi á
mann eins og maður sé á leið á rjúpnaveiðar.“
Steini segir það furðulegt að Íslendingar
klæðist ekki lopanum oftar.
„Ég hef alltaf verið í ull og afi minn var mikið
í ullarsíðbrók á sínum tíma, þannig að ég fór að
gera ullarbuxur sem hafa ekki sést mikið á göt-
unum en hafa vakið mikla athygli í búðinni hjá
mér. Mér finnst lopinn flottur og það hlýjasta
sem við eigum og því fáránlegt að við séum
ekki að nota ullina meira. Svo er alltaf ákveð-
inn hópur sem þolir hana ekki og það er ástæð-
an fyrir því að ég fór að hanna flíkur úr mýkri
ull.“
Steini saumar flest sýnishorn í versluninni
en lætur framleiða vörur og munstur í verk-
smiðju Varma.
„Ég tók ákvörðun frá byrjun að fara ekki í
erlenda framleiðslu. Maður sér það í mörgum
verslunum flíkur sem stendur á Íslensk ull
„made in China.“ Það finnst mér ekki passa.
Þrátt fyrir að framleiðslan sé dýrari á Íslandi
þá held ég að þegar upp er staðið er það
skemmtilegra. Ég veit að fólk tekur vel í það.“
Steini opnaði verslun
sína, Steini, á Skólavörðu-
stíg 40 í september.
Hægt að gera fleira
en lopapeysur
Aðalsteinn Jón Sigvaldason opnaði nýverið verslun undir eigin
merki, Steini design, þar sem hann selur prjónafatnað sem
hann hannar úr íslenskri ull. Steini furðar sig á því hvað ullin
er sjaldséð á Íslandi og með því að hanna tískufatnað úr lopa
stefnir hann á að gera íslensku ullina sýnilegri.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Hermannamunstur í íslenskri ull hefur vakið athygli. Ullarfötin segir Steini eiga alltaf við.
Morgunblaðið/Golli
’ Fötin eru öllframleidd áÍslandi.
TÍSKA
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.11. 2016
Hin fimm ára gamla Harper Beckham, dóttir Davids og Victoriu Beckham, tók þátt
í að teikna mynd á bol sem móðir hennar hefur sett á sölu, en ágóði sölunnar
rennur til samtakanna Born Free Africa. Bolurinn er fáanlegur á börn og fullorðna á
vefsíðu hönnuðarins, victoriabeckham.com.
Harper hannar bol með mömmu sinni