Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2015, Síða 27
Vikublað 10.–12. febrúar 2015 Sport 27
Valdamesta kona
fótboltaheimsins
n Marina Granovskaia er framkvæmdastjóri Chelsea n Hægri hönd Abramovich og hörð í horn að taka
M
arina Granovskaia er
nafn sem ef til vill hringir
ekki mörgum bjöllum hjá
aðdáendum enska bolt-
ans. Staðreyndin er þó
sú að Marina þessi er manneskjan
að baki velgengni Chelsea á leik-
mannamarkaðnum að undanförnu.
Þó svo að liðið hafi keypt stórstjörn-
ur á borð við Cesc Fabregas, Diego
Costa og Juan Cuadrado á tímabil-
inu hefur hagnaður orðið á leik-
mannaviðskiptum félagsins. Það er
að miklu leyti Marinu að þakka.
Vann með Abramovich
Breska blaðið Mirror fjallaði á
dögunum um þennan stjórnanda
toppliðs ensku úrvalsdeildarinnar.
Hún er titluð framkvæmdastýra
Chelsea en við því starfi tók hún í
október síðastliðnum. Áður en hún
tók við starfinu var hún þó öllum
hnútum kunnug hjá Chelsea enda
hefur hún starfað með eiganda
Chelsea og landa sínum, Roman
Abramovich, um langt skeið og
verið hans hægri hönd í viðskipt-
um. Marina er 39 ára og útskrifaðist
hún frá Moskvuháskóla árið 1997
með glæsibrag. Sama ár hóf hún
störf hjá Sibneft, olíufyrirtæki sem
á þeim tíma var í eigu Abramovich.
Óhætt er að segja að samstarf henn-
ar og Abramovich hafi gengið vel
og var hún fljót að vinna sig upp
metorðastigann innan fyrirtækis-
ins. Abramovich hafði þarna fund-
ið manneskju sem hann gat treyst
fyrir öllum sínum viðskiptum og
hefur hún fylgt honum hvert fótmál
síðan.
Fór með til Lundúna
Árið 2003 flutti hún til Lundúna,
eða skömmu eftir að Abramovich
keypti Chelsea. Þó að hún hafi ekki
beinlínis starfað fyrir Chelsea vann
hún mjög náið með Abramovich og
kom að ákvörðunum
sem teknar voru
um félagið. Það
var ekki fyrr en
sjö árum eftir
að hún flutti til
Lundúna, eða
árið 2010, sem
hún var gerð form-
lega að fulltrúa
Abramovich hjá fé-
laginu og þremur
árum síðar, árið
2013, tók hún
sæti í stjórn
félagsins.
Fékk
Mourinho
aftur
Breskir fjöl-
miðlar og þeir
sem þekkja vel
til innan her-
búða Chelsea full-
yrða að það sé einna
helst Marinu að þakka
að José Mourinho hafi
ákveðið að taka aftur við Chelsea
sumarið 2013 eftir að hafa verið rek-
inn þaðan árið 2007. Kastast hafði í
kekki milli hans og Abramovich og
fór svo að hann yfirgaf félagið og
tók við Inter á Ítalíu. Marina hafði
kynnst Mourinho vel þegar hann
stýrði Chelsea-liðinu árin 2004 til
2007 og eftir að hann yfirgaf Chelsea
hélt hún sambandi við hann. Þá er
það fullyrt að það sé ekki síður henni
að þakka að Chelsea hafi náð ótrú-
legum árangri á leikmannmark-
aðnum á undanförnum misser-
um. Leikmenn, sem ekki hafa
spilað mikið, hafa verið seldir
fyrir svimandi háar fjárhæðir á
meðan frábærir leikmenn á borð
við Cesc Fabregas og Diego
Costa hafa verið keyptir á til-
tölulega lágu verði, miðað við
gæði að minnsta kosti.
Andre Schurrle var keyptur
árið 2013 á 18 milljónir punda.
