Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2015, Page 6
Vikublað 10.–12. febrúar 20156 Fréttir
Landsins
mesta úrval
Hugo Boss
úra hjá okkur
Gagnagísla-
taka færist
í aukana
Netöryggissveit Póst- og fjar-
skiptastofnunar, CERT-ÍS, var-
ar almenning og fyrirtæki við
aukinni hættu á svokallaðri
gagnagíslatöku. Þá senda glæpa-
menn hlekki eða viðhengi í
tölvuskeytum eða skilaboðum
sem, ef smellt er á, hleypa óværu
inn í viðkomandi tölvu eða smá-
tæki og dulkóðar öll gögn sem
þar er að finna. Síðan er krafist
lausnargjalds til að opna fyrir
gögnin.
Um þetta er fjallað á vefsíðu
netöryggissveitarinnar, cert.is.
„Undanfarið hefur færst mjög í
vöxt að fyrirtæki og almenning-
ur fái blekkingarskeyti í tölvu-
pósti, skilaboðum á samfé-
lagsmiðlum eða til dæmis með
SMS/MMS skilaboðum. Slík
blekkingarskeyti eru oft mjög
vel gerð og líta út fyrir að vera
frá einstaklingi eða fyrirtæki
sem móttakandi skeytisins tel-
ur sig þekkja, er í viðskiptum við
eða frá öðrum aðilum sem fólk
treystir. Þannig eykst hættan á
að viðtakandinn smelli hugs-
unarlaust á hlekki í skeytinu eða
opni viðhengi,“ segir í umfjöll-
uninni.
Hlekkur skeytisins eða
viðhengi, getur vísað á það sem
virðist í fyrstu vera sárasaklaust,
svo sem mynd, mp3-tónlist,
myndband á Youtube, zip-skrár
eða skilaboð frá til dæmis þekkt-
um banka – en er í raun allt ann-
að og hættulegra.
„Þetta er svoköll-
uð „gagnagíslataka“ (e.
ransomware) sem dulkóðar öll
þau gögn á diskadrifum sem for-
ritið nær til, þar með talið diska
í útstöðvum og diska í netþjón-
um. Lausnargjalds er krafist til
að opna aftur fyrir gögnin. Ekki
er víst að gögnin séu leyst úr
gíslingu jafnvel þótt lausnar-
gjald sé greitt,“ segir í umfjöllun
CERT-ÍS. Því er bætt við að þetta
undirstriki einnig mikilvægi
þess að eiga ætíð afrit af öllum
mikilvægum gögnum og geyma
þau utan tölvukerfisins.
Mega nota eigin
byssur í neyð
n Ráðherra birtir leyniskjöl n DV afhjúpaði vopnaeign lögreglunnar
L
ögreglumönnum er heim-
ilt að beita skotvopnum
gegn manni þegar önnur úr-
ræði eru ekki tiltæk og brýn
nauðsyn ber til þegar verjast
á árás á lögreglumenn eða þriðja að-
ila; yfirbuga og handtaka afbrota-
menn sem teljast hættulegir lífi fólks
eða öryggi ríkisins; koma í veg fyr-
ir alvarlegt ofbeldi gegn fólki eða að
verulegu tjóni sé valdið á þjóðfélags-
lega mikilvægum hagsmunum eða
stofnunum, rekstri þeirra eða starf-
semi.
Þetta kemur fram í reglum lög-
reglunnar um valdbeitingu lögreglu-
manna og meðferð og notkun vald-
beitingartækja og vopna.
Mikil leynd hefur hvílt yfir reglun-
um, en DV greindi frá því í haust að
lögreglan ætti talsvert magn af skot-
vopnum og að til stæði að koma fyr-
ir kistum í öllum lögreglubílum á
landinu þar sem geymd yrðu skot-
vopn. Byssurnar voru 150 og höfðu
verið gjöf frá norskum yfirvöldum.
