Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2015, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2015, Blaðsíða 36
Vikublað 10.–12. febrúar 201536 Fólk Stjörnurnar fjölga sér Fréttir af barneignum eru alltaf mikið gleðiefni. Lífið hjá þessum frægu stjörnum er um það bil að breytast til frambúðar, sérstaklega hjá þeim sem eru að eignast sitt fyrsta barn. Tímaritið Glamour tók saman lista yfir ófrískar stjörnur.  Nýr maður, nýtt barn Leikkonan Liv Tyler á von á sínu öðru barni með Dave Gardner en um hans fyrsta barn er að ræða. Liv á fyrir níu ára son, Milo, með fyrrverandi eiginmanni sínum, rokkaranum Royston Langdon.  Benni pabbi Leikarinn Benedict Cumberbatch úr The Imitation Game og eiginkona hans, söng- og leikkon- an Sophie Hunter, eiga von á sínu fyrsta barni. Að sögn talsmanns hjónanna eru þau yfir sig ánægð með það.  Fjölgun hjá frægu pari Stórstjörnurnar Jessica Biel og Justin Timberlake verða einnig foreldrar á árinu. Tónlistar- maðurinn staðfesti fréttirnar á Instragram-síðu sinni þegar hann þakkaði fyrir afmæliskveðjurnar í tilefni af 34 ára afmæli sínu. „Ég mun fá bestu gjöf í heimi á árinu. Get ekki beðið.“  Annað barn Shakiru Tónlistarkonan Shakira og kærastinn hennar, knattspyrnumaðurinn Gerard Pique, eiga von á sínu öðru barni saman. Shakira viðurkenndi óléttuna í viðtali við spænskt tímarit og sagði einnig frá á Facebook-síðu sinni.  Nýja stelpan mamma Leik- konan Zooey Deschanel úr New Girl á von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum Jacob Pechenik. Í viðtali við People sagðist leikkonan vera í skýjunum með væntanlegan erfingja. „Við getum varla beðið eftir að hitta hann.“  Keira er ófrísk Talsmaður Keiru Knightley hefur staðfest þær sögusagnir að leik- konan sé ófrísk. Keira, sem leikur meðal annars í The Imitation Game, á von á sínu fyrsta barni með tónlistarmannin- um James Righton.  Krúttleg tilkynning Söngkonan Carrie Underwood og eiginmaður henn- ar Mike Fisher sögðu frá væntanlegum erfingja á Instragram-síðu hennar á afar krúttlegan máta. Á myndinni sést Carrie halda á tveimur hundum. Annar þeirra var klæddur í föt með áletruninni „Ég er að verða stóri bróðir“ og hinn með áletr- uninni „Ég er að verða stóra systir“.  Fjórða barnið Leikarinn Stanley Tucci úr Hunger Games og eiginkona hans Felicity Blunt eiga von á sínu fyrsta barni saman á árinu. Leikarinn sagðist yfir sig spenntur í viðtali við US Weekly en um hans fjórða barn er að ræða. Tucci á þrjú börn úr fyrra hjónabandi en eiginkona hans lést skyndilega árið 2009.  Prins eða prinsessa Kate Middleton og Vilhjálmur Bretaprins munu eignast sitt annað barn á árinu. Clarence House sagði frá fréttunum á Twitter. „Hertogahjónin af Cambridge til- kynna með gleði í hjarta að þau eiga von á sínu öðru barni. Drottningin og meðlimir beggja fjölskyldna eru í skýjunum með væntanlegan erfingja.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.