Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2015, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2015, Blaðsíða 4
Vikublað 10.–12. febrúar 20154 Fréttir Fiskbúðin Hafrún Skipholti 70 • 105 Reykjavík • Sími: 552-0003 / 895-5636 Fagur, Fagur Fiskur úr sjó Alelda vegna ljóskastara Eldur blossaði upp í kyrrstæðri bifreið í umdæmi lögreglunn- ar á Suðurnesjum á sunnudags- kvöld. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að eigandi bif- reiðarinnar hafi verið að smala hrossum og notað við það ljós- kastara á bifreiðinni. Hann skildi hana eftir í gangi með- an á smalamennskunni stóð en þegar hann var að ganga aftur að henni blossaði eldurinn upp og varð bifreiðin alelda á svip- stundu. Málið er í rannsókn. Þá var tilkynnt um mik- inn reyk í stigahúsi í umdæm- inu. Þegar lögregla kom á vett- vang reyndist ástæðan vera sú að sígarettuglóð hafði fallið í pappírshrúgu á gólfi og kvikn- að í henni. Húsráðandi var bú- inn að slökkva í hrúgunni þegar slökkviliðið kom á vettvang, en reykræsta þurfti íbúðina. Hafnfirðingar flykkjast í sund Frá árinu 2007 hefur fjöldi þeirra sem sækir sundlaugar Hafnar- fjarðar nær tvöfaldast. Frá þessu var greint á hafnfirska fréttavefn- um gaflari.is á mánudag. Þar kom fram að árið 2007 hafi fjöldinn verið 390 þúsund en er nú 630 þúsund. Í fyrra lögðu flestir leið sína í Ásvallalaugina, eða um 320 þús- und manns. Ungir sundgarp- ar virðast heldur kjósa að busla í Ásvallalauginni, en fullorðn- ir að sama skapi í Suðurbæjar- laug. Um 47 þúsund börn skvettu úr klaufunum í Ásvallalauginni samanborið við 24 þúsund börn í Suðurbæjarlaug. 165 þúsund full- orðnir lögðu hins vegar leið sína í Suðurbæjarlaug samanborið við 66 þúsund í Ásvallalaug, að sögn gaflari.is. É g held að þetta endi bara með einhverju stóru stoppi eða verkfalli. Það eru allir bún- ir að fá nóg af þessu,“ seg- ir starfsmaður á verkstæði Strætó í samtali við DV. Hann seg- ir launamál hjá Strætó vera búin að vera í lamasessi undanfarna mánuði og að engin farsæl lausn sé í sjón- máli. Starfsfólk sé orðið langþreytt á ástandinu og nú sé komið að ein- hvers konar aðgerðum. Hermann Guðmundsson, þjónustufulltrúi hjá Félagi iðn- og tæknigreina, staðfest- ir þetta í samtali við DV. Hann seg- ir nýlega ráðinn launafulltrúa hjá Strætó gera alltof mörg mistök við útreikning launa og þá hafi Strætó tekið í notkun nýtt launakerfi og tímakerfi um áramótin sem hafi heldur ekki virkað sem skyldi. Jóhannes Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri Strætó, segir að um einstaka tilfelli sé að ræða sem hafi strax verið leiðrétt. Sameinast í mótmælaaðgerðir DV hefur rætt við tvo starfsmenn á verkstæðinu sem báðir hafa sömu sögu að segja. Yfirvinna sé ekki greidd og erfitt hafi reynst að fá mistökin leiðrétt. Þá hafi stórhátíðarkaup ver- ið alltof lágt, sumir séu látnir borga tvöfalt fyrir matinn í mötuneytinu á meðan aðrir séu rukkaðir fyrir mat þrátt fyrir að þeir nýti sér ekki mötu- neytið. „Við fáum alltaf sömu svör. Þetta sé allt rétt reiknað og eftir kjara- samningi. Svo er bara ekkert gert í þessu. Um hver mánaðamót verða launin alltaf vitlausari og vitlausari,“ segir annar starfsmaður á verkstæði Strætó. Þá