Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2015, Blaðsíða 18
18 Skrýtið Vikublað 10.–12. febrúar 2015
n Roman Abramovich keypti dýrasta hlutinn n Fundur með Warren Buffett á 340 milljónir
Dýrustu hlutirnir
á Ebay frá upphafi
10 Black Betsy Fór á: 76 milljónir króna
Joe Jackson, eða Shoeless Joe, var
einn af frægustu hafnaboltamönn-
um snemma á 20. öldinni. Hann
spilaði fyrir Chicago White Sox og
var bæði elskaður og dáður. Það
breyttist árið 1919 þegar upp komst
að hann og nokkrir liðsfélagar hans
töpuðu viljandi keppnisleik með það
að markmiði að hagnast stórlega.
Black Betsy var líklega einhver
þekktasta hafnaboltakylfa þessa
tíma, en hana átti téður Jackson,
sem lést árið 1951. Kylfan var í vörslu
frænda hans til ársins 2001, þegar
hann varð fjárþurfi. Á skömmum
tíma hrönnuðust tilboðin upp. Þau
urðu hálf milljón dala áður en yfir
lauk. Kylfan, sem var ekki í góðu
ástandi, reyndist afar eftirsóttur
gripur á meðal safnara. Frændinn
varð alsæll.
9 Ferrari Enzo Fór á: 131 milljón króna
Ferrari Enzo er einhver frægasti
bíll sem framleiddur hefur verið.
Innan við 400 eintök af þessum
lúxussportbíl voru framleidd en
aðeins var á færi þeirra allra ríkustu
að kaupa bílinn. Bíllinn var einhver
hraðskreiðasti sportbíll í heiminum
þegar hann kom á markað árið 2002.
Árið 2004 gat hver sem er boðið í
bílinn á Ebay. Hann var á endanum
seldur Svisslendingi á eina milljón
dollara, eða ríflega 130 milljónir
króna. Ef til vill er bíllinn enn í eigu
sama manns, sem ekki er vitað hver
er. Hann hefur í það minnsta ekki
ratað aftur á Ebay.
8 Honus Wagner-mynda-spjald Fór á: 145 milljónir
króna Honus Wagner var eins og Joe
Jackson á meðal frægustu manna
í bandaríska hafnaboltanum á
hveitibrauðsdögum íþróttarinnar.
Hafnaboltaspjöld urðu vinsæl vara á
þessum árum og nánast var ómögu-
legt að komast yfir Wagner-spjald.
7 Bridgeville í Kaliforníu Fór á: 232 milljónir króna
Bridgeville er lítið þorp í Kaliforníu.
Þorpið var í eigu Lapple-fjöl-
skyldunnar frá því á áttunda áratug
síðustu aldar, þegar hún keypti það
eins og það lagði sig. Þorpið var svo
sett á sölu á Ebay árið 2002 en þá
bjuggu þar 30 manns. Kaupandinn
hafði það að markmiði að fjölga
þorpsbúum en það verkefni reyndist
honum ofviða. Hann seldi Bridgeville
þremur árum síðar (því miður ekki á
Ebay) þegar ljóst var að fjárfestingin
skilaði honum engum arði.
6 Einbýli með neðanjarðar-byrgi Fór á: 276 milljónir
króna Húsið á myndinni var reist
í kjölfar hryðjuverkaárásanna í
Bandaríkjunum þann 11. september
árið 2001. Þó erlendar hersveitir
hafi ekki stigið fæti inn fyrir landa-
mæri Bandaríkjanna í langan tíma
ákváðu eigendurnir, tveir amerískir
fasteignasalar, að byrja að grafa í
Adirondack-fjöllum í New York-ríki.
Þeir keyptu og grófu niður tvö síló,
sem áður voru notuð sem geymslur
fyrir eldflaugar. Algjörlega skot-
heldar vistarverur. Eins og sjá má
eru hvelfingarnar tvær og þær ná
ansi langt niður. Byrgið hefur í besta
falli veitt kaupandanum einhverja
sálarró. Fasteignasalarnir, sem seldu
þetta á 276 milljónir, sitja sjálfsagt
eftir slyppir og snauðir, því þeir vildu
fá fjórfalt hærra verð.