Síðar kom í ljós að það var Land-
helgisgæslan sem hafði haft milli-
göngu um vopnin. Norski herinn
greindi svo íslenskum fjölmiðlum frá
því að sendar hefðu verið 250 MP5
hríðskotabyssur til landsins, 150
hefðu verið ætlaðar til lögreglunn-
ar og 100 til Landhelgisgæslunn-
ar. Reyndust Íslendingar hafa feng-
ið 330 hríðskotabyssur, vélbyssur og
árásarriffla frá Danmörku og Noregi
á liðum árum.
Ákveðið var að byssurnar 250
yrðu sendar aftur til Noregs þegar
í ljós kom að Norðmenn ætluðust
til þess að greitt yrði fyrir vopnin,
en vopn sem íslensk yfirvöld höfðu
fengið áður höfðu komið hingað
endurgjaldslaust. Byssunum hef-
ur ekki verið skilað eftir því sem DV
kemst næst og eru þær í vörslu Land-
helgisgæslunnar.
Mikilvægt að eiga vopn
Síðar var greint frá því að Jón Bjart-
marz yfirlögregluþjónn teldi mik-
ilvægt að íslenska lögreglan hefði
yfir að búa vopnum til að bregðast
við ógninni sem stafar af samtök-
um líkt og hryðjuverkasamtökun-
um ISIS og að farið hefði verið fram
á að lögreglan fengi vopn þannig að
70 hríðskotabyssum yrði dreift á lög-
reglustöðvar landsins, tvær á hverja.
Fengi lögreglan fjárveitingu fyrir því
yrðu keyptar 150 byssur en Jón taldi
þörfina vera meiri.
Reglurnar um vopnaburðinn
voru settar þann 22. febrúar árið
1999 af þáverandi dóms- og kirkju-
málaráðherra, Þorsteini Pálssyni.
Einnig hafa verið birtar reglur um
valdbeitingu handhafa lögregluvalds
hjá Landhelgisgæslu Íslands og með-
ferð og notkun valdbeitingartækja
og vopna. Þær hafa verið leynilegar,
en krafa blaðamanna um aðgang að
þeim varð til þess að nýr innanríkis-
ráðherra, Ólöf Nordal, hefur ákveðið
að birta þær.
Skjóta í fætur
Í reglunum kemur meðal annars
fram að lögreglumaður sem hefur
notað vopn, eða hótað því á að gefa
næsta yfirmanni sínum munnlega –
og síðar skriflega – skýrslu með ítar-
legum skýringum á ástæðum þess.
Einnig ber að tilkynna lögreglustjóra
um málavexti svo hægt sé að grípa til
nauðsynlegra ráðstafana, til dæmis
með því að veita sálfræðilega aðstoð
ef vopni hefur verið beitt.
Lögreglumönnum er skylt að
greina frá því að þeir séu lögreglu-
menn áður en þeir beita skotvopn-
um, verði því við komið. „Telji lög-
reglumaður að því verði við komið
og aðstæður leyfa án þess að skapa
aukna hættu fyrir hann eða aðra, skal
hann gefa þeim aðvörun sem ógn-
unin stafar frá og tilkynna að vopni
verði beitt til að framfylgja aðgerðun-
um,“ segir í reglunum. Alla jafna er
óheimilt að skjóta viðvörunarskoti
nema í undantekningartilfellum og
aðeins ef það skapar ekki hættu.
Beiti lögreglan skotvopni gegn
manni á að miða á stærsta hluta þess
líkamshluta sem er lögreglumann-
inum sýnilegur. Honum ber, ef það
skapar ekki hættu, að takmarka skað-
ann sem hlýst af notkun skotvopns-
ins „svo sem með því að skjóta í fætur
viðkomandi“, segir í reglunum.
