Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2015, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2015, Blaðsíða 23
Umræða Stjórnmál 23Vikublað 10.–12. febrúar 2015 Furða sig á ummælum fjármálaráðherra n Langvinn óvissa skattrannsóknarstjóra n Óvíst um kaup á gögnum um undanskot í skattaskjólum T afir á því að skattrannsóknar- stjóri nýti sér heimild til kaupa á gögnum um undan- skot í skattaskjólum erlend- is eru orðnar að sjálfstæðu máli. Nær ár er nú síðan að spurð- ist að skattrannsóknarstjóra stæði til boða að kaupa gögn sem kæmu upp um undanskot íslenskra skattborgara í skattaskjólum erlendis. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, lýsti því nú síðast um helgina að málið væri á ábyrgð Bryndísar Kristjánsdóttur skattrann- sóknarstjóra. Hann vill einnig vita eitthvað um seljanda gagnanna en hefur um leið áhyggjur af vitnavernd. Nýjasta dæmið Á sama tíma birtast fréttir af því að stærsti banki Bretlands, HSBC, að- stoðaði vellauðuga viðskiptavini sína við að koma gríðarlegum upphæð- um undan skatti. Upplýsingar sem þar um ræðir komust í hendur uppljóstrarans Her- ve Falcini árið 2007 en hann hafði tekið þær ófrjálsri hendi frá HSBC sem starfsmaður bankans í Genf. Um er að ræða upplýsingar um viðskipti yfir 100 þúsund viðskiptavina HSBC hvaðanæva að úr heiminum. Umrædd gögn hafa nú komist í hendur rannsóknarblaðamanna og stórra fjölmiðla víða um heim, svo sem Guardian, Le Monde, BBC. Birgitta Jónsdóttir, Pírataflokkn- um, furðar sig á töfunum og ætlar að biðja um fund í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis um málið. Augljóslega sé um einhverja vangetu opinbera kerfisins til að leiða málið til lykta. „Fjármálaráðherra skellir skuldinni á skattrannsóknarstjóra og heldur því fram að ábyrgðina sé að finna þar, á því að ekki sé búið að kaupa gögn um íslenska skattrgreið- endur með fé í skattaskjólum ... Það eina sem stendur í veginum er póli- tískur vilji til að kaupa gögnin,“ seg- ir í tilkynningu frá stjórnmálaaflinu Dögun, sem lýsir stuðningi við skatt- rannsóknarstjóra en jafnframt, að boltinn sé hjá Bjarna. Verður greiðslan einnig skattlögð? Pétur Blöndal, Sjáflstæðisflokki, tel- ur að tæknileg atriði hafi tafið mál- ið. „Ég er í fyrsta lagi á móti því að menn svíki undan skatti. Ég er líka á móti því að menn steli. Þetta eru væntanlega stolin gögn. Svo er vandi að ráða fram úr hvernig greitt verður fyrir upplýsingarnar og hvort binda eigi greiðslur við árangur af kaupum á gögnunum sem ég tel skynsamlegt að gera,“ sem Pétur. „Þjóðverjar fóru þá leið að þeir sem að óskuðu gátu kært sjálfa sig eða framtal sitt og mér skilst að það hafi komið talsvert meira út úr því en gögnin sjálf skiluðu. Það gæti verið skynsamlegt fyrir okkur að fara svip- að að en til þess þarf lagabreytingu. Þá eru menn sektaðir en ekki ákærðir og sakfelldir fyrir skattalagabrot.“ Pétur spyr einnig hvað verði um greiðsluna fyrir slík gögn; hvort hún verði skattskyld eða hvort hún verði að vera svört. Þá viti enginn hvort greiðslan fari öll á réttan stað eða hvort milliliðir komi til skjalanna. „Mér finnst að það þurfi að minnsta kosti að koma fram að eitthvað sé í gögnunum sem nýtist skattinum.“ Á það er að líta að skattrann- sóknarstjóri hafði fengið sýnishorn af gögnunum sem bendi til þess að fýsi- legt væri fyrir skattayfirvöld að kom- ast yfir öll gögnin. Vill vísa málinu til eftirlitsnefndar Birgitta Jónsdóttir, Pírataflokknum, segir að tilefni sé fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis að taka mál- ið fyrir, „það er greinilega eitthvað að stjórnsýslunni ef fjármálaráðherra treystir sér ekki til að taka ábyrgð á þessu máli. Það væri gagnlegt að fá þetta tekið fyrir í nefndinni til þess að fá svör um það hvar hnífurinn stend- ur í kúnni. Eitt fráleitasta sem ég hef heyrt lengi er að fjármálaráðherra þurfi að vita hver seljandi gagnanna sé. Mér finnst þetta hálfgerður mol- búaháttur. Ef vilji er til að leysa mál- ið þá finnst lausn. Mér finnst fjár- málaráðherra draga lappirnar í þessu máli. Hann þarf að taka af allan vafa um þetta. Hann getur ekki skýlt sér á bak við skattrannsóknarstjóra. Það væri mjög neyðarlegt ef það spyrðist að íslensk yfirvöld heyktust á því að kaupa slík gögn og almenningur yrði að safna fyrir þeim.“ Skrítið að fara í fjölmiðla „Mér finnst skrítið að fjármálaráð- herra fari í fjölmiðla með þetta mál og senda þar skattrannsóknarstjóra tóninn,“ segir Steingrímur J. Sigfús- son, þingmaður VG. „Ég hélt að þetta væri mál sem ráðherrann og skatt- rannsóknarstjóri leystu sín á milli. Ég held að það sé ekki rétta leiðin að fara að kasta boltanum á milli ráðuneyt- isins og embættisins í fjölmiðlum. Mér finnst þetta mjög sérkennilegt. Mín reynsla sem ráðherra segir mér að vænlegra sé að leysa málin við viðkomandi embætti beint og milli- liðalaust frekar en að koma skilaboð- um með þessum hætti í gegnum fjöl- miðla.“ Steingrímur segir að skattayfir- völd hafi fullan hug á því að fá þau gögn sem þau geti fengið. Þjóðverj- ar hafi farið þá leið að kaupa gögn til þess síðan að geta meðhöndlað þau frekar. „Það er gagnlegt fyrir skatt- inn að fá slík gögn og síðan hefur hann sínar leiðir til að vinna úr þeim. Menn eiga að ganga í að leysa mál sem þetta ef vilji er þá til þess.“ HSBC-málið holl áminning Það kemur Guðmundi Steingríms- syni, Bjartri framtíð, mjög á óvart að skattrannsóknarstjóri hafi ekki fengið umrædd gögn í hendur um fé í skatta- skjólum. „Tíðindin af athæfi HSBC bankans ættu að vera áminning um það hve mikilvægt er að yfirvöld fái slík gögn í hendur. Við í stjórnarand- stöðunni lögðum til í umræðunni um fjárlögin að heimild til kaupa á þess- um gögnum færi inn í fjárlögin enda mætti gera ráð fyrir tekjum í ríkissjóð á móti. Það er tími til kominn að fara virkilega ofan í saumana á undan- skotum. Við höfum átakanleg dæmi um slík í okkar samfélagi. Fólk á að borga sína skatta og ég sé ekki betur en að stór fyrirtæki séu í dagsbirtu að svíkja undan skatti. Það þarf að ganga í þetta mál.“ Hissa á ummælum fjármálaráðherra Oddný G. Harðardóttir, Samfylk- ingunni, kveðst ekki átta sig á mál- inu. „Hvernig stendur á því að fjár- málaráðherra, yfirmaður skattamála í landinu, getur ekki haft samráð við skattrannsóknarstjóra um að ná þessum gögnum heim? Hann lætur eins og hann beri enga ábyrgð á málinu en varp- ar henni á herðar skattrannsóknar- stjóra. Þetta er mikið hagsmunamál fyrir ríkissjóð. Ef skattrannsóknar- stjóri þarf einhvern stuðning til þess að ná þessu heim á að veita þann stuðning. Ég er því eiginlega bæði hissa og orðlaus yfir framgöngu ráð- herrans.“ Verðum að gera bragarbót „Ég endurtek það sem ég hef áður sagt að við eigum að fara sömu leið og Þjóðverjar og Bandaríkjamenn hafa farið,“ segir Frosti Sigurjóns- son, Framsóknarflokki. „Þeir og Ástralir hafa nýtt sér allar þær upp- lýsingar sem staðið hafa þeim til boða. Ég veit ekki hvort illa fengin gögn geti spillt stöðu mála fyr- ir rétti. Ég treysti því að skattrann- sóknarstjóri sýni skynsemi í þeim málum.“ Frosti bendir á að til séu aðr- ar leiðir til að komast yfir mikilvæg gögn, eins og í gegnum samvinnu við aðrar þjóðir um að skiptast á upplýsingum. „Svo er hitt að í heildina verðum við að gera ein- hverja bragarbót á þessum málum í heild. Þjóðverjar hafa til dæmist sett út gulrót og heitið sakaruppgjöf þó með sektum og öðrum álögum ef menn gefa sig sjálfviljugir fram. Menn sleppa við aðrar refsingar. En á móti þarf að herða reglur þannig að fastar sé tekið á mönnum við ít- rekuð brot. Norðmenn og fleiri hafa reynt þetta með góðum árangri. Við ættum að drífa í þessu.“ Þess má geta að DV náði ekki sambandi við Bryndísi Kristjáns- dóttur skattrannsóknarstjóra þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í gær. n Jóhann Hauksson johannh@dv.is Tortola Ein forsenda kaupa á illa fengn- um upplýsingum um undanskot er að upphæðin skili sér margfaldlega í ríkissjóð. Hver ber ábyrgð? Bjarni Benediktsson hefur þótt koma sér undan ábyrgð með því að vísa á skattrannsóknarstjóra um kaup á gögnum um undanskot í skattaskjólum. Fordæmin allt í kring Nær ár er síðan spurðist frá Bryndísi Kristjánsdóttur skatt- rannsóknarstjóra að til boða stæði að kaupa gögn um undanskot Íslendinga erlendis. Steingrímur J. Sigfússon „Ég held að það sé ekki rétta leiðin að fara að kasta boltanum á milli ráðuneytisins og embættisins í fjölmiðlum.“ Birgitta Jónsdóttir „Eitt fráleitasta sem ég hef heyrt lengi er að fjármálaráðherra þurfi að vita hver seljandi gagnanna sé.“ Guðmundur Steingrímsson „Tíðindin af athæfi HSBC bankans ættu að vera áminning um það hve mikilvægt er að yfirvöld fái slík gögn í hendur.“ Oddný G. Harðardóttir „Bjarni lætur eins og hann beri enga ábyrgð á málinu en varpar henni á herðar skattrannsóknar- stjóra.“ Frosti Sigurjónsson „Ég veit ekki hvort illa fengin gögn geti spillt stöðu mála fyrir rétti. Ég treysti því að skattrannsóknarstjóri sýni skynsemi í þeim málum.“ Pétur Blöndal „Mér finnst að það þurfi að minnsta kosti að koma fram að eitthvað sé í gögnunum sem nýtist skattinum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.