Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2015, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2015, Blaðsíða 8
8 Fréttir Helgarblað 20.–23. mars 2015 Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms-lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar-lögmaður Sérfræðingar í líkamstjónarétti M eðlimir Tólfunnar, stuðn- ingsmannahóps ís- lenska landsliðsins í knattspyrnu, urðu að hætta við að fylgja karla- liðinu til Kasakstans þrátt fyrir tveggja mánaða skipulagningu. Ástæðan er peninga- og tímaskortur. Leikurinn fer fram 28. mars. Hættu við heilmikið ævintýri „Þetta var hrikalega svekkjandi. Það tók góðan tíma að hætta að pirra sig á þessu því við vorum búnir undir- búa heilmikið ævintýri. En það þurfti bara að taka því. Ferðalagið er það langt að menn þurfa að vera með mjög gott bakland,“ segir Óskar Freyr Pétursson, meðlimur Tólfunnar, að- spurður. Kostnaðurinn við ferðalagið hefði numið tæplega tvö hundruð þús- und krónum, fyrir utan uppihald og vinnutap í heila viku, eða frá 25. mars til 1. apríl. Fimm úr Tólfunni höfðu ákveðið að fara og helmings- líkur voru á því að fjórir til fimm bættust í hópinn. Skipulagningin hófst um miðjan desember en um miðjan febrúar varð ljóst að ekkert yrði af ferðalaginu. Hefði þurft mánuð í viðbót „Þetta var of stórt dæmi. Við vorum komnir í samstarf við nokkra aðila en svo fór það þannig að ég náði ekki að virkja nógu marga. Tékklands- ferðin var brjáluð vinna en þessi ferð miklu stærra dæmi. Ég lagði ekki í þetta á þeim tíma sem ég hafði. Ég hefði þurft mánuð í viðbót,“ bætir hann við en Ísland sótti Tékkland heim 16. nóvember síðastliðinn þar sem Tólfan studdi landsliðið dyggi- lega. Afar mikilvægur leikur Leikurinn við Kasakstan er afar mikil vægur í baráttunni um að kom- ast áfram í lokakeppni EM. Sem stendur er íslenska landsliðið í öðru sæti í riðlinum með níu stig eftir fjóra leiki og þarf nauðsynlega að vinna Kasakstan, sem er í neðsta sæti, til að eiga áfram möguleika. Það verð- ur því skarð fyrir skildi að enginn úr Tólfunni verði á staðnum til að hvetja strákana til dáða á Astana Arena-vell- inum, enda hefur hópurinn staðið sig einkar vel á pöllunum undanfar- in misseri. Flott dagskrá fyrir bí Samkvæmt ferðatilhöguninni ætlaði hópurinn að millilenda í Kaup- mannahöfn og Moskvu á leið sinni til Kasakstans. Að sögn Óskars Freys var fyrirtækið Carlsberg, sem er stuðn- ingsaðili Tólfunnar, búið að skipu- leggja dag fyrir hópinn í Kaupmanna- höfn til að hitta stuðningsmannalið knattspyrnuliðsins FC Kaupmanna- hafnar. Einnig ætlaði hópurinn að eyða einum degi í Moskvu áður en flogið yrði til Kasakstans. Sömuleiðis var á stefnuskránni að fara til borgar- innar Tallinn að sjá vináttuleik Eist- lands og Íslands 31. mars. Töluðu við bankana og Icelandair Óskar og félagar reyndu að útvega styrktaraðila þannig að hópurinn kæmist út en þeim varð ekki kápan úr því klæðinu. „Það var rosalega erfitt. Reynslan er sú að þegar ekki er leikur á næstunni nennir enginn að spá í þetta. Þegar „hæpið“ kemur þá er hægt að tala við fólk. Það hef- ur margoft sýnt sig,“ segir hann. Með- al annars töluðu þeir við Íslands- banka, Arion banka og Icelandair, sem er aðalstyrktaraðili Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og þar með Knattspyrnusambands Íslands, en án árangurs. Dýrt að komast af klakanum Styrmir Gunnarsson, formaður