Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2015, Qupperneq 17
Fréttir Erlent 17Vikublað 10.–12. febrúar 2015
B
örn sem meðlimir Íslamska
ríkisins (ISIS) hafa rænt og
haldið föngnum eru seld í
kynlífsþrælkun, notuð í sjálfs-
morðssprengjuárásir og sem
mennskir skildir til að verja hernaðar-
lega mikilvæg skotmörk fyrir árásum
andstæðinga. Önnur börn eru ýmist
krossfest eða grafin lifandi. Þetta er
meðal þess sem fram kemur í skýrslu
nefndar Sameinuðu þjóðanna um
réttindi barna sem kynnt var í síðustu
viku.
Umfangsmikið vandamál
Þar kemur fram að börnin sem sæta
þessum pyntingum og morðum til-
heyri oft minnihlutatrúarhópum
á borð við Yazidi eða kristna á yfir-
ráðasvæðum ISIS en einnig shíta- og
súnnítamúslima.
„Við höfum verulegar áhyggjur
af því að verið sé að pynta og myrða
þessi börn sérstaklega vegna þess
að þau tilheyri minnihlutahópum.
Þessi meðferð er þó ekki bundin við
börn minnihlutahópa,“ segir Renate
Winter, sérfræðingur nefndar Sam-
einuðu þjóðanna. „Umfang þessa
vandamáls er gríðarlegt.“
Í skýrslunni kemur fram að
nefndin fordæmi kerfisbundin morð
og pyntingar á börnum sem tilheyra
trúar- og kynþáttaminnihlutahópum.
Fjöldaaftökur og þrælasala
Dæmi séu um fjöldaaftökur á ungum
drengjum, auk þess sem börn séu af-
höfðuð, krossfest og grafin lifandi.
Stúlkur séu seldar á mörkuðum til
kynlífsþrælkunar og börn af báðum
kynjum ganga sölum og kaupum sem
þrælar.
„Börn sem tilheyra minnihluta-
hópum hafa verið numin á brott og
haldið föngnum hvaðanæva að. Þau
eru seld á mörkuðum þar sem þau
eru merkt með verðspjöldum og seld
sem þrælar,“ bætir Winter við.
„Við höfum upplýsingar um að
börn, sérstaklega þroskaheft börn,
séu notuð í sjálfsvígssprengjuárásir.
Mjög líklega án þess að þau skilji
nokkuð hvað bíður þeirra.“
Búa til barnahermenn
En ISIS-liðar drepa ekki öll börnin.
Nefndin segir ljóst af myndbands-
upptökum sem birtar hafa verið á
netinu að ISIS þjálfi afar ung börn
til að verða hermenn. Þar er um að
ræða börn sem eru kannski átta ára
og yngri.
Í skýrslu nefndarinnar segir að
óhugnanlega mikill fjöldi barna hafi
látið lífið eða særst alvarlega vegna
loftárása írakskra öryggissveita með-
an annar eins fjöldi hafi orðið hungur-
morða, látist af ofþornun eða hita.
Skora á stjórnvöld að grípa inn í
Skýrsla nefndar Sameinuðu þjóð-
anna um réttindi barna er unnin af
átján óháðum sérfræðingum og skora
þeir á stjórnvöld í Írak að gera allt
sem í þeirra valdi stendur til að bjarga
börnum úr haldi vígamanna Íslamska
ríkisins og láta ofbeldismennina svara
til saka.
„Það eru skyldur hvers ríkis að
vernda öll börn. Stóra spurningin er
hins vegar, hvernig þeir ætla sér að
gera það við aðstæður sem þessar.“ n
„Við höfum upplýs-
ingar um að börn,
sérstaklega þroskaheft
börn, séu notuð í sjálfs-
vígssprengjuárásir.
ISIS grefur börn lIfandI
n Selja börn í kynlífsþrælkun, krossfesta þau og nota þroskaheft ungmenni í sjálfsmorðsárásir
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Milljónir á flótta Milljónir flóttamanna hafa neyðst til að flýja undan ofbeldi og árásum
vígamanna Íslamska ríkisins sem virðast svífast einskis. Mynd ReUteRS
Börnum slátrað Nefnd
Sameinuðu þjóðanna um réttindi
barna hefur birt kolsvarta skýrslu
um meðferð Íslamska ríkisins
á börnum sem jafnan tilheyra
minnihlutahópum. Þau eru pynt-
uð, myrt og seld í kynlífsþrælkun
segir nefndin. Mynd ReUteRS
Auðjöfur líflátinn
Liu Han stýrði skipulögðum glæpasamtökum
K
ínverskur auðjöfur, Liu Han,
var tekinn af lífi á mánudag,
tæpu ári eftir að hafa verið
dæmdur til dauða. Han, sem
auðgaðist mikið á námuvinnslu,
var sakaður um að stýra alræmdum
glæpasamtökum í Sichuan- héraði
en samtökin ráku meðal annars
spilavíti auk þess að vera fyrirferðar-
mikil í kínversku undirheimunum.
Auk Liu voru fjórir aðrir meðlim-
ir samtakanna, þar á meðal bróðir
hans, teknir af lífi en samtökin eru
sögð hafa staðið að baki fjölmörgum
morðum í héraðinu á undanförn-
um árum. Þá sópuðu samtökin til sín
eignum með vafasömum aðferðum,
þar á meðal fasteignum. Meðal þess
sem lögregla lagði hald á í húsleit í
tengslum við rannsókn málsins voru
handsprengjur, hríðskota byssur
og lúxusbifreiðar á borð við Rolls-
Royce, Bentley og Ferrari. Þá eru
samtökin sögð hafa mútað lögreglu
og saksóknurum, meðal annars með
því að bjóða fulltrúum þeirra í partí
þar sem eiturlyf voru á boðstólum.
Að því er Wall Street Journal
greinir frá rak Liu fjárfestingafélag
sem átti eignir meðal annars í Ástral-
íu og Bandaríkjunum. Liu Han neit-
aði sök í málinu. n
Líflátinn
Liu Han var
tekinn af lífi á
mánudaginn.