segir hann það liggja í loft- inu að starfsmenn fari í einhverjar mótmælaaðgerðir. „Trúnaðarmenn starfsmanna á verkstæði, vagnstjóra og trúnaðarmenn starfsmanna á þvottastöðinni vilja fara í sameigin- legar aðgerðir til þess að mótmæla ástandinu,“ fullyrðir hann. Vandamál- ið sé því ekki bundið við starfsmenn á verkstæði heldur hafi aðrir starfs- menn Strætó einnig fengið vitlaust út- reiknuð laun. Hann segist gera ráð fyr- ir því að fyrstu skref starfsmanna á verk- stæðinu verði vænt- anlega að hætta að vinna yfirvinnu. „Við þurfum að vinna á laugardög- um og þurfum oft að mæta klukkan fimm á morgnana áður en allir hinir mæta. Á þessum tímum er alltaf mest að gera. Á morgnana erum við að gera við bíla sem komu bilaðir úr akstri kvöldið áður. Ef ekki er gert við þá á morgnana fer ekki allur bílaflotinn út þegar akstur hefst.“- Síendurtekin mistök Í nóvember sagði DV frá því að yfir hundrað starfsmenn hjá Strætó hefðu skrifað undir undirskriftalista þar sem tilfærslu Guðmundar Sig- urjónssonar, æviráðins launafull- trúa, var harðlega mótmælt. Lýstu þeir jafnframt áhyggjum yfir því að væntanlega væru vandræði varð- andi launauppgjör því verið væri að bola út sérþekkingu á flóknu vakta- kerfi. Guðmundur hefur starfað hjá Strætó í yfir fjörutíu ár, þar af í tæp- lega tuttugu ár sem launafulltrúi. Hann er með æviráðningu og því ekki hægt að segja honum upp störf- um. Í dag sinnir Guðmundur eftirliti og viðhaldi á biðskýlum. Samkvæmt Hermanni Guð- mundssyni, þjónustufulltrúa hjá Fé- lagi iðn- og tæknigreina, fóru kvart- anir um villur í launaútreikningi að berast stéttarfélaginu um leið og nýr launafulltrúi tók við í nóvem- ber. „Þetta mál er löngu komið inn á okkar borð og við erum búin að tala við launafulltrúana og deildar- stjóra, sem eru oftar en einu sinni búnir að gera leiðréttingar. Það sem virðist vera að gerast hjá Strætó er að þeir eru að skipta um launakerfi, tímakerfi og eru með nýlega ráðinn launafulltrúa sem, því miður, ger- ir alltof mikið af mistökum að okkar mati. Þetta virðist vera síendurtekið og það koma upp ný og ný atriði um hver mánaðamót,“ segir Hermann. Hann tekur hins vegar ekki undir orð starfsmanna um að erfitt hafi reynst að fá mistökin leiðrétt. Þvert á móti sé fullur vilji hjá stjórnendum Strætó að leiðrétta þau sem fyrst. „Get- an virðist hins vegar ekki vera nógu mikil til þess að halda þessu í lagi,“ bætir hann við. Ekki mörg tilvik Trúnaðarmenn Strætó funduðu með stéttarfélaginu á föstudag. „Niður- staðan er sú að við munum óska eftir fundi með framkvæmdastjóra vegna þessa máls,“ segir Hermann. „Við munum ræða við nýjan fram- kvæmdastjóra um hvort að þessu fari nú ekki að linna og starfsmenn fari að fá sín laun með eðlilegum hætti.“ Jóhannes Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri Strætó, segist kann- ast við málið og tengir það við upp- töku nýs launakerfis. Hann vill ekki tengja málið við nýjan launafulltrúa hjá Strætó. „Það hefur í einhverj- um tilvikum komið fyrir að matará- skriftir hafa farið á ranga aðila. Það er að sjálfsögðu leiðrétt um leið og það kemur upp. Varðandi yfirvinnu og annað þá vil ég nú ekki meina að við höfum verið að snuða einn eða neinn heldur hefur í einhverjum til- vikum yfirvinna ekki skráðst að fullu. En það hefur þá líka verið leiðrétt, jafnvel samdægurs,“ segir Jóhannes, sem segir Strætó nú vinna að því að koma málinu í gott lag. „En þetta eru ekki mörg tilvik sem ég kannast við. Þetta er ekki að koma fyrir hjá hverj- um einasta starfsmanni, mánuð eftir mánuð.