Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2015, Blaðsíða 32
32 Menning Vikublað 10.–12. febrúar 2015
RaftónlistaRveisla í Reykjavík
n Tónlistarhátíðin Sónar Reykjavík haldin í þriðja skipti í Hörpu n Björn Steinbekk í
U
m næstu helgi fer tónlist-
arhátíðin Sónar Reykja-
vík í Hörpu. Hátíðin varð
til á grunni klúbbakvölda
sem þrír vinur stóðu fyr-
ir í Barselóna á Spáni í byrjun tí-
unda áratugarins, klúbbakvöldin
þróuðust svo smám saman yfir
í nokkurra daga raftónlistarhá-
tíð – Sónar hefur verið haldin ár-
lega frá 1994 í Barcelona. Undan-
farinn áratug hefur hátíðin svo
dreift úr sér og teygt anga sína út
um allan heim – meðal annars til
Íslands. Hátíðin verður haldin í
þriðja skipti í Hörpu næstu helgi,
frá fimmtudeginum 12. til laugar-
dagsins 14. febrúar. Meðal er-
lendra listamanna sem koma fram
eru Skrillex, Paul Kalkbrenner,
SBTRKT, Jamie XX, Todd Terje,
Kindness og Nina Kraviz, en ís-
lensku listamennirnir sem koma
fram eru um 50 talsins, bæði
plötusnúðar og hljómsveitir.
Sónar í níu löndum
„Hátíðin er núna haldin á níu stöð-
um í heiminum. Aðalhátíðin er
haldin í Barcelona í júní og það
eru 110 þúsund manns koma til
Barselóna þá helgi gagngert til að
fara á hátíðina,“ segir Björn Stein-
bekk, framkvæmdastjóri og mað-
urinn á bak við Sónar Reykjavík.
Hann segir röð tilviljana hafa ráð-
ið því að hann ákvað að taka þátt
í að koma hátíðinni á fót á Íslandi:
„Birkir Hólm Guðnason, fram-
kvæmdastjóri Icelandair, bað mig
um að finna einhverja hátíð, ein-
hvern viðburð yfir veturinn og góð-
ir menn bentu mér á Sónar.
Eftir nokkrar þreifingar var
ákveðið að halda Sónar Reykja-
vík í fyrsta skipti árið 2013. Björn
segir hátíðina ekki vera eins og
eins og útibú sem notar alþjóð-
lega uppskrift, eins og einsleitir
McDonalds-staðir um allan heim.
„Nei þetta nær nú mikla dýpra en
það. Við veljum allar hljómsveit-
irnar í sameiningu og bókum allt
saman, þeir búa svo til kynningar-
efnið en við aðlögum það að okkar
markaði. Umsýsla með vefsíðunni
og öðru er í Barcelona. Þar eru 30
manns sem vinna á skrifstofunni,
en við höfum alltaf fullan aðgang
að þeim og vinnum með þeim dag-
lega. Þar sem þetta er yfir veturinn
er þetta líka atvinnuskapandi fyrir
þeirra starfshóp,“ útskýrir Björn.
Helmingurinn erlendir gestir
Björn segir stóra kosti fyrir hátíðar-
haldara að tengja sig við jafn þekkt
og virt vörumerki og Sónar. „Það
hefur líklega tekið Iceland Airwa-
ves 11 til 12 góð ár til að virkilega
verða sú hátíð sem að fólk sá fyr-
ir að hún yrði. Það tók Airwaves 7
eða 8 ár að ná sama fjölda erlendra
gesta og okkur hefur tekist á þrem-
ur árum. Það gerist bara út af vöru-
merkinu.“ Um 1.500 gestir mæta
erlendis frá á hátíðina en það er
rétt tæpur helmingur af 3.300 gest-
um hátíðarinnar. Um 3.000 miðar
höfðu selst á föstudag og viðbúið
að síðustu miðarnir muni seljast
upp þegar nær dregur.
Maður veltir fyrir sér hvort ís-
lenski markaðurinn sé einfaldlega
mettur með öllum þessum stór-
um tónlistarviðburðum og hátíð-
um á borð við Iceland Airwaves,
ATP Iceland, Secret Solstice og
Sónar Reykjavík. „Markaðurinn er
kannski ekki mettur, en ef þú ert
að halda tónlistarhátíð á Íslandi,
þá getur þú bara gengið að því
vísu að selja 1.500 til 2.000 miða
til Íslendinga. Það er bara sá fjöldi
sem er að kaupa sig inn á Airwa-
ves, ATP og fleiri hátíðir. Ef þú ert
hins vegar með Bruce Springsteen
eða Justin Timberlake þá mynd-
ir þú selja Íslendingum 15 þús-
und miða. En við sitjum líka að því
að vera á vetrartímanum – febrú-
ar er frekar dauður tími yfir höfuð.
Þetta er líka dauður tími erlendis,
þannig að fólk ákveður þá kannski
frekar að fara í eitthvað sérstakt
eins og þetta.“
Samlegðaráhrif í Skandinavíu
Sömu helgi verður Sónar-hátíð
haldin í Stokkhólmi þar sem mik-
ið af listamönnunum sem koma
fram í Reykjavík munu troða upp.
