Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2015, Síða 4
Vikublað 10.–12. febrúar 20154 Fréttir
Fiskbúðin Hafrún
Skipholti 70 • 105 Reykjavík • Sími: 552-0003 / 895-5636
Fagur, Fagur
Fiskur úr sjó
Alelda vegna
ljóskastara
Eldur blossaði upp í kyrrstæðri
bifreið í umdæmi lögreglunn-
ar á Suðurnesjum á sunnudags-
kvöld. Í tilkynningu frá lögreglu
kemur fram að eigandi bif-
reiðarinnar hafi verið að smala
hrossum og notað við það ljós-
kastara á bifreiðinni. Hann
skildi hana eftir í gangi með-
an á smalamennskunni stóð en
þegar hann var að ganga aftur
að henni blossaði eldurinn upp
og varð bifreiðin alelda á svip-
stundu. Málið er í rannsókn.
Þá var tilkynnt um mik-
inn reyk í stigahúsi í umdæm-
inu. Þegar lögregla kom á vett-
vang reyndist ástæðan vera sú
að sígarettuglóð hafði fallið í
pappírshrúgu á gólfi og kvikn-
að í henni. Húsráðandi var bú-
inn að slökkva í hrúgunni þegar
slökkviliðið kom á vettvang, en
reykræsta þurfti íbúðina.
Hafnfirðingar
flykkjast í sund
Frá árinu 2007 hefur fjöldi þeirra
sem sækir sundlaugar Hafnar-
fjarðar nær tvöfaldast. Frá þessu
var greint á hafnfirska fréttavefn-
um gaflari.is á mánudag. Þar kom
fram að árið 2007 hafi fjöldinn
verið 390 þúsund en er nú 630
þúsund.
Í fyrra lögðu flestir leið sína í
Ásvallalaugina, eða um 320 þús-
und manns. Ungir sundgarp-
ar virðast heldur kjósa að busla
í Ásvallalauginni, en fullorðn-
ir að sama skapi í Suðurbæjar-
laug. Um 47 þúsund börn skvettu
úr klaufunum í Ásvallalauginni
samanborið við 24 þúsund börn í
Suðurbæjarlaug. 165 þúsund full-
orðnir lögðu hins vegar leið sína í
Suðurbæjarlaug samanborið við
66 þúsund í Ásvallalaug, að sögn
gaflari.is.
É
g held að þetta endi bara með
einhverju stóru stoppi eða
verkfalli. Það eru allir bún-
ir að fá nóg af þessu,“ seg-
ir starfsmaður á verkstæði
Strætó í samtali við DV. Hann seg-
ir launamál hjá Strætó vera búin að
vera í lamasessi undanfarna mánuði
og að engin farsæl lausn sé í sjón-
máli. Starfsfólk sé orðið langþreytt
á ástandinu og nú sé komið að ein-
hvers konar aðgerðum. Hermann
Guðmundsson, þjónustufulltrúi hjá
Félagi iðn- og tæknigreina, staðfest-
ir þetta í samtali við DV. Hann seg-
ir nýlega ráðinn launafulltrúa hjá
Strætó gera alltof mörg
mistök við útreikning
launa og þá hafi Strætó
tekið í notkun nýtt
launakerfi og tímakerfi
um áramótin sem hafi
heldur ekki virkað sem
skyldi. Jóhannes Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Strætó, segir að um
einstaka tilfelli sé að ræða sem hafi
strax verið leiðrétt.
Sameinast í mótmælaaðgerðir
DV hefur rætt við tvo starfsmenn á
verkstæðinu sem báðir hafa sömu
sögu að segja. Yfirvinna sé ekki greidd
og erfitt hafi reynst að fá mistökin
leiðrétt. Þá hafi stórhátíðarkaup ver-
ið alltof lágt, sumir séu látnir borga
tvöfalt fyrir matinn í mötuneytinu á
meðan aðrir séu rukkaðir fyrir mat
þrátt fyrir að þeir nýti sér ekki mötu-
neytið. „Við fáum alltaf sömu svör.
