Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2015, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2015, Page 2
2 Fréttir Helgarblað 20.–23. mars 2015 Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni og Celsus, Ægisíðu 121 Algjört orku- og næringarskot „ Með því að taka Lifestream Spirulina og AstaZan eykst krafturinn yfir daginn í vinnunni og æfingar seinni part dags eru ekkert mál. Vöðvarnir eru fljótari að ná sér eftir æfingar. Það að taka auka Spirulina sem er lífrænt fjölvítamín, fyrir leik er algjört orku- og næringarskot. Spirulina er líka frábær vörn gegn kvefi og flensum.“ Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir leikskólakennari og landsliðskona í íshokkí. lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar TREYSTI Á LIFESTREAM BÆTIEFNIN! Apótek, heilsubúðir, Krónan, Hagkaup, Viðir, N ttó og Fríhöfnin. Leiðrétting Vegna umfjöllunar DV um launa­ greiðslur bankaráðsmanna Landsbankans vill samskiptasvið bankans koma því á framfæri að þær upplýsingar sem DV fékk hjá sviðinu við vinnslu fréttarinnar, um fjölda funda bankaráðs á ári væru ekki réttar. Í umfjöllun DV var haft eftir talsmanni bankans að bankaráð fundaði einu sinni í mánuði að jafnaði. Samkvæmt leiðréttingunni sat Tryggvi Páls­ son bankaráðsformaður hins vegar 28 fundi í bankaráði árið 2014. Það samsvarar um tveim fundum á mánuði. Eva Sóley Guð­ björnsdóttir varaformaður sat 29 fundi í bankaráði á sama tímabili. Gaf launin í ferðasjóð langveikra barna n Vildarbörn nutu góðs af varastjórnarlaunum viðskiptafræðings í mörg ár M aður er partur af stærri heild, stærri en maður sjálfur,“ segir viðskipta­ fræðingurinn Magnús Magnússon, stjórnar­ maður í Icelandair Group, sem um árabil lét þau laun sem hann átti rétt á þegar hann sat í varastjórn félags­ ins renna í góðgerðasjóðinn Vildar­ börn Icelandair. Börn fái tækifæri til ferðalaga Vildarbörn er ferðasjóður fyrir langveik börn og börn sem búa við sérstakar aðstæður. Markmið hans er að gefa börnum á Íslandi og ná­ grannalöndum tækifæri til ferða­ laga ásamt fjölskyldum sínum. Sjóð­ urinn var stofnaður af Icelandair árið 2003 og er Vigdís Finnboga­ dóttir, fyrrverandi forseti, verndari sjóðsins. „Ég var í varastjórn í einhver fjögur ár og gerði þetta á þeim tíma. Bara til að láta gott af mér leiða ein­ hvers staðar,“ segir Magnús í samtali við DV. Magnús kom síðan inn í að­ alstjórn Icelandair Group þann 1. ágúst í fyrra og hóf þá að þiggja laun fyrir. „En ég reyni að láta gott af mér leiða með öðrum hætti.“ Milljónir króna í sjóðinn Af ársreikningum Icelandair Group má ráða að upphæðirnar sem Magnús lét af hendi rakna til Vildar­ barna hafi numið nokkrum milljón­ um krónum á tímabilinu. Hann segir það hafa legið bein­ ast við að láta laun sín renna til Vildarbarna enda Icelandair helsti styrktaraðili sjóðsins og bendir á að stjórnarformaðurinn hafi gert slíkt hið sama lengi vel. Hann kveðst ekki vita hversu háar fjárhæðirnar sem Vildarbörn hafi notið góðs af vegna fórnfýsi hans eru og biðst góðlátlega undan því að talað verði um ráðstöf­ unina sem eitthvert mikið góðverk. Vildi hann raunar sem minnst gera úr málinu í samtali við DV. Stjörnumerktur í ársreikningum Í yfirliti yfir launakjör stjórnar og lyk­ ilstarfsmanna í Icelandair Group, nokkur ár aftur í tím­ ann, er upp­ hæðin við nafn Magn­ úsar gjarnan stjörnumerkt með neðan­ málsgrein um að stjórn­ armaðurinn hafi afsalað sér réttinum til launa og í staðinn hafi stjórnin samþykkt að jafnhá upphæð rynni til Vildar­ barnasjóðs Icelandair. Í ársreikn­ ingnum fyrir árið 2014 kemur fram að Magnús hafi fengið ríflega 2,8 milljónir fyrir árið en sem fyrr seg­ ir kom hann inn í aðalstjórnina í ágúst það ár og hóf að þiggja laun. Stór hluti af þeirri upphæð rann því til Vildarbarna. Árið 2013, þegar Magnús var í varastjórn, fékk hann 1,6 millj­ ónir króna í laun en sú upphæð rann til Vildar­ barna. Af þess­ um tveimur rekstrarárum má því ráða, sem fyrr seg­ ir, að upp­ hæðin sem stjórnar­ maðurinn hafi af­ salað sér til ferða­ sjóðsins á umliðnum árum nemi auðveldlega milljónum. n Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is „Til að láta gott af mér leiða einhvers staðar. Lóan er komin, þrátt fyrir allt „Það er ljós við enda ganganna,“ skrifa síðuhaldarar Birding Iceland á Facebook en þar er greint frá því að heiðlóan, bet­ ur þekkt sem lóan, sé komin til landsins. Lóan er Íslendingum kær­ kominn vorboði, ekki síst eftir óvenju harðan vetur. Hún sást í Breiðdal í fyrradag, 18. mars. Lóan er nokkrum dögum fyrr á ferðinni en vanalega, en meðal­ komutími hennar er 23. mars. Ekki króna upp í kröfur Leikskólanum 101 var lokað eftir ásakanir um harðræði S kiptum er lokið á þrota­ búi Leikskólans 101 en leik­ skólinn var tekinn til gjald­ þrotaskipta þann 22. janúar í fyrra. Leikskólinn komst í fréttirn­ ar árið 2013 eftir að ásakanir komu fram um meint harðræði starfs­ manna skólans gegn börnum. Mál gegn tveimur sumar­ starfsmönnum ungbarnaleik­ skólans var síðan fellt niður hjá lögreglu í mars 2014 eftir að Barna­ vernd Reykjavíkur hafði vísað mál­ inu þangað. Þá var skólinn farinn í þrot enda höfðu eigendur lokað honum í kjölfar fjölmiðlafársins árið 2013. Samkvæmt tilkynningu um skiptalok í Lögbirtingablaðinu á fimmtudag námu lýstar kröfur í þrotabú Leikskólans 101 ehf. rúm­ um átta milljónum króna. Engar eignir fundust í búinu og lauk skiptum án þess að nokkur greiðsla fengist upp í kröfurnar. n mikael@dv.is Búið spil Skiptum er lokið á þrotabúi Leikskólans 101 ehf. Ekkert fékkst upp í lýstar kröfur í búið. Skólinn var úrskurðaður gjaldþrota í janúar 2014. Mynd KriStinn MagnúSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.