Hann var aðeins tuttugu sinnum
í byrjunarliði í leikjum hjá félags-
ins, missti traust Josés Mourinho
en var samt seldur fyrir 24 milljón-
ir punda í janúarglugganum. Meðal
annarra leikmanna í svipaðri stöðu
og Schurrle – sem hafa verið seld-
ir að undanförnu – má nefna Juan
Mata, Romelu Lukaku,
Ryan Bertrand, Kevin
de Bruyne og Dav-
id Luiz. Hagnað-
urinn af sölu
þessara leik-
manna er
ótrúlegur
en það
hefur ekki
komið niður á
gæðum liðsins, þvert
á móti. Liðið hefur eflst og
það þrátt fyrir að eyða um
efni fram líkt og mörg félög
gera.
„Ótakmarkað traust“
„Hún er drifkrafturinn hjá Chelsea.
Roman ber ótakmarkað traust til
hennar. Hún hefur engan áhuga á að
vera ein-
hver stórstjarna eða þekkt andlit en
það er leikur enginn vafi á að hún á
þátt í flestum ákvörðunum sem tekn-
ar eru,“ sagði heimildarmaður Even-
ing Standard um Marinu. Um þátt
hennar í að fá Mourinho aftur til fé-
lagsins, segir hann: „ Mourinho og
Abramovich var ekki vel til vina
þegar Mourinho fór. Það
var hún sem sann-
færði
Abramovich um að fá hann aftur til
félagsins og það margborgaði sig.“
Marina er sögð hörð í horn að taka í
viðskiptum eins og árangur Chelsea á
leikmannamarkaðnum ber með sér.
Hún sat fundi með fulltrúum Diegos
Costa og Atletico Madrid í sumar og
sá um að semja um kaupin fyrir hönd
Chelsea.
Öflugt unglingastarf
Sem fyrr segir er Marina ekki sögð
vera mikið fyrir sviðsljósið, ekki frekar
en Roman Abramovich. Fáar myndir
eru til af henni á veraldarvefnum og
virðist hún vera manneskja sem læt-
ur verkin tala. „Hún lætur sig öll smá-
atriði varða. Það er kannski henn-
ar stærsti galli, að vera með of mörg
verkefni á sínum herðum í einu,“ seg-
ir heimildarmaður Tele graph um
Marinu.
Ekki aðeins er hún manneskjan á
bak við það að fá José Mourinho aftur
til félagsins og standa að baki frábær-
um hlutum Chelsea á leikmanna-
markaðnum heldur er hún einnig
sögð vera drifkrafturinn að baki öfl-
ugu unglingastarfi Chelsea. Félag-
ið hefur sankað að sér ungum leik-
mönnum sem síðan eru sendir í lán
til minni félaga í Evrópu þar sem
þeir þroskast sem knattspyrnu-
menn. Og ef þeir þykja ekki nógu
góðir fyrir Chelsea eru þeir ein-
faldlega seldir annað, oftar en
ekki með ágætum hagnaði. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is „Það var hún
sem sannfærði
Abramovich um að fá
hann aftur til félagsins og
það margborgaði sig.
Með Drogba
Hér sést
Marina með
Didier Drogba og
Salomon Kalou.
Myndin er tekin
árið 2010.
Keyptir og seldir hjá Chelsea
(Sumarið 2014 og janúar 2015)
Hagnaður
24,9
milljarðar
25,7
milljarðar
800
milljónir
Kaup Sölur
Öflug Marina Granovskaia er konan að baki
velgengni Chelsea undanfarin misseri. José
Mourinho sér um það sem gerist á vellinum
en Marina það sem gerist á bak við tjöldin.
Seldur Það ráku margir upp stór augu þegar Chelsea
tókst að selja Andre Schurrle á 24 milljónir punda til
Wolfsburg. Marina sér um þessi mál hjá Chelsea og
þykir hörð í horn að taka í samningamálum.