5 Albert í Texas Fór á: 329 milljónir króna
Albert í Texas er líklega staður sem
hægt væri að færa rök fyrir því að
væri „úti í rassgati“. Þegar eigendur
þorpsins, fimm talsins, sáu hvernig
gekk að selja Bridgeville í Kaliforníu
reyndu þeir það sama. Hópurinn fékk
ekki nema 28 milljónir króna fyrir
staðinn. Kaupandinn var Bobby Cave
nokkur, sem hafði það að atvinnu að
selja tryggingar. Hann reisti fallega
krá á staðnum, sem er við langan
veg á milli tveggja stærri bæja, og
bjó þannig til vinsælan áningarstað.
Hann seldi staðinn á tíföldu verði eftir
uppbygginguna, og hagnaðist vel.
4 Hádegisverður með Warren Buffett Fór á: 340 milljónir króna Auðkýfingurinn Warren
Buffett er þekktur fyrir að vera viðmótsþýður og ráða-
góður. Á hverju ári býður hann upp fund með sjálfum
sér, þar sem hann veitir viðkomandi góð ráð. Uppboðið
fór úr böndunum árið 2010, þegar menn kepptust við að
bjóða í fundinn. Hæsta boð var 340 milljónir króna sem
renna óskiptar, eins og venjulega, til matvælaaðstoðar í
Kaliforníu. Ef til vill hefur það fyrsta sem Buffett ráðlagði
manninum verið að hann skyldi hætta að eyða stórfé í
hádegisverðarfundi.
3 Fyrsta útgáfa Action Comics Fór á: 421 milljón króna Fyrsta heftið af Action
Comics er eitthvert verðmætasta eintak af myndasögu-
bók sem til er. Í henni birtist ofurhetjan Superman í
fyrsta sinn. Blaðið seldist illa þegar það kom út, árið 1938
og því fóru tiltölulega fá eintök í umferð. Margir hentu
sínum blöðum þegar fram liðu stundir. Þeir sjá líklega
eftir því í dag. Eintak af blaðinu hefur í tvígang verið selt
á Ebay. Stórleikarinn Nicolas Cage sló met þegar hann
keypti fyrra eintakið á 284 milljónir króna árið 2011 – en
varð síðar gjaldþrota. Annað eintak fór í sölu á Ebay 2014
og var slegið á 420 milljónir rúmar.
2 The Gulfstream II Fór á: 644 milljónir króna Þegar Ebay var aðeins
sex ára gamalt fyrirtæki, ákvað eigandi einkaþotunnar
The Gulfstream II, Tyler Jet, að selja vélina. Þetta var árið
2001 en vélin var á þeim tíma ein sú flottasta sem völ var
á. Einkaþotufyrirtækið Africa bauð hæst, fimm milljónir
dollara. Þess má geta að vélin tekur 12 manns og hefur
verið framleidd frá árinu 1960. Þó hafa aðeins 258 eintök
verið gerð. Vélin var á sínum tíma dýrasti hlutur sem
seldur hafði verið á Ebay, og meira að segja á internetinu
öllu.
1 Gigayacht Fór á: 22 milljarða króna Það getur tekið mörg ár að láta smíða risasnekkju. Þeir sem létu smíða ofursnekkj-
una Gigayacht ákváðu að taka áhættu með því að skrá hana til sölu á Ebay, að smíði lokinni. Þeir voru hins vegar
svo heppnir að um þær mundir var þekktur auðmaður að leita sér að snekkju; Roman nokkur Abramovic. Hann á
Chelsea. Snekkjuna keypti hann á 22 milljarða króna en í henni er bæði líkamsræktarstöð og kvikmyndahús. Snekkj-
an er dýrasti hluturinn sem seldur hefur verið á Ebay frá upphafi.