“ n „Um hver mánaða- mót verða launin alltaf vitlausari og vitlausari. Áslaug Karen Jóhannsdóttir aslaug@dv.is n Fá ekki greidda yfirvinnu n Ofrukkaðir um mat n Hóta aðgerðum Vikublað 18.–20. nóvember 2014 6 Fréttir Æviráðinn launafulltrúi þrífur biðskýli Strætós n Vagnstjórar mótmæla óeðlilegri starfsmannaveltu n Söfnuðu yfir hundrað undirskriftum E nn er mikill urgur meðal starfsmanna Strætós. Vagn- stjórar hafa lýst yfir áhyggj- um yfir óeðlilegri starfs- mannaveltu hjá fyrirtækinu en yfir hundrað manns skrifuðu und- ir undirskriftalista þar sem tilfærslu æviráðins launafulltrúa var harðlega mótmælt. Launafulltrúinn sinnir nú meðal annars viðhaldi á biðskýl- um. Þá lagði bæjarfulltrúi Kópavogs- bæjar í síðustu viku fram fyrirspurn varðandi ráðningu Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur til Strætós. Staða hennar var ekki auglýst og þá tel- ur bæjarfulltrúi Kópavogsbæjar það stríða gegn siðareglum að fyrrver- andi stjórnarformaður Strætós taki við starfi hjá fyrirtækinu. Guðrún sinnir nú meðal annars upplýsinga- gjöf til fjölmiðla en þess má geta að í síðasta mánuði var upplýsingafull- trúi Strætós leystur frá störfum. Að auki lögðu borgarfulltrúar Fram- sóknar fram tillögu á borgarráðs- fundi síðastliðinn fimmtudag um að segja upp ráðningarsamningi við Reyni Jónsson, framkvæmdastjóra Strætós bs. Sinnir viðhaldi á biðskýlum Á stjórnarfundi Strætós 5. nóvember síðastliðinn var stjórnarformanni af- hentur undirskriftalisti þar sem um hundrað vagnstjórar mótmæltu til- færslu Guðmundar Sigurjónsson- ar launafulltrúa í starfi. Guðmundur hefur starfað hjá Strætó í yfir fjöru- tíu ár, þar af í tæplega tuttugu ár sem launafulltrúi. Hann er með æviráðn- ingu og því ekki hægt að segja honum upp störfum. Í dag sinnir Guðmund- ur eftirliti og viðhaldi á biðskýlum. Starfsmenn lýstu yfir óánægju með þessa tilfærslu í starfi og sömuleiðis áhyggjum yfir því að væntanleg væru vandræði varðandi launauppgjör þar sem verið væri að bola út sérþekk- ingu á flóknu vaktakerfi. Líkt og DV hefur fjallað um komu upp mistök í launagreiðslum um síðustu mánaða- mót, þar sem nokkrir starfsmenn fengu ekki greidd út grunnlaun. Sam- kvæmt heimildum DV var staða Guð- mundar auglýst laus til umsóknar, þrátt fyrir að hann hefði sinnt henni í tæp 20 ár. Mat Strætós var að hann hefði ekki nægilega menntun til að sinna starfinu, samkvæmt heimild- um DV. „Það voru gildar og góðar ástæður fyrir þessari breytingu,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætós bs., um tilfærslu Guðmundar. Að öðru leyti segist hann ekki geta tjáð sig um málefni einstakra starfsmanna. Sjálfur segist hann ekki hafa séð undirskrifta- listann sem um ræðir og geti því ekki tjáð sig um hann. „Það getur vel ver- ið að einhverjir starfsmenn telji þetta ósanngjarnt, ég veit það ekki, en ég hef bara ákveðnar, góðar og gildar ástæð- ur fyrir því að taka svona ákvörðun.