Tólf- unnar, segir að kostnaðurinn sé fyrir- staða í útileikjum, sérstaklega þegar þeir eru í Kasakstan. „Fyrir þremur árum vorum við ekkert að spá í úti- leiki, vorum bara að hugsa um að gera Laugardalsvöllinn að gryfju en núna finnum við fyrir pressu að gera eitthvað í kringum útileikina. Við höfum samt þann djöful að draga að vera á þessum klaka. Útileikir eru ávallt dýrir því kostnaðurinn við að komast af landinu er 40 til 50 þús- und krónur,“ segir Styrmir. Verða bara ellefu í Kasakstan Hann viðurkennir að það sé leiðin- legt að enginn úr Tólfunni verið í Kasakstan til að styðja strákana, sem eru orðnir góðu vanir. „Við kannski áttum ekki Plzen-völlinn [í Tékklandi] en þeir í landsliðinu vissu vel af okkur og svo tókum við bara Ullevaall-völlinn [í Noregi í undankeppni HM í fyrra] og snýtt- um honum. En þeir verða bara ell- efu í Kasakstan, það verður ekki tólfti maðurinn þar,“ segir hann. „En ef maður tekur klisjuna á þetta þá verðum við með þeim í anda á Ölveri í hörkustemmara.“ n Tveggja mánaða skipulagning í súginn Peninga- og tímaskortur varð til þess að Tólfan varð að hætta við ævintýraferð til Kasakstan „Reynslan er þannig að þegar það er ekki leikur á næst- unni nennir enginn að spá í þetta. Þegar „hæp- ið“ kemur þá er hægt að tala við fólk. Það hefur margoft sýnt sig. Freyr Bjarnason freyr@dv.is Situr eftir heima Óskar Freyr Pétursson er ósáttur við að geta ekki stutt íslenska landsliðið í Kasakstan. Tólfan Óskar Freyr, Styrmir (annar frá hægri) og fleiri meðlimir Tólfunnar á góðri stundu. Héldu að skipsflauta væri biluð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk fjölda tilkynninga frá íbúum Vesturbæjar um mikinn hávaða frá Reykjavíkurhöfn á fjórða tím- anum aðfaranótt fimmtudags. Töldu einhverjir að bilun í skips- flautu ylli hávaðanum sem var svo mikill að margir vöknuðu og áttu erfitt með að sofna aftur. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu kom í ljós, þegar málið var kannað, að brunakerfi í einu skipi í Reykjavíkurhöfn, var bilað. Var gengið í málið, úr því bætt og gátu íbúar í grenndinni fest svefn að nýju. Þá var tilkynnt um eld í bifreið við Búagrund aðfaranótt fimmtu- dags. Slökkvilið náði að færa bif- reiðina frá íbúðarhúsi og slökkva eldinn en nærliggjandi bifreið skemmdist eitthvað. Bifreiðin var flutt af vettvangi með dráttarbif- reið. Var ekki rændur Á fimmtudagsmorgun barst lögreglu tilkynning frá er- lendum ferðamanni sem kvaðst hafa verið rændur. Tjáði hann lögreglu að greiðslukort hans hefði verið tekið og hann neyddur til að gefa upp pin-númer. Strax var hafist handa við rann- sókn málsins enda bar til- kynningin með sér að um alvarlegt mál væri að ræða, segir lögreglan. Eftir nokkra rannsókn kom í ljós að til- kynningin reyndist ekki í samræmi við endanlega frá- sögn mannsins og málið því ekki eins alvarlegt og fyrst var talið. Málið telst upplýst. 10,8 prósent hækkun F asteignaverð á höfuðborgar- svæðinu hefur hækkað um 10,8 prósent síðustu tólf mánuði. Verðið hélt áfram að hækka í febrúar síðast- liðnum en þá hækkaði það um 1,8 prósent. Þetta kemur fram í gögnum sem Hagsjá Landsbankans tók saman. Árshækkun fjölbýlis er nú 11,6 pró- sent og árshækkun sér- býlis 8,1 prósent. Hagsjá bendir á að vísitala neysluverðs án húsnæðis hafi lækkað síðustu tólf mánuði og hefur raunverð því hækk- að mikið. Raunverð fjölbýlis hefur hækkað um 13,3 prósent síðