Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2015, Qupperneq 26
Vikublað 10.–12. febrúar 201526 Sport
Sígaunabölvunin í Birmingham Það hefur lengi loðað
við Birmingham að bölvun hvíli, eða hafi hvílt, á heimavelli liðsins, St. Andrews. Ástæðan
er sögð sú að þegar hafist var handa við byggingu vallarins árið 1906 hafi sígaunafjöl
skyldum verið bolað burt af svæðinu og þessar fjölskyldur lagt bölvun á völlinn. Hvað
sem því líður er auðvelt fyrir stuðningsmenn liðsins að kenna bölvuninni um þegar á móti
blæs. Eftirminnilegt er þó þegar fyrrverandi stjóri Birmingham, Barry Fry, ákvað að taka
til sinna ráða til að losna við bölvunina. Fry stýrði Birmingham árin 1993–1996 en var
rekinn eftir slæmt gengi tímabilið 1995/1996. Áður en að því kom ákvað Fry að það væri
tilraunarinnar virði að hafa þvaglát í öll fjögur hornin á sjálfum leikvellinum, allt í þeim
tilgangi að losna við bölvunina. „Við höfðum ekki unnið leik í fjóra mánuði og vorum orðnir
örvæntingarfullir. Þannig að ég pissaði í hornin,“ sagði hann í eftirminnilegu viðtali. En
virkaði það? „Nú, við komumst aftur á sigurbraut en svo ráku þeir mig, þannig að líklega
virkaði þetta ekki,“ sagði Fry sem í dag er yfirmaður knattspyrnumála hjá Peterborough.
n Þegar öllu öðru en liðinu og stjóranum er kennt um slæm úrslit n Telegraph tók saman
ArfAslAkAr AfsAkAnir
Tveir góðir
Félagarnir Sir Alex
Ferguson og José
Mourinho hafa
verið gjarnir á það
í gegnum tíðina að
finna afsakanir –
misgóðar – ef liðum
þeirra gengur illa.
Mynd ReuTeRs
Boltinn skoppaði of mikið Newcastle United mætti
neðrideildarfélaginu Stevenage í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar snemma árs
1998. Óvænt úrslit urðu í leiknum því Newcastle, sem þá hafði á að skipa ógnarsterku
liði, náði aðeins í svekkjandi 1–1 jafntefli á útivelli eftir að Alan Shearer hafði komið liðinu
yfir. Kenny Dalglish, stjóri Newcastle, kenndi boltunum sem notaðir voru í leiknum um úr
slitin. Hann sagði að þeir hefðu skoppað of mikið. Newcastle fór þó áfram í einvíginu eftir
að hafa unnið seinni leikinn á heimavelli. Þar voru ekki notaðir neinir skopparaboltar.
Gráu búningarnir
Manchester United lenti í ótrúlegu
basli með miðlungslið South
ampton í úrvalsdeildinni síðla
vetrar tímabilið 1995/1996. Liðið
var 3–0 undir í hálfleik og brá Alex
Ferguson, stjóri United, á það ráð
að skipta út gráu búningunum sem
leikmenn United höfðu spilað í í
fyrri hálfleik. Þetta bar ekki
tilætlaðan árangur þó að United
hefði klórað í bakkann, 3–1, áður en
leiknum lauk. Alex sagði eftir leik
að leikmennirnir hefðu átt erfitt
með að finna hver annan vegna
gráu búninganna. Svo fór að gráu
búningarnir voru aldrei notaðir
aftur hjá United. Kannski eins gott
því eftir tapið gegn Southampton
vann United alla leikina sem eftir
voru í úrvalsdeildinni og hampaði
Englandsmeistaratitlinum.
Búningarnir voru of þungir Það muna eflaust ekki margir
eftir úrslitaleik Liverpool og Arsenal í ensku bikarkeppninni vorið 1971. Liðin voru nokkuð
jöfn að gæðum; Arsenal hafði unnið ensku deildina með 65 stigum á meðan Liverpool
varð að sætta sig við 51 stig sem skilaði liðinu í 5. sætið um vorið. Leikurinn var mjög
spennandi og staðan var jöfn, 0–0, eftir 90 mínútur. Liverpool tók forystuna í byrjun
framlengingarinnar en Arsenal svaraði með tveimur mörkum og tryggði sér titilinn. Eftir
leik sagði Emlyn Hughes, miðjumaður Liverpool, að nýir ullarbúningar hefðu gert sér og
samherjum sínum erfitt fyrir, búningarnir hefðu verið allt of þungir í hitanum og
svitanum á Wembley.
Engir boltastrákar José
Mourinho, sem nú stýrir Chelsea eins og allir vita, er
þekktur fyrir svokölluð sálfræðistríð sín. Sumarið
2011 mættust Real Madrid og Barcelona í árlegum
leikjum milli bikar og Spánarmeistaranna. Fyrri
leikurinn á heimavelli Real Madrid hafði endað 2–2
en seinni leikurinn, sem var æsispennandi, endaði
með 3–2 sigri Barcelona á Nou Camp. Mourinho er
snillingur í að finna afsakanir ef hlutirnir ganga ekki
upp. Hann gagnrýndi það eftir leik að engir
boltastrákar hefðu verið til staðar, það „væri
dæmigert fyrir smálið“ eins og Barcelona.
Of mikið í Playstation
Íslandsvinurinn David James þótti umdeildur á
sínum yngri árum þar sem hann átti það til að verja
á köflum stórkostlega en gera svo stórkostleg
mistök inn á milli. James stóð milli stanganna hjá
Liverpool frá 1992 til 1999 en árið 1997 vakti hann
mikla athygli vegna ummæla sinna í kjölfar
mistaka sem hann gerði í leik gegn Newcastle.
Kenndi hann óhóflegri tímaeyðslu sinni í
Playstationleikjatölvunni um mistökin. Nefndi
hann einkum tölvuleikina Tekken 2 og Tomb Raider
sem hann sagðist hafa spilað tímunum saman í
aðdraganda leiksins.
einar@dv.is