“ Áhyggjur starfsmanna hafa einnig verið yfir, að þeir telja, óeðlilegri starfs- mannaveltu í yfirstjórn fyrirtækisins. Á tæplega einu og hálfu ári hafi til dæmis verið fjórir starfsmannastjór- ar hjá fyrirtækinu, samkvæmt heim- ildum DV. Þá herma heimildir DV að starfsmenn séu með í burðarliðnum undirskriftasöfnun á netinu þar sem skorað er á stjórn Strætós bs. að leysa Reyni Jónsson undan störfum, líkt og borgarfulltrúar Framsóknar leggja til. Stjórn tekur ekki afstöðu DV greindi frá því í lok október að fjöldi kvartana hefði borist til stéttarfélagsins vegna framkomu framkvæmdastjóra við starfsfólk. Bryndís Haraldsdóttir, stjórnarfor- maður Strætós, segir þessar kvart- anir ekki hafa verið formlega teknar til umræðu af hálfu stjórnar. Í tillögu borgarfulltrúa Fram- sóknar kemur fram að Reynir hafi farið út fyrir valdsvið sitt er hann festi kaup á bifreið til eigin nota án heimildar stjórnar til slíks, en DV greindi fyrst frá kaupunum í lok október síðastliðnum. Í ljósi þess trúnaðarbrests sé honum ekki leng- ur stætt á að gegna stöðu fram- kvæmdastjóra áfram. Reynir neitaði að tjá sig um málið við DV þegar eft- ir því var leitað og þá hafði Bryndís ekki heyrt af tillögunni þegar blaða- maður sló á þráðinn til hennar. „Við munum örugglega ekki taka afstöðu til tillögu einstakra bæjarfulltrúa í sveitarfélögum. Við verðum bara að horfa heilt yfir á hagsmuni fyrirtæk- isins og Reynir hefur staðið sig vel hingað til sem framkvæmdastjóri. Ég sé ekki neina ástæðu til að leysa hann frá störfum þó svo að það hafi komið upp eitthvað vandamál varð- andi þetta bílamál,“ segir Bryndís. Umdeild ráðning Á bæjarráðsfundi í Kópavogi á fimmtudag lagði Karen Elísabet Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi fyr- ir Sjálfstæðisflokk, fram fyrir- spurn varðandi ráðningu Guðrún- ar Ágústu Guðmundsdóttur hjá Strætó bs. Guðrún Ágústa er fyrr- verandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar- bæjar og stjórnarformaður Strætós. Þess má geta að siðareglur bæjar- fulltrúa og stjórnenda í Kópavogi hefðu meinað viðkomandi að taka við þessu starfi, ef viðkomandi væri bæjarfulltrúi eða fyrrverandi for- maður stjórnar Strætós. Í siðaregl- um segir meðal annars: „Kjörnir bæjarfulltrúar skulu ekki í störfum sínum leita eftir starfslegum ávinn- ingi í framtíðinni, meðan þeir eru við störf eða eftir að þeir hafa látið af störfum til dæmis í; opinberri stofn- un eða einkafyrirtæki sem þeir hafa haft eftirlit með í störfum sínum.“ Þess ber að geta að siðareglur kjör- inna fulltrúa hjá Hafnarfjarðarbæ innihalda ekki sambærilega klausu. „Starfið hennar var ekki auglýst vegna þess að það urðu ákveðnar tilfærslur og breytingar hér á þess- um málaflokki,“ segir Reynir í sam- tali við DV. „Við réðum Guðrúnu bara með tímabundinni ráðningu til eins árs. Flóknara er það ekki.“ Ráðgjafarfyrirtæki séð um stefnumótun Í tilkynningu til starfsmanna Strætós segir að Guðrún muni sinna sérstökum verkefnum er lúta að stefnumótun og samfélagsá- byrgð og upplýsingamiðlun þessara málaflokka. Þessi starfslýsing vek- ur athygli, sérstaklega vegna þess að ráðgjafarfyrirtækið Expectus ehf. hefur nú um hríð fengið greiðslur frá Strætó fyrir ráðgjöf í stefnumót- un. Reynir staðfesti þetta í samtali við DV. „Þeir eru í raun ráðgjafar í að leiða ferlið. Þeir leiða okkur og stjórnina og alla hagsmunaaðila í gegnum ákveðna umræðu og halda utan um þetta.