Þetta sé allt rétt reiknað og eftir kjara-
samningi. Svo er bara ekkert gert í
þessu. Um hver mánaðamót verða
launin alltaf vitlausari og vitlausari,“
segir annar starfsmaður á verkstæði
Strætó. Þá segir hann það liggja í loft-
inu að starfsmenn fari í einhverjar
mótmælaaðgerðir. „Trúnaðarmenn
starfsmanna á verkstæði, vagnstjóra
og trúnaðarmenn starfsmanna á
þvottastöðinni vilja fara í sameigin-
legar aðgerðir til þess að mótmæla
ástandinu,“ fullyrðir hann. Vandamál-
ið sé því ekki bundið við starfsmenn
á verkstæði heldur hafi aðrir starfs-
menn Strætó einnig fengið vitlaust út-
reiknuð laun. Hann
segist gera ráð fyr-
ir því að fyrstu skref
starfsmanna á verk-
stæðinu verði vænt-
anlega að hætta að
vinna yfirvinnu.
„Við þurfum að
vinna á laugardög-
um og þurfum oft að
mæta klukkan fimm
á morgnana áður
en allir hinir mæta.
Á þessum tímum er
alltaf mest að gera. Á
morgnana erum við
að gera við bíla sem
komu bilaðir úr akstri
kvöldið áður. Ef ekki er gert við þá á
morgnana fer ekki allur bílaflotinn út
þegar akstur hefst.“-
Síendurtekin mistök
Í nóvember sagði DV frá því að yfir
hundrað starfsmenn hjá Strætó
hefðu skrifað undir undirskriftalista
þar sem tilfærslu Guðmundar Sig-
urjónssonar, æviráðins launafull-
trúa, var harðlega mótmælt. Lýstu
þeir jafnframt áhyggjum yfir því að
væntanlega væru vandræði varð-
andi launauppgjör því verið væri að
bola út sérþekkingu á flóknu vakta-
kerfi. Guðmundur hefur starfað hjá
Strætó í yfir fjörutíu ár, þar af í tæp-
lega tuttugu ár sem launafulltrúi.
Hann er með æviráðningu og því
ekki hægt að segja honum upp störf-
um. Í dag sinnir Guðmundur eftirliti
og viðhaldi á biðskýlum.
Samkvæmt Hermanni Guð-
mundssyni, þjónustufulltrúa hjá Fé-
lagi iðn- og tæknigreina, fóru kvart-
anir um villur í launaútreikningi að
berast stéttarfélaginu um leið og
nýr launafulltrúi tók við í nóvem-
ber. „Þetta mál er löngu komið inn
á okkar borð og við erum búin að
tala við launafulltrúana og deildar-
stjóra, sem eru oftar en einu sinni
búnir að gera leiðréttingar. Það sem
virðist vera að gerast hjá Strætó er
að þeir eru að skipta um launakerfi,
tímakerfi og eru með nýlega ráðinn
launafulltrúa sem, því miður, ger-
ir alltof mikið af mistökum að okkar
mati. Þetta virðist vera síendurtekið
og það koma upp ný og ný atriði um
hver mánaðamót,“ segir Hermann.
Hann tekur hins vegar ekki undir orð
starfsmanna um að erfitt hafi reynst
að fá mistökin leiðrétt. Þvert á móti
sé fullur vilji hjá stjórnendum Strætó
að leiðrétta þau sem fyrst. „Get-
an virðist hins vegar ekki vera nógu
mikil til þess að halda þessu í lagi,“
bætir hann við.
Ekki mörg tilvik
Trúnaðarmenn Strætó funduðu með
stéttarfélaginu á föstudag. „Niður-
staðan er sú að við munum óska
eftir fundi með framkvæmdastjóra
vegna þessa máls,“ segir Hermann.
„Við munum ræða við nýjan fram-
kvæmdastjóra um hvort að þessu fari
nú ekki að linna og starfsmenn fari
að fá sín laun með eðlilegum hætti.“
Jóhannes Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Strætó, segist kann-
ast við málið og tengir það við upp-
töku nýs launakerfis. Hann vill ekki
tengja málið við nýjan launafulltrúa
hjá Strætó. „Það hefur í einhverj-
um tilvikum komið fyrir að matará-
skriftir hafa farið á ranga aðila. Það
er að sjálfsögðu leiðrétt um leið og
það kemur upp. Varðandi yfirvinnu
og annað þá vil ég nú ekki meina að
við höfum verið að snuða einn eða
neinn heldur hefur í einhverjum til-
vikum yfirvinna ekki skráðst að fullu.