Í reglunum kemur fram að í
neyðartilfellum verði lögreglumenn
að hafa aðgang að lágmarksfjölda
skotvopna til að vopna lögreglu-
menn tafarlaust. Það er einnig tek-
ið fram að þær aðstæður geti skap-
ast, sérstaklega á landsbyggðinni,
að nauðsynlegt sé að lögreglumenn
geti gripið til tiltækra vopna vegna
neyðarástands og ef langt er að sækja
vopn á lögreglustöð. Enginn vafi má
leika á því að lögreglan sé óvopn-
uð við dagleg störf og það sé aðeins
í undantekningartilfellum sem hún
vopnast. Ekki eigi að grípa til skot-
vopns fyrr en ljóst þykir að önnur úr-
ræði hafa ekki dugað.
Reglurnar eru aðgengilegar á vef
okkar, dv.is. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Undantekningarnar
Athygli vekja undantekningar á reglun-
um sem flestar snúa að nauðvörn.
n Þannig er lögreglumönnum til
dæmis óheimilt að nota eigin vopn alla
jafna, nema í neyðartilfellum.
n Þá má ekki nota úðavopn í nálægð
ungra barna nema í neyð.
n Lögreglumenn skulu ekki starfa
einir að vopnuðum aðgerðum nema í
neyðartilvikum.
n Notkun vopna er einungis heimil
eftir skipun yfirmannsins,nema í
neyðarvörn.
Þetta eru vopnin
Kylfur, gas-, skot- og sprengivopn
Landhelgisgæslan:
Með vopnum er átt við:
n Kylfur: Barefli til að yfirbuga menn
eða verjast árás.
n Úðavopn: Úðabrúsar sem innihalda
táragas (OC eða annað samkvæmt
ákvörðun forstjóra Landhelgisgæsl-
unnar) og ætlaðir eru til að yfirbuga
einstakling í návígi.
n Gasvopn: Gasbyssa, táragas eða
reykbúnaður. Einnig gasbúnaður sem
skotið er úr skotvopnum.
n Skotvopn: Skammbyssa, haglabyssa,
vélbyssa, riffill, fallbyssa.
n Sprengivopn: Sprengiefni sem notað
er sem hluti af vopnabúnaði
Landhelgisgæslunnar.
Lögreglan:
Með vopnum er átt við eftirfarandi:
n Kylfur: Barefli til að yfirbuga menn
eða verjast árás.
n Úðavopn: Úðabrúsar sem innihalda
táragas ( CS, OC eða annað samkvæmt
ákvörðun
ríkislögreglustjórans) og ætlaðir eru til
að yfirbuga einstakling í návígi.
n Gasvopn: Gasbyssa, táragas- og
reykbúnaður. Einnig gasbúnaður sem
skotið er úr
skotvopnum.
n Hvellvopn: Búnaður til að trufla og
rugla mann. Einungis til notkunar af sér-
stökum sérþjálfuðum sveitum lögreglu.
n Skotvopn: Skammbyssa, haglabyssa,
vélbyssa, riffill.
n Sprengivopn: Sprengiefni sem notað
er sem hluti af vopnabúnaði lögreglu.
Úthlutun ofangreindra vopna með
leiðbeiningum um notkun þeirra fer eftir
nánari ákvörðun ríkislögreglustjórans.
Hann gefur leiðbeiningar um nauðsyn-
legar áætlanir lögregluliða varðandi
viðbúnað með vopnum vegna sérstak-
lega alvarlegra tilvika.
Sérsveitar-
menn Hér sjást
sérsveitarmenn
að störfum.
Mynd Sigtryggur Ari
Stig valdbeitingar
1
2
3
4
5
6
7
Lögreglutök
Skipanir
Fjötrar
Lögr. hundar
Táragas
Kylfa
Skotvopn
Valdbeitingarstigi Valdbeitingin verður að vera
nauðsynleg og réttlætanleg, segir í reglum lög-
reglunnar. Úrræði lögreglumannsins og stigmögnun
aðferða er sett fram í eftirfarandi valdbeitingar-
stiga. Með lögregluhundum er átt við notkun
sérþjálfaðra hunda við valdbeitingu
gagnvart fólki. Hér sést að skotvopn
eru síðasta úrræðið í stigum
valdbeitingar.