Það er Björn og íslenska Sónar-
teymið sem stendur að hátíðinni í
Stokkhólmi sem og í Kaupmanna-
höfn um miðjan mars. Af hverju
var farið í þessa útrás? „Það er ekki
mögulegt að lifa af einni tónlist-
arhátíð á Íslandi – það er enginn
rekstur þannig séð. Ástæðan fyrir
því að við bættum við Stokkhólmi
og síðan Kaupmannahöfn er ein-
faldlega sú að við þurfum að hafa
fleiri hátíðir helst sömu helgi eða
í kringum Sónar hérna heima, til
að geta boðið betri listamönn-
um og geta þá boðið fleiri en eina
dagsetningu, því þá eru meiri lík-
ur á að þeir þekkist boðið. Það er
mjög líklegt að á næsta ári munum
við halda Sónar í Reykjavík, Stokk-
hólmi og Kaupmannahöfn sömu
helgi.“
Einfaldlega tónlistarhátíð
Tónlistin sem heyrist á Sónar er
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Listamennirnir mæla með
Shades of Reykjavík
„Við erum mjög spenntir fyrir Sónar-há-
tíðinni og öllum þeim frábæru tónlistar-
mönnum sem eru að fara að spila og þá
sérstaklega; Randomer, Jón Ólafsson
og Futuregrapher, Nina Kraviz, russian.
girls, Lord Pusswhip, DJ Yamaho, Royal,
Ghostigital, Gervisykur, Thor, DJ Flugvél
og Geimskip, Ben & Croax, Hlýnun Jarð-
ar, og Darkfeatures. Ástæðan fyrir þessu
vali er vegna flottrar framkomu þeirra á
sviði og frábærum gæðum tónlistarinn-
ar. Svo viljum við líka bara fá að sjá alla
vini okkar. Nina Kraviz er í uppáhaldi hjá
LaFontaine vegna þess að „hún er falleg-
asta tónlistarkona í heiminum“.“
Útvarpsþátturinn Shades of Reykjavík er á
dagskrá FM Xtra 101,5 alla laugardaga milli
21.00 og 23.00. LaFontaine úr SoR spilar
á Sonarpub á fimmtudagskvöld klukkan
22.45.
Missy Melody
„Ég hlakka til að sjá Balsamic Boys á
fimmtudeginum, þeir gera magnað stöff.
Einnig Todd Terje því hann er legend. Svo
Samaris – ég elska þau. Ég mun njóta þess
mest að sjá sjálfa mig spila á föstudegin-
um, ég verð í súperhetjuham og máluð af
snillingunum í Ölgerðinni sem Missy Melody
súperhetja. Eftir að ég stíg af sviði mun ég
tjékka á SBTRKT, Jimmy Edgar og Ninu
vinkonu minni Kraviz og svo auðvitað
Herra Kalkbrenner. Á laugardeginum mun
ég virkilega njóta þess að sjá Jamie XX,
hann er svo mikill tónlistarsnillingur og
góðvinur minn hann Margeir mun svo eiga
hug minn eftir það.“
Missy Melody spilar á SonarPub á föstudags-
kvöldið klukkan 21.00.
Exos
„Teknóprinsesssan Nina Kraviz, sem er
uppáhaldsplötusnúðurinn minn, er að fara
að spila í fyrsta sinn á Íslandi. Hún hefur
verið að rokka dansgólf út um allan heim
með rosalegum settum. Hún er að spila
mjög flott teknó, gamalt klassískt teknó
í bland við glæný teknólög sem eru varla
komin út. Þótt ég hafi verið að fylgjast með
teknói alveg frá 1994 og sé þvílíkur grúskari
og gramsari á ég ekki sjens í lagavalið hjá
henni. Hún er bara úr annarri vídd þegar
kemur að því að velja réttu lögin á réttum
tíma. Þó hún hafi verið í þessu mjög lengi
hefur hún verið að skjótast upp á stjörnu-
himininn mjög hratt undanfarið ár. Ég datt
inn í settin hennar fyrir svona ári eftir að ég
heyrði Essential-mixið. Þetta er eitthvað
sem enginn má missa af. Svo er það undra-
barn teknósins á Íslandi: Bjarki. Það er ung-
ur og ótrúlega hæfileikaríkur drengur sem
er að gefa út hjá plötufyrirtækinu hennar
Ninu Kraviz og kemur fram á sama kvöldi
og hún. Hann hefur verið að fá heimsathygli
fyrir lögin sem hann hefur verið að gefa út
hjá Ninu, enda er hann algjört undrabarn
þegar kemur að bassateknói, og er að gera
eitthvað sem ég hef ekki heyrt neins staðar
annars staðar.“
Exos spilar spilar á SonarLab á laugardags-
kvöld klukkan 23.30.
M-Band
Ég er held ég spenntastur fyrir Randomer
á laugardagskvöldinu. Annars verður
reyndar líka gaman að sjá SBTRKT sem
hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér. Svo
verða þarna atriði sem eru alveg ný fyrir
mér eins og Sophie og Nisennenmondai
sem ég er mjög spenntur fyrir.
M-band spilar á SonarComplex á fimmtu-
dagskvöld klukkan 23.00.
Í útrás Björn Steinbekk og teymið á bak við
Sónar Reykjavík halda nú þrjár Sónar-hátíðir
á Norðurlöndunum í febrúar og mars.
MYND DavÍð ÞÓR GuðLauGSSoN„Það tók Airwaves
sjö eða átta ár að
ná sama fjölda erlendra
gesta og okkur hefur tek-
ist að ná á þremur árum.
„Við erum ekki
„showcase“-
hátíð heldur einfald-
lega tónlistarhátíð