En það hefur þá líka verið leiðrétt,
jafnvel samdægurs,“ segir Jóhannes,
sem segir Strætó nú vinna að því að
koma málinu í gott lag. „En þetta eru
ekki mörg tilvik sem ég kannast við.
Þetta er ekki að koma fyrir hjá hverj-
um einasta starfsmanni, mánuð eftir
mánuð.“ n
„Um hver
mánaða-
mót verða launin
alltaf vitlausari
og vitlausari.
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
n Fá ekki greidda yfirvinnu n Ofrukkaðir um mat n Hóta aðgerðum
Vikublað 18.–20. nóvember 2014
6 Fréttir
Æviráðinn launafulltrúi
þrífur biðskýli Strætós
n Vagnstjórar mótmæla óeðlilegri starfsmannaveltu n Söfnuðu yfir hundrað undirskriftum
E
nn er mikill urgur meðal
starfsmanna Strætós. Vagn-
stjórar hafa lýst yfir áhyggj-
um yfir óeðlilegri starfs-
mannaveltu hjá fyrirtækinu
en yfir hundrað manns skrifuðu und-
ir undirskriftalista þar sem tilfærslu
æviráðins launafulltrúa var harðlega
mótmælt. Launafulltrúinn sinnir
nú meðal annars viðhaldi á biðskýl-
um. Þá lagði bæjarfulltrúi Kópavogs-
bæjar í síðustu viku fram fyrirspurn
varðandi ráðningu Guðrúnar Ágústu
Guðmundsdóttur til Strætós. Staða
hennar var ekki auglýst og þá tel-
ur bæjarfulltrúi Kópavogsbæjar það
stríða gegn siðareglum að fyrrver-
andi stjórnarformaður Strætós taki
við starfi hjá fyrirtækinu. Guðrún
sinnir nú meðal annars upplýsinga-
gjöf til fjölmiðla en þess má geta að
í síðasta mánuði var upplýsingafull-
trúi Strætós leystur frá störfum. Að
auki lögðu borgarfulltrúar Fram-
sóknar fram tillögu á borgarráðs-
fundi síðastliðinn fimmtudag um
að segja upp ráðningarsamningi við
Reyni Jónsson, framkvæmdastjóra
Strætós bs.
Sinnir viðhaldi á biðskýlum
Á stjórnarfundi Strætós 5. nóvember
síðastliðinn var stjórnarformanni af-
hentur undirskriftalisti þar sem um
hundrað vagnstjórar mótmæltu til-
færslu Guðmundar Sigurjónsson-
ar launafulltrúa í starfi. Guðmundur
hefur starfað hjá Strætó í yfir fjöru-
tíu ár, þar af í tæplega tuttugu ár sem
launafulltrúi. Hann er með æviráðn-
ingu og því ekki hægt að segja honum
upp störfum. Í dag sinnir Guðmund-
ur eftirliti og viðhaldi á biðskýlum.
Starfsmenn lýstu yfir óánægju með
þessa tilfærslu í starfi og sömuleiðis
áhyggjum yfir því að væntanleg væru
vandræði varðandi launauppgjör þar
sem verið væri að bola út sérþekk-
ingu á flóknu vaktakerfi. Líkt og DV
hefur fjallað um komu upp mistök í
launagreiðslum um síðustu mánaða-
mót, þar sem nokkrir starfsmenn
fengu ekki greidd út grunnlaun. Sam-
kvæmt heimildum DV var staða Guð-
mundar auglýst laus til umsóknar,
þrátt fyrir að hann hefði sinnt henni
í tæp 20 ár. Mat Strætós var að hann
hefði ekki nægilega menntun til að
sinna starfinu, samkvæmt heimild-
um DV.
