Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2015, Blaðsíða 16
16 Fréttir Erlent Vikublað 10.–12. febrúar 2015
T
alið er að allt að einni millj-
ón farandverkamanna í
stórborginni Peking í Kína
hafist við í neðanjarðar-
byrgjum sem Maó Zedong,
formaður kínverska Kommún-
istaflokksins, lét byggja á sjöunda
og áttunda áratug liðinnar aldar.
Þar hefst fólkið við í þröngum og
gluggalausum kytrum þar sem
það ræður illa við að borga leigu í
sjálfri borginni.
Skjól fyrir hústökufólk
Ástæða þess að byrgin voru byggð
var sú að Maó vildi vernda borg-
arana fyrir óvinveittum þjóðum,
til að mynda Sovétríkjunum sem
Maó óttaðist að myndu á einhverj-
um tímapunkti ráðast inn í landið.
Á þessum tíma stóð Kalda stríðið
sem hæst og fór svo að tuttugu þús-
und neðanjarðarbyrgi voru byggð,
en þangað áttu borgarbúar að geta
leitað ef árás yrði gerð. Þegar Deng
Xiaoping varð meginleiðtogi Kína
eftir fráfall Maós árið 1976 var hætt
við byggingu neðanjarðarbyrgj-
anna og urðu þau að eins konar
skjóli fyrir hústökufólk. Á tíunda
áratugnum brugðu yfirvöld á það
ráð að setja byrgin á leigumarkað
og var þeim breytt í ódýrar og til-
tölulega hentugar íbúðir fyrir fá-
tæka íbúa borgarinnar.
Sex þúsund krónur á mánuði
Breska blaðið Daily Mail fjallaði
um byrgin á dögunum. Í umfjöll-
uninni kom fram að hægt sé að
leigja herbergi neðanjarðar í Pek-
ing fyrir upphæð sem samsvar-
ar rúmum sex þúsund krónum á
mánuði. Í byrgjunum búa einna
helst þeir sem flutt hafa til borgar-
innar í leit að atvinnutækifærum
og betra lífi. Zhang Xi er einn
þeirra sem búa í byrgjunum und-
ir borginni en hann hefur lengi
gengið með þann draum að ger-
ast leikari. Kvikmyndagerðarmað-
urinn Sim Chi Yin, sem tók mynd-
irnar sem fylgja umfjölluninni,
gerði stuttmynd um lífið í byrgj-
unum, en myndin kom út í síðustu
viku. Í myndinni er rætt við Xi og
segir hann meðal annars að for-
eldrar hans hafi lagt hart að hon-
um að gerast lögreglumaður. Hann
hafi þó verið staðráðinn í að elta
draum sinn um að gerast leikari.
Sú ákvörðun, að flytja í byrgin, hafi
hjálpað honum því þó að tekjurn-
ar séu litlar sé leigan viðráðanleg.
„Þegar faðir minn kom og heim-
sótti mig fór hann að gráta,“ segir
hann. Hann segir þó að það skipti
hann engu máli hvar hann býr.
Þakklátir
Í myndinni var einnig rætt við
Chen Laxiu, fimmtuga kona frá
kolavinnslubænum Liupanshui.
Hún flutti til borgarinnar með
sonum sínum í leit að betri at-
vinnutækifærum. Hún býr í byrgj-
unum undir stórborginni. Meðal
annarra sem þar búa má nefna
Zhang Xinwen sem flutti til borg-
arinnar til að reyna fyrir sér sem
listamaður. Zhang útskrifaðist
úr listaháskóla í Hubei-héraði. Í
umfjöllun Daily Mail kemur fram
að þó að flestir íbúa byrgjanna
vilji á endanum flytja í stærri og
hentugri íbúðir ofanjarðar virð-
ist þeir ekki óhamingjusamir í
byrgjunum. Þvert á móti virðast
þeir þakklátir fyrir það að eiga þak
yfir höfuðið. n
n Maó Zedong lét byggja byrgin 1969 n Hentug fyrir efnalitla íbúa n Ein milljón manna hefst þar við
Búa í byrgjum
undir borginni
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Snyrtilegur
til fara He Bing
sést hér í herbergi
sínu. Myndin er
tekin áður en hann
þreytti próf til að
verða trygginga-
sölumaður.
Mynd: SiM Chi yin
Eitt og hálft ár
Jiang Ying og kærasti
hennar Li Ying hafa
búið neðanjarðar í
eitt og hálft ár. Jiang
vinnur á bar en Ying á
skrifstofu. Þau ráða
illa við leiguverðið í
borginni. Mynd: SiM Chi yin
Kokkar Niu Song,
33 ára, and eiginkona
hans, Zhao Ansheng,
32 ára, eru kokkar
í Peking. Þau búa
neðanjarðar til að
spara peninga eins og
margir aðrir.
Mynd: SiM Chi yin
neðanjarðar Mikill
fjöldi fólks hefst við í
neðanjarðarbyrgjun-
um undir Peking. Þar
er hægt að fá leigt
herbergi fyrir upphæð
sem samsvarar sex
þúsund krónum á
mánuði. Mynd: SiM Chi yin
„Þegar faðir minn
kom og heimsótti
mig fór hann að gráta.
– Zhang Xi
Vill verða
leikari Zhang
Xi á sér þann
draum að
verða leikari.
Foreldrar hans
vildu að hann
yrði lögreglu-
maður.