“ Reynir segir hlut- verk Guðrúnar jafnframt vera að halda utan um þau atriði sem snúi að því að miðla því sem kemur út úr þessu stefnumótunarferli. „Hún er ekkert að vinna að stefnumótun per se sko,“ segir Reynir. DV sendi fyrirspurn á Strætó bs. þar sem spurt er hve mikið Strætó bs. hafi greitt fyrir þjónustu frá ráð- gjafarfyrirtækinu Expectus á undan- förnum árum. Einnig óskaði DV eft- ir upplýsingum um hvort Strætó bs. hafi keypt ráðgjafarþjónustu frá fleiri fyrirtækjum. Strætó hefur greitt ráðgjafarfyrirtækinu Expectus ehf. rúmar þrjár milljónir króna fyrir verk efni. Varðandi það hvort önnur fyrirtæki hefðu verið ráðin í verkefni hjá Strætó fengust engin svör og vís- aði Guðrún Ágústa í upplýsingalög. Sinnir upplýsingagjöf til fjöl-miðla Kolbeinn Óttarsson Proppé, upp- lýsingafulltrúi Strætós, var leystur undan störfum frá og með 1. október síðastliðnum. Kolbeinn vildi ekki tjá sig um starfslokin við DV þegar eftir því var leitað. Guð- rún Ágústa sinnir nú meðal annars upplýsingagjöf til fjölmiðla. Má þá ekki segja að hún sé í raun sest í stól upplýsingafulltrúa? „Nei, við lít- um ekki þannig á það,“ segir Reynir. Hann segir að verkefni upplýsinga- fulltrúa hafi verið slitin niður í þrjá parta. Hluti hafi farið undir mark- aðsdeildina, hluti undir mannauðs- sviðið og Guðrún sinni þriðja hlut- anum sem lýtur að stefnumótun og samfélagslegri ábyrgð. En stendur þá ekki til að auglýsa starf upplýsingafulltrúa laust til um- sóknar? „Það hefur engin ákvörðun verið tekin um það. Þetta var bara leyst svona. Þetta varð niðurstaðan hér í framkvæmdastjórnarhópnum að fara þessa leið. Þá var það bara gert,“ segir Reynir. n Áslaug Karen Jóhannsdóttir aslaug@dv.is „Það getur vel verið að einhverjir starfs- menn telji þetta ósann- gjarnt, ég veit það ekki. Umdeild ráðning Guðrún Ágústa Guð- mundsdóttir, fyrrverandi stjórnarformaður Strætós, var ráðin til að sinna verkefnum er lúta að stefnumótun og samfélagsábyrgð. „Reynir hefur staðið sig vel“ Bryndís Haraldsdóttir, stjórnarformaður Strætós, segir stjórnina ekki taka afstöðu til tillögu borgarfulltrúa Framsóknar í Reykjavík. Óánægja meðal starfsmanna Starfsmenn Strætós ætla að hefja undir- skriftasöfnun á netinu þar sem skorað er á stjórn Strætós að leysa Reyni Jónsson framkvæmdastjóra undan störfum. Hugo Boss söluaðilar: Reykjavík: Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100 Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100 Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665 Meba Kringlunni s: 553-1199Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 Hafnarfjörður Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 Úra- o skartgripaversl n Heide Glæsibæ - s: 581 36 5 18. nóvember 2014 LaunamáL Strætó í LamaSeSSi Framkvæmdastjórinn Jóhannes Rúnarsson segir að um einstaka tilfelli sé að ræða sem hafi strax verið leiðrétt. mynd Sigtryggur ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.