Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2015, Side 29
Lífsstíll 29Vikublað 10.–12. febrúar 2015
Hildur Lilliendahl Ísland er ekkert frábrugðið öðrum löndum í hinum vestræna heimi hvað ójafnrétti varðar. Barátta hér
er eins og barátta annars staðar á Vesturlöndum. Ég er gagnkynhneigð kona, ekki fátæk, menntuð og hvít – það er varla hægt að hafa meiri
forréttindi. Það er mikilvægt að muna að okkur sem erum svona lánsöm ber líka skylda að berjast fyrir réttindum kvenna sem hafa minni
forréttindin og veikari rödd. Mynd Gabrielle Motola
Margrét Pála Ólafsdóttir „Ég ræddi mikið við Möggu Pálu um kyn
og kynjahlutleysi í skólum. Mér finnst nálgun hennar mjög athyglisverð. Í raun eru kynin tvö
bara nauðsynleg til að viðhalda mannkyninu, allt annað er félagsmótun, eitthvað sem við
höfum búið til,“ segir Gabrielle Motola. Mynd Gabrielle Motola
Vigdís Finnbogadóttir Það voru miklu fleiri karlar en konur sem hvöttu mig til að fara í forsetaframboð. Konur komu
til mín þremur árum eftir að ég var kjörin og báðust afsökunar á að hafa ekki kosið mig. Af hverju áttu þær að treysta konu? Þær treystu ekki
sjálfum sér. Þarna liggur vandinn hjá konum í heiminum í dag. Karlar hafa skapað vandann og samfélög sem virka á þennan hátt. Konur
treysta ekki sjálfum sér. Mynd Gabrielle Motola
Freyja Haraldsdóttir
Gabrielle hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir mynd sína af Freyju Haraldsdóttur. Verðlauna-
myndin hangir nú uppi í National Portrait Gallery í London, en hún var ein af 60 sem voru
valdar úr alls 4.000 innsendum myndum. Mynd Gabrielle Motola
Steinunn Birna Ragnarsdóttir
Hér höfum við tíma til að hugleiða. Á Íslandi er ekki sama enda-
lausa upplýsingaflæðið og til dæmis í New York – þó að það geti
líka veitt innblástur. Tónlistarmenn líta ekki á tónlistina sem
markaðstæki heldur leið til tjáningar. Þá verður eitthvað magnað
til. Mynd Gabrielle Motola
Alison MacNail Að ala upp tvö börn þegar annað
foreldrið er í kynleiðréttingarferli er ekki alltaf auðvelt. En það
hjálpar til að hugsa um að allt ferlið víkki út svæðið fyrir þau sem
er öruggt og fullt af skilningi. Jóga vinkona mín lýsti þessu þannig
að þú ert hér (breiðir út faðminn), og börnin rúmast hér (breikkar
faðminn). Mynd Gabrielle Motola
Lísa Kristjánsdóttir Lísa var kynnt fyrir Gabrielle með þeim orðum að
hún hefði unnið við fiskveiðar, kvikmyndagerð og pólitík. Þegar hún var á sjó kom að því að
líkamlega erfiðið varð henni ofviða – og hún er sterk kona. Lísa segir: „Ég þurfti að
viðurkenna að ég var ekki eins líkamlega sterk og þeir, og ég mun aldrei verða það. Einhver
þurfti að hella upp á kaffið.“ Mynd Gabrielle Motola