Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.11. 2016
LESBÓK
Sigurbjörg Þrastardóttir tekurmerkimiðanum ekki illa, ensegist þó upphaflega verið
með annað hugtak í huga: „Ég hugs-
aði mér þetta ágæta hugtak leift-
ursögur. Í útlöndum eru svona sögur
stundum kallaðar flash fiction, sem
mér finnst svolítið gott, þá er eins og
það lýsist upp eitthvert ákveðið atvik
eða svið eða persóna. Það er hins-
vegar erfitt að fara að kynna nýtt
hugtak og örsögur er ágætis hug-
tak.“
– Ana María Shua flutti fyrirlestur
um örsögur á Bókmenntahátíð á síð-
ast ári og hún er einmitt þekkt fyrir
slíkt. Sumar af hennar sögum er þó
býsna langar.
„Já, og þetta microcuentas, sem
spænskumælandi kalla það stundum,
getur verið allt frá einni setningu í
lengri sögur, en mér fannst ekki
ástæða til að flækja þetta og skrifa
því bara „og aðrar sögur“ sem er í
rauninni aðallega bara til að segja:
þetta er ekki ljóðabók, sem er eitt-
hvað sem fólk gæti haldið þegar það
sér nafn mitt.“
– Og sé þá líklegra til að taka bók-
ina upp?
„Já,“ segir Sigurbjörg og skellir
upp úr. „Þrátt fyrir allan manns
barning er ákveðin girðing sem sum-
ir hætta sér ekki yfir, halda að sé raf-
magnsgirðing, sem hún er ekki, þeg-
ar kemur að ljóðum, þannig að
vonandi víkkar þetta út mögulegan
lesendahóp.“
– Hvernig verða þessar sögur til?
„Það er nú alls konar, stundum út
frá einhverju sem gerist. Vinkona
mín varð fyrir því að fá sjóðandi vatn
yfir ristarnar á sér, mér fannst orðið
beikonrist allt í einu svo fyndið þegar
hún var að segja mér frá því og svo
veit ég um hund sem leggst gjarnan
á fæturna á fólki. Þannig varð sagan
Góðir vinir til.
Sumt er bara fréttir, tvær eða
þrjár sögur byrja á frétt, sem er nán-
ast orðrétt upp úr Morgunblaðinu
eða mbl.is og er svo súrreal að það er
ekki annað hægt en að detta inn í það
að hugsa hvað gerðist svo? eða af
hverju var þetta svona? en svo fer ég
með það eitthvað annað. Ég held að
engar tvær sögur hafi orðið til á
sama hátt.
– Hvað kom til að þú fórst allt í
einu að skrifa örsögur?
„Ég held að það hafi verið að um
það leyti sem ég var að lesa Thomas
Bernhard og Heinrik von Kleist, sem
skrifa oft svona stuttar sögur, var ég
beðin að lesa í afmæli sögu úr bók
sem ekki væri til. Ég skrifaði því
stutta sögu og las þar og fannst það
allt í einu svo sniðugt að hafa þetta
svona stutt og það væri ekkert sam-
hengi annað. Þetta var svo skemmti-
legt að allt sem ég skrifaði á þessum
tíma varð svona stutt og ég skemmti
mér alveg konunglega. Ég ákvað líka
að vera ekki að garfa of mikið í þessu
formi, vera ekkert að velta fyrir mér
hvernig aðrir gera þetta og sögu
stuttsögunnar og svo framvegis,
heldur bara gera það sem ég vildi
gera og svo þyrftu aðrir að finna út
úr því hvað þetta héti.“
– Eins og þú segir byrjarðu
kannski með einhverju hversdags-
legu, en svo er maður stundum kom-
inn í allt annan og skrýtnari heim.
„Skrýtnustu sögurnar eru samt
oftast sannastar. Þær eru svona eins
og loftbelgir sem eru tengdir við
jörðina með einum þræði. Mér finnst
það svo skemmtilegt hvað það er
hægt að segja margt um hversdags-
leikann með því að snúa aðeins upp á
halann á honum. Það er hressilegt að
vinna í þessu formi, það er hægt að
gera aðra hluti en í ljóðunum eða
sitja þrjú ár í skáldsöguhlekkjunum
til þess að segja á endanum það sama
og maður segir í einni sögu.“
– Hvað ertu að fást við annað?
„Ég er að skrifa leikrit sem á að
sýna í Svíþjóð á næsta ári, stutt verk
sem á tengjast þematískt verkum
sem aðrir eru að skrifa og verða líka
sett upp um svipað leyti. Svo var ég
að skrifa íþróttaljóð sem á að afhjúpa
á laugardaginn í íþróttahúsinu við
Vesturgötu á Akranesi. Ég var beðin
um ljóð og skrifaði íþróttaljóð undir
ljóðahætti eins og Hávamál, það er
búið að ríma of mikið saman mark og
spark og ákvað því að prófa að gera
það öðruvísi. Þetta var ansi fyndin
áskorun og mér leist ekkert á hana til
að byrja með en svo ákvað ég að gera
þetta og ekki síst fyrir krakkana; það
gæti verið að einhver sem ætti leið
um íþróttahúsið fattaði innbyggðan
áhuga á ljóðum þegar hann sæi það.“
Snúið upp á
hversdagsleikann
Sigurbjörg Þrastardóttir sendi á dögunum frá sér bókina Óttaslegni tromp-
etleikarinn og aðrar sögur sem hefur að geyma smásögur, flestar býsna
stuttar, svo stuttar reyndar að manni er gjarnt að segja þær örsögur.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Finnur Torfi Hjörleifsson, skáld og fyrrv.
héraðsdómari, fagnaði áttræðisafmæli
sínu í byrjun mánaðarins og af því tilefni
kom út bókin Vestanfórur þar sem hann
segir frá æskuárum sínum, sjósókn og
skólavist, kennslu og útivist. Í bókinni er
einnig að finna ýmislegt efni annað. Bók-
in Landið gefur fylgir ókeypis með Vestanfórum, en í því riti fjallar
Finnur um veiðar, tínslu berja og grasa og fleira.
