Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2015, Síða 31
Menning 31Vikublað 10.–12. febrúar 2015
D
aði Guðbjörnsson sýnir 14
vatnslitamyndir á Mokka.
Sýningin, sem stendur til
11. mars, nefnist Ljóð í
vatninu. Verkin eru unnin
með svonefndri akvarell-tækni.
„Ég hef unnið nokkuð með
vatnsliti frá því ég var í myndlistar-
námi. Núna vann ég myndirnar
þannig að ég mála og þvæ síðan
litinn og mála svo aftur í myndina
þannig að hann fær meiri mýkt,“
segir Daði.
Eins og lífið
Hvert er viðfangsefnið í myndunum?
„Á þessari sýningu ægir öllu
saman. Ég vil hafa sýninguna eins
og lífið. Ég er kannski á Mokka að
tala við fólk um listir en geng síð-
an út og hitti þá mann sem vinnur
við smíðar og seinna um kvöldið
hitti ég hestamann. Þannig er við-
fangsefnið allt frá hvalveiðum til
hinstu raka tilverunnar. Ég er að
vísa í ýmislegt. Á einni myndinni
er til dæmis íslenski fáninn uppi á
jarðarkringlunni. Þar er ég að sýna
hvað okkur Íslendingum finnst við
vera frábær en gleymum því að við
erum helst þekkt fyrir það að fjár-
málakerfi okkar hrundi.“
Brosandi andlit eru áberandi á
myndum þínum. Ertu jákvæður að
eðlisfari?
„Já, eiginlega þannig að það
hálfa væri nóg. Ég hef lengi stundað
sahajayoga sem er góð aðferð við að
laða fram jákvæðni. Ég er vísvitandi
að mála myndir sem fólki þykir já-
kvæðar. Um daginn var einhver að
tala um hversu auðvelt það væri að
vera neikvæður og gagnrýninn, það
er svo miklu erfiðara að vera upp-
byggilegur. Ég vildi velja erfiða leið
og kaus því jákvæðnina. Ég viður-
kenni að stundum þarf maður að
beita sig hörðu til að hrífast ekki
með fjöldanum í neikvæðninni.“
Eru ákveðnir litir sem heilla þig
meira en aðrir?
„Ég hef alltaf notað bláa litinn
mjög mikið og rauði liturinn er
mjög spennandi af því það er svo
mikil orka í honum, en auðvitað eru
allir litir og blæbrigði spennandi
þetta er hin eilífa glíma listamanns-
ins.“
Tilraun til að vera alþýðlegur
Af hverju kýstu að sýna þessar
myndir þínar á Mokka?
„Hinn svokallað listaheimur get-
ur orðið svolítið þreytandi og mér
finnst mjög gaman að vera á kaffi-
húsi þar sem sem fólk er ekki í sér-
stökum stellingum við að skoða
myndlist. Mér finnst listin vera
komin of mikið í fílabeinsturninn.
Ætli það að sýna á Mokka sé ekki til-
raun hjá mér til að vera alþýðlegur.
Ég hef sótt Mokka í áratugi. Þegar
ég var í Myndlistarskóla Reykjavíkur
fór ég gjarnan þangað og fékk mér
kaffi. Þá var ég feiminn ungur mað-
ur sem sat úti í horni og sagði ekki
orð en reyndi að hlera hvað spek-
ingarnir væru að spjalla. Seinna á
ferlinum þegar ég var að aðstoða
Gylfa Gíslason myndlistarmann
við ýmis verkefni hitti ég hann oft
á Mokka í hádeginu, svo leitaði ég
oft ráða hjá Hringi Jóhannessyni
yfir kaffibolla hérna. Síðastliðinn
fimmtán ár hef ég komið á Mokka
nokkrum sinnum í viku.“
Þú hefur unnið að list þinni í ára-
tugi. Hvernig er að lifa og hrærast í
myndlistinni?
