Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Síða 31
Edda Gunnlaugsdóttir hefurtekið að sér að hanna hliðar-línu fyrir merki verslunar-
innar Gallerí 17, Moss í samstarfi
við hönnunarteymi Moss, þær
Birtu Ísólfsdóttur og Tinnu Rún
Kristófersdóttur.
Samstarfið ber nafnið EDDA x
MOSS og í línunni leggur Edda
ríka áherslu á munstur og textíl.
„Fyrstu hugmyndir línunnar
vann ég út frá lokaverkefninu mínu
úr skólanum, þar sem ég var að
vinna að línunni á sama tíma.
Lokaverkefnið snerist helst um
mismunandi áferðir í náttúrunni,
hnúta og lausa þræði, en það skilar
sér best í mynstrinu og öðrum
smáatriðum,“ segir Edda, sem
fannst mikilvægt að línan væri
kvenleg, þægileg og falleg. Edda
segir að í ferlinu hafi jafnframt
verið mikilvægt að línan samsvar-
aði hennar persónulega stíl vel, og
að í línunni væru flíkur sem auðvelt
væri að klæðast.
„Helst má búast við þægilegum
flíkum sem nota má við ýmis tilefni,
og að sjálfsögðu flíkum fyrir fínni
tilefni sem mann vantar svo oft á
þessum árstíma,“ svarar Edda og
bætir við að ferlið hafi verið mjög
skemmtilegt og samstarfið tekist
vel. „Ætli það skemmtilegasta hafi
ekki verið að sjá mynstrin sín og
tillögur verða að veruleika, að
halda á flíkinni sem fyrir nokkrum
mánuðum var bara hugmynd.“
Edda leggur áherslu á mynstur og textíl í línunni. Edda Gunnlaugsdóttir textílhönnuður.
Hannaði tískulínu sam-
hliða lokaverkefninu
Edda Gunnlaugsdóttir útskrifaðist sem textílhönnuður úr hinum virta skóla
London College of Fashion í sumar. Samhliða lokaverkefni sínu í skólanum
hannaði Edda tískulínu fyrir Moss Reykjavík og Gallerí 17 sem ber heitið
EDDA X MOSS. Í nýju línunni lagði hún áherslu á textíl og falleg smáatriði.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Kjóll úr nýrri línu EDDA X MOSS. Línan kemur í takmörkuðu upplagi í verslun
Gallerí 17 í Kringlunni 1. desember.
Net-a-porter.com
4.100 kr.
Æðislegur varalitur
frá Kjær Weis.
Lindex
4.595 kr.
Blúndutoppur
frá Ellu M.
Zara
5.495 kr.
Sparilegar plís-
eraðar buxur.
Í þessari viku …
Sigurborg Selma
sigurborg@mbl.is
Hátíðarfatnaður er mér ofarlega í huga
þessa dagana þar sem jólaboðin og jólahlað-
borðin eru rétt handan við hornið. Flauel og
plíserað er afar vinsælt í jólatískunni í ár
ásamt stóru skarti. Vínrautt er alltaf hátíð-
legur litur bæði í fatnaði og förðun.
Lindex
2.395 kr.
Glæsilegir eyrna-
lokkar eru flottir
í jólaboðin.
Urban Decay
2.899 kr.
Hátíðlegur
glimmer augn-
línupenni.
Selected
19.990 kr.
Silkiskyrta í fallega
dimmrauðum lit.
Zara
8.995 kr.
Sjúklega smart
glimmer partískór.
27.11. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31
Hairburst eru
vítamín fyrir hárið
sem eru fáanleg í
versluninni Sápu.
Vítamínið þykkir
og styrkir hárið og
hjálpar til við að
koma í veg fyrir
hárlos. Hairburst
er fáanlegt í
nokkrum útgáfum.
Nýtt
Meðgönguvíta-
mín fyrir hárið.
Frábært vítamín til
að viðhalda eðli-
legum hárvexti fyr-
ir, á meðan og eftir
meðgöngu.
Gúmmítöflur til
að tyggja sem inni-
halda 100% nátt-
úruleg efni, gefa fal-
legra hár og
sterkari neglur.