Skrudda gefur út.
Ljóðabókin Skin, sem bókaútgáfan Sæmundur
gefur út, er sjötta ljóðabók Guðrúnar Hannes-
dóttur. Guðrún hefur hlotið ýmsar viðurkenn-
ingar fyrir ljóð sín, fékk til að mynda bók-
menntaverðlaun Jóns úr Vör árið 2007 og
síðasta ljóðabók hennar, Humátt, var tilnefnd til
Fjöruverðlaunanna. Í viðtali við Morgunblaðið
fyrr á árinu sagði hún að ljóðin byggju í undir-
meðvitundinni, „eitthvað sem ég hef velt fyrir
mér lengi og kemur svo skyndilega“.
Úr undirmeðvitundinni
Fyrir þrettán árum sendi Einar Kárason frá sér
bókina Storm, þar sem sagt er frá Eyvindi Jóns-
syni, gustmiklum sagnamanni en litlum iðju-
manni. Eyvindur var ekki vel sáttur við bókina,
að því er kemur fram í inngangi skáldsögunnar
Passíusálmarnir eftir Einar, því þar segir hann
frá því að sér hafi borist skýrsla eða varnarrit
frá manni sem kallar sig Eyvind Storm til þess
að leiðrétta það sem sagt var í Stormi.
Mál og menning gefur bókina út.
Málsvörn Eyvindar Storms
Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir er menntuð
hnéfiðluleikari og hefur löngum dvalið og starf-
að í Frakklandi, en þar stundaði hún framhalds-
nám. Þar ytra stofnaði hún kammerhópinn
Corpo di Strumenti, en hér heima var hún með-
al þeirra sem komu upp kammersveitinni Ísa-
fold. Steinunn hefur einnig sinnt ritstörfum og
birt ljóð í tímaritinu Stínu. Fyrsta ljóðabók
hennar kom út á dögunum á vegum bókaútgáf-
unnar Sæmundar og heitir Uss.
Uss, fyrsta ljóðabókin
Ævintýri frá miðöldum heitir bók
sem Skrudda gefur út, en slíkar
sögur, dæmisögur eða exempla,
nutu gríðarlegra vinsælda á mið-
öldum hér á landi líkt og víða um
hinn kristna heim. Þau voru flest
samin í Evrópu á latínu á 12., 13. og
14. öld og gætir áhrifa þeirra meðal
annars í Íslendingasögum og fleiri
bókmenntagreinum og sum þeirra
urðu að þjóðsögum.
Í safninu eru 146 ævintýri sem
þýdd voru á miðöldum úr latínu og
miðensku á 13., 14. og 15. öld. Bragi
Halldórsson sá um útgáfuna og rit-
ar fræðilegan inngang að verkinu.
Þá er fjallað um uppruna ævintýr-
anna í athugasemdum á eftir hverju
þeirra. Neðanmáls eru m.a. biblíu-
tilvísanir, orðskýringar, stuttar
menningarsögulegar skýringar og
lesbrigði handrita. Hrefna Braga-
dóttir myndskreytti.
Í innganginum segir Bragi frá til-
urð verksins og skýrir heiti þess
svo að á miðöldum hafi orðið æv-
intýri oftast verið notað yfir dæmi-
sögur kristilegar á við þær sem í
bókinni birtast, en það orð var síðar
tekið til brúks yfir einn flokk þjóð-
sagna þegar skipulögð söfnun
þeirra hófst á nítjándu öld. „Að-
greining bókmenntagreina var
miðaldamönnum ekki ofarlega í
huga. Því eru ýmis orð önnur notuð
um ævintýri á miðöldum eins og at-
burður, saga, frásaga/frásögn,
dæmi(saga), þáttur og jafnvel lífs-
saga. Hverju nafni sem þessar sög-
ur eru nefndar eiga þær eitt sam-
eiginlegt og það er að þær flytja
kristilegan siðrænan boðskap í ætt
kennisagna, ýmist mönnum til eftir-
breytni eða sem víti til varnaðar.“
Í inngangi Braga kemur fram að
ævintýri úr dæmisagnaritum mið-
alda hafi verið geysivinsæl víða um
lönd, úr þeim hafi mörg ævintýri
verið þýdd eða endursögð og um-
skrifuð á íslensku úr latínu eða mið-
enskri þýðingu og þau hafi haft
áhrif á íslenska sagnagerð, enda
séu í sögunum ýmis minni sem fram
komi í íslenskum fornsögum. „Nú
verður ekki vitað eftir hvaða leið-
um ævintýrasögur [...] bárust til Ís-
lands en geta má sér til að það hafi
þegar gerst á 12. öld eða snemma á
Fræðileg heildarútgáfa
ævintýra frá miðöldum
FRÆÐIRIT
Vestanfórur Finnboga
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell keramik hitarar sem
blása hita allt í kring.
Úrval af hiturum
frá Honeywell