„Það voru gildar og góðar ástæður
fyrir þessari breytingu,“ segir Reynir
Jónsson, framkvæmdastjóri Strætós
bs., um tilfærslu Guðmundar. Að öðru
leyti segist hann ekki geta tjáð sig um
málefni einstakra starfsmanna. Sjálfur
segist hann ekki hafa séð undirskrifta-
listann sem um ræðir og geti því ekki
tjáð sig um hann. „Það getur vel ver-
ið að einhverjir starfsmenn telji þetta
ósanngjarnt, ég veit það ekki, en ég hef
bara ákveðnar, góðar og gildar ástæð-
ur fyrir því að taka svona ákvörðun.“
Áhyggjur starfsmanna hafa einnig
verið yfir, að þeir telja, óeðlilegri starfs-
mannaveltu í yfirstjórn fyrirtækisins.
Á tæplega einu og hálfu ári hafi til
dæmis verið fjórir starfsmannastjór-
ar hjá fyrirtækinu, samkvæmt heim-
ildum DV. Þá herma heimildir DV að
starfsmenn séu með í burðarliðnum
undirskriftasöfnun á netinu þar sem
skorað er á stjórn Strætós bs. að leysa
Reyni Jónsson undan störfum, líkt og
borgarfulltrúar Framsóknar leggja til.
Stjórn tekur ekki afstöðu
DV greindi frá því í lok október
að fjöldi kvartana hefði borist til
stéttarfélagsins vegna framkomu
framkvæmdastjóra við starfsfólk.
Bryndís Haraldsdóttir, stjórnarfor-
maður Strætós, segir þessar kvart-
anir ekki hafa verið formlega teknar
til umræðu af hálfu stjórnar.
Í tillögu borgarfulltrúa Fram-
sóknar kemur fram að Reynir hafi
farið út fyrir valdsvið sitt er hann
festi kaup á bifreið til eigin nota án
heimildar stjórnar til slíks, en DV
greindi fyrst frá kaupunum í lok
október síðastliðnum. Í ljósi þess
trúnaðarbrests sé honum ekki leng-
ur stætt á að gegna stöðu fram-
kvæmdastjóra áfram. Reynir neitaði
að tjá sig um málið við DV þegar eft-
ir því var leitað og þá hafði Bryndís
ekki heyrt af tillögunni þegar blaða-
maður sló á þráðinn til hennar. „Við
munum örugglega ekki taka afstöðu
til tillögu einstakra bæjarfulltrúa í
sveitarfélögum. Við verðum bara að
horfa heilt yfir á hagsmuni fyrirtæk-
isins og Reynir hefur staðið sig vel
hingað til sem framkvæmdastjóri.
Ég sé ekki neina ástæðu til að leysa
hann frá störfum þó svo að það hafi
komið upp eitthvað vandamál varð-
andi þetta bílamál,“ segir Bryndís.
Umdeild ráðning
Á bæjarráðsfundi í Kópavogi á
fimmtudag lagði Karen Elísabet
Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi fyr-
ir Sjálfstæðisflokk, fram fyrir-
spurn varðandi ráðningu Guðrún-
ar Ágústu Guðmundsdóttur hjá
Strætó bs. Guðrún Ágústa er fyrr-
verandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar-
bæjar og stjórnarformaður Strætós.
Þess má geta að siðareglur bæjar-
fulltrúa og stjórnenda í Kópavogi
hefðu meinað viðkomandi að taka
við þessu starfi, ef viðkomandi væri
bæjarfulltrúi eða fyrrverandi for-
maður stjórnar Strætós. Í siðaregl-
um segir meðal annars: „Kjörnir
bæjarfulltrúar skulu ekki í störfum
sínum leita eftir starfslegum ávinn-
ingi í framtíðinni, meðan þeir eru
við störf eða eftir að þeir hafa látið af
störfum til dæmis í; opinberri stofn-
un eða einkafyrirtæki sem þeir hafa
haft eftirlit með í störfum sínum.“
Þess ber að geta að siðareglur kjör-
inna fulltrúa hjá Hafnarfjarðarbæ
innihalda ekki sambærilega klausu.
„Starfið hennar var ekki auglýst
vegna þess að það urðu ákveðnar
tilfærslur og breytingar hér á þess-
um málaflokki,“ segir Reynir í sam-
tali við DV. „Við réðum Guðrúnu
bara með tímabundinni ráðningu
til eins árs. Flóknara er það ekki.“
Ráðgjafarfyrirtæki
séð um stefnumótun
Í tilkynningu til starfsmanna
Strætós segir að Guðrún muni
sinna sérstökum verkefnum er lúta
að stefnumótun og samfélagsá-
byrgð og upplýsingamiðlun þessara
málaflokka. Þessi starfslýsing vek-
ur athygli, sérstaklega vegna þess
að ráðgjafarfyrirtækið Expectus ehf.
hefur nú um hríð fengið greiðslur
frá Strætó fyrir ráðgjöf í stefnumót-
un. Reynir staðfesti þetta í samtali
við DV. „Þeir eru í raun ráðgjafar í
að leiða ferlið. Þeir leiða okkur og
stjórnina og alla hagsmunaaðila í
gegnum ákveðna umræðu og halda
utan um þetta.“ Reynir segir hlut-
verk Guðrúnar jafnframt vera að
halda utan um þau atriði sem snúi
að því að miðla því sem kemur út úr
þessu stefnumótunarferli. „Hún er
ekkert að vinna að stefnumótun per
se sko,“ segir Reynir.
DV sendi fyrirspurn á Strætó bs.
þar sem spurt er hve mikið Strætó
bs. hafi greitt fyrir þjónustu frá ráð-
gjafarfyrirtækinu Expectus á undan-
förnum árum. Einnig óskaði DV eft-
ir upplýsingum um hvort Strætó
bs. hafi keypt ráðgjafarþjónustu
frá fleiri fyrirtækjum. Strætó hefur
greitt ráðgjafarfyrirtækinu Expectus
ehf. rúmar þrjár milljónir króna fyrir
verk efni. Varðandi það hvort önnur
fyrirtæki hefðu verið ráðin í verkefni
hjá Strætó fengust engin svör og vís-
aði Guðrún Ágústa í upplýsingalög.
Sinnir upplýsingagjöf til fjöl-miðla
Kolbeinn Óttarsson Proppé, upp-
lýsingafulltrúi Strætós, var leystur
undan störfum frá og með 1.
október síðastliðnum. Kolbeinn
vildi ekki tjá sig um starfslokin við
DV þegar eftir því var leitað. Guð-
rún Ágústa sinnir nú meðal annars
upplýsingagjöf til fjölmiðla. Má þá
ekki segja að hún sé í raun sest í stól
upplýsingafulltrúa? „Nei, við lít-
um ekki þannig á það,“ segir Reynir.
Hann segir að verkefni upplýsinga-
fulltrúa hafi verið slitin niður í þrjá
parta. Hluti hafi farið undir mark-
aðsdeildina, hluti undir mannauðs-
sviðið og Guðrún sinni þriðja hlut-
anum sem lýtur að stefnumótun og
samfélagslegri ábyrgð.
En stendur þá ekki til að auglýsa
starf upplýsingafulltrúa laust til um-
sóknar? „Það hefur engin ákvörðun
verið tekin um það. Þetta var bara
leyst svona. Þetta varð niðurstaðan
hér í framkvæmdastjórnarhópnum
að fara þessa leið. Þá var það bara
gert,“ segir Reynir. n
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is „Það getur vel verið
að einhverjir starfs-
menn telji þetta ósann-
gjarnt, ég veit það ekki.
Umdeild ráðning Guðrún Ágústa Guð-
mundsdóttir, fyrrverandi stjórnarformaður Strætós, var ráðin til að sinna verkefnum er lúta að stefnumótun og samfélagsábyrgð.
„Reynir hefur staðið sig vel“ Bryndís Haraldsdóttir, stjórnarformaður Strætós,
segir stjórnina ekki taka afstöðu til tillögu
borgarfulltrúa Framsóknar í Reykjavík.
Óánægja meðal starfsmanna
Starfsmenn Strætós ætla að hefja undir-
skriftasöfnun á netinu þar sem skorað er
á stjórn Strætós að leysa Reyni Jónsson
framkvæmdastjóra undan störfum.
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100 Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100 Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665 Meba Kringlunni s: 553-1199Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5
18. nóvember 2014
LaunamáL Strætó í
LamaSeSSi
Framkvæmdastjórinn
Jóhannes Rúnarsson segir
að um einstaka tilfelli sé að
ræða sem hafi strax verið
leiðrétt. mynd Sigtryggur ari