Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Qupperneq 41
27.11. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
Siri Hustvedt er í miklu uppáhaldi
hjá mér og ég var að lesa bókina
hennar The Blazing World. Hún er
algjör steypa, maður
er svo lengi með hana,
en mér fannst hún
mögnuð. Hún er um
svo margt, ég var heill-
uð af henni, en ég hef
aldrei verið eins lengi með bók.
Hún er stórkostlegur rithöfundur.
Örin hennar Auðar Övu fannst
mér líka stórkostleg. Það er magn-
að hvernig sögupersón-
an breytist í gegnum
það að fá nýtt hlutverk
og hvernig hann sér líf
sitt í nýju ljósi þegar
hann áttar sig á því
hvað aðrir hafa þurft að upplifa
miklar hörmungar – hans eymd
verður bara léttvæg. Svo er það
líka það að hafa hlutverk. Mér
finnst alltaf eitthvað spennandi við
bækurnar hennar Auðar.
Svo las ég Skegg
Raspútíns eftir Guð-
rúnu Evu Mín-
ervudóttur og mér
fannst hún frábær.
Hún gengur mjög
nærri sér í bókinni og
gaman er að sjá hvernig vinskapur
hennar við Ljúbu þróast og hvernig
þær fara að taka þátt í lífi hvor ann-
arrar. Það var mjög gaman að lesa
þessa bók, hún er spennandi og
skemmtileg og fallega skrifuð.
Hulda B.
Ágústsdóttir
Hulda B. Ágústsdóttir er listakona og
skartgripahönnuður.
Sigurbjörg Þrastardóttir
leikskáld, ljóðskáld og
örsagnasmiður.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BÓKSALA 16.-22. NÓV.
Listinn er tekinn saman af Eymundsson.
1 PetsamoArnaldur Indriðason
2 AflausnYrsa Sigurðardóttir
3 Pabbi prófessorGunnar Helgason
4 Elsku Drauma mínVigdís Grímsdóttir
5 Þín eigin hrollvekjaÆvar Þór Benediktsson
6 SvartalognKristín Marja Baldursdóttir
7 TvísagaÁsdís Halla Bragadóttir
8 Dagbók Kidda klaufa 8Jeff Kinney
9
Ljúflingar
- Prjónað á smáa og stóra
Hanne Andreassen/
Torunn Steinsland
10 DrungiRagnar Jónasson
1 Pabbi prófessorGunnar Helgason
2 Þín eigin hrollvekjaÆvar Þór Benediktsson
3 Dagbók Kidda klaufa 8Jeff Kinney
4 Henri og hetjurnarÞorgrímur Þráinsson
5 Vonda frænkanDavid Walliams
6 Úlfur og Edda: Dýrgripurinn!Kristín Ragna Gunnarsdóttir
7
Íslandsbók barnanna
Margrét Tryggvadóttir/
Linda Ólafsdóttir
8 StjörnuskoðunSævar Helgi Bragason
9
Doddi: Bók sannleikans!
Hildur Knútsdóttir/
Þórdís Gísladóttir
10
Vísindabók Villa
- Skynjun og skynvillur
Vilhelm Anton Jónsson
Allar bækur
Barnabækur
ÉG VAR
AÐ LESA
13. öld enda bendir ýmislegt til þess
að þá þegar hafi þær haft áhrif á
innlenda sagnagerð.“
Í bókinni Leit ég suður til landa
eftir Einar Ólaf Sveinsson, sem
kom út 1944, eru ýmis sýnishorn af
ævintýrum frá miðöldum og segir
Bragir að við það að rifja upp göm-
ul kynni við þá bók sumarið 2011
hafi kviknað sú hugmynd að taka
saman í eina bók safn af þeim æv-
intýrum sem þýdd hafi verið á ís-
lensku á miðöldum. Í vinnunni hafi
hann meðal annars stuðst við út-
gáfu Hugos Gering af safni ís-
lenskra miðaldaævintýra, sem gef-
in var út 1882-83, en í henni er 101
ævintýri. Einnig nefnir Bragi fram-
lag Einars Ólafs og svo Alfred
Jacobsen, Jonna Louis-Jensen, Pete
A. Jörgensen, Einar G. Pétursson
og Ólaf Halldórsson „og raunar
fleiri ónefndra fræðimanna sem
leitað hefur verið fanga hjá“.
Kápumynd sýnir dansinn í Kölbigk
sem á samsvörun í dansinum í Hruna.
Af Lanfrans: Illir andar slöngva brenn-
andi peningum í munn ágjarnra.
Frá
morgnifyrir allafjölskylduna í
þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Laugarnar í Reykjavík
NÆRING FYRIR LÍKAMA OG SÁL