„Þar hef ég farið í gegnum nokk-
ur tímabil. Sem ungur maður vissi
ég kannski ekki alveg hvað ég var
að gera. Þetta var skemmtilegur
tími þar sem ég var að mótast og
öll samskipti voru á jákvæðu nót-
unum. Þegar ég varð eldri vann ég
mikið í félagsmálum fyrir myndlist-
armenn. Það gátu verið hatrömm
átök í kringum það og eru kannski
ennþá, en ég verð minna var við
það. Það er þannig með deilur hjá
okkur listamönnum að maður veit
ekki hvort þeim er lokið eða hvort
þær standa enn og ef þeim er lok-
ið veit maður ekki hver niðurstað-
an varð.
Núna er ég kominn hringinn og
er aðallega að einbeita mér að því
að gera nógu góðar myndir. Það er
gefandi og gaman að vera á þeim
stað.“ n
Kýs jákvæðnina
Daði Guðbjörnsson sýnir vatnslitamyndir á Mokka
„Ég vildi velja erfiða
leið og kaus því já-
kvæðnina. Ég viðurkenni
að stundum þarf maður
að beita sig hörðu til að
hrífast ekki með fjöldan-
um í neikvæðninni.
Listamaðurinn á
Mokka „Á þessari sýningu
ægir öllu saman. Ég vil hafa
sýninguna eins og lífið.“
MynD ÞorMar ViGnir Gunnarsson
Ein af myndunum á sýningunni „Núna vann ég myndirnar þannig að ég mála og þvæ
síðan litinn og mála svo aftur í myndina þannig að hann fær meiri mýkt.“
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Óviðjafnanleg
Lína langsokkur
Lína langsokkur er ein af kven-
hetjum bókmenntasögunnar og
ógleymanleg öllum sem henni
kynnast. Í
myndabók-
inni Þekkir þú
Línu lang-
sokk? eftir
Astrid Lind-
gren og Ingrid
Vang Nyman
er sögð saga
Línu og vina
hennar Tomma og Önnu. Systk-
inin prúðu trúa vart sínum eigin
augum þegar þau sjá Línu lang-
sokk þramma heim að Sjónarhóli
í fyrsta sinn, haldandi á hesti.
Sterkasta stelpa í heimi getur
náttúrlega ansi margt!
Sænskir bræður
og fullkomin
bankarán
Fyrir rúmum 20 árum rændu
þrír bræður vopnabúr sænska
hersins og fóru svo að fremja
hin fullkomnu bankarán í Sví-
þjóð. Enginn vissi hverjir þeir
voru, þeir skildu engin ummerki
eftir sig, lögreglan var ráðþrota
þjóðin var slegin ótta. En menn
gera alltaf á endanum mistök.
Og nú hefur fjórði bróðirinn gert
þessari dramatísku sögu skil í
spennutrylli, Dansað við björn-
inn. Í bókinni er einnig fjallað
um æsku og uppeldi bræðranna
sem einkenndist af ofbeldi og
ótta. Meðhöfundur bróðurins
að sögunni er helmingurinn af
metsölutvíeykinu mikla Roslund
og Hellström. Saga Roslund og
Thunbergs kom út í Svíþjóð á
liðnu hausti og sló rækilega í
gegn. Steven Spielberg tryggði sér
kvikmyndaréttinn áður en sagan
var gefin út. Höfundar Dansað
við björninn eru væntanlegir til
landsins á næstu vikum.
Nýjar bækur
Frönsk
hágæðaspenna
Unnendur spennusagna ættu
ekki að verða fyrir vonbrigðum
með Alex eftir hinn margverð-
launaða
franska rit-
höfund Pierre
Lemaitre. Alex
er rænt og
haldið í yfir-
gefnu vöru-
húsi í París
þar sem hún
þarf að þola
hræðilegar pyntingar. En Alex er
ráðagóð. Í byrjun kann bókin að
minna nokkuð á Konuna í búrinu
eftir hinn danska Adler-Olsen, en
fer svo í allt aðra átt.
Gríðarlega spennandi bók
með óvæntum vendingum. Lesið
hana áður en gagnrýnendur segja
ykkur of mikið frá efni hennar!