Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2015, Síða 36
Vikublað 10.–12. febrúar 201536 Fólk
Stjörnurnar
fjölga sér
Fréttir af barneignum eru alltaf mikið gleðiefni. Lífið hjá þessum frægu
stjörnum er um það bil að breytast til frambúðar, sérstaklega hjá þeim
sem eru að eignast sitt fyrsta barn. Tímaritið Glamour tók saman
lista yfir ófrískar stjörnur.
Nýr
maður,
nýtt barn
Leikkonan Liv Tyler
á von á sínu öðru
barni með Dave
Gardner en um
hans fyrsta barn er
að ræða. Liv á fyrir níu
ára son, Milo,
með fyrrverandi
eiginmanni
sínum, rokkaranum
Royston Langdon.
Benni pabbi Leikarinn
Benedict Cumberbatch úr The Imitation
Game og eiginkona hans, söng- og leikkon-
an Sophie Hunter, eiga von á sínu fyrsta
barni. Að sögn talsmanns hjónanna eru þau
yfir sig ánægð með það.
Fjölgun hjá frægu pari Stórstjörnurnar
Jessica Biel og Justin Timberlake verða einnig foreldrar á árinu. Tónlistar-
maðurinn staðfesti fréttirnar á Instragram-síðu sinni þegar hann þakkaði
fyrir afmæliskveðjurnar í tilefni af 34 ára afmæli sínu. „Ég mun fá bestu
gjöf í heimi á árinu. Get ekki beðið.“
Annað barn
Shakiru Tónlistarkonan Shakira
og kærastinn hennar, knattspyrnumaðurinn
Gerard Pique, eiga von á sínu öðru barni
saman. Shakira viðurkenndi óléttuna í
viðtali við spænskt tímarit og sagði einnig
frá á Facebook-síðu sinni.
Nýja stelpan mamma Leik-
konan Zooey Deschanel úr New Girl á von á sínu fyrsta barni
með kærasta sínum Jacob Pechenik. Í viðtali við People sagðist
leikkonan vera í skýjunum með væntanlegan erfingja. „Við getum
varla beðið eftir að hitta hann.“
Keira
er ófrísk
Talsmaður
Keiru Knightley
hefur staðfest þær
sögusagnir að leik-
konan sé ófrísk.
Keira, sem leikur
meðal annars
í The Imitation
Game, á von á sínu
fyrsta barni með
tónlistarmannin-
um James Righton.
Krúttleg
tilkynning Söngkonan
Carrie Underwood og eiginmaður henn-
ar Mike Fisher sögðu frá væntanlegum
erfingja á Instragram-síðu hennar á afar
krúttlegan máta. Á myndinni sést Carrie
halda á tveimur hundum. Annar þeirra
var klæddur í föt með áletruninni „Ég er
að verða stóri bróðir“ og hinn með áletr-
uninni „Ég er að verða stóra systir“.
Fjórða barnið Leikarinn Stanley Tucci úr
Hunger Games og eiginkona hans Felicity Blunt eiga von á sínu fyrsta
barni saman á árinu. Leikarinn sagðist yfir sig spenntur í viðtali við US
Weekly en um hans fjórða barn er að ræða. Tucci á þrjú börn úr fyrra
hjónabandi en eiginkona hans lést skyndilega árið 2009.
Prins eða prinsessa Kate Middleton og
Vilhjálmur Bretaprins munu eignast sitt annað barn á árinu. Clarence
House sagði frá fréttunum á Twitter. „Hertogahjónin af Cambridge til-
kynna með gleði í hjarta að þau eiga von á sínu öðru barni. Drottningin og
meðlimir beggja fjölskyldna eru í skýjunum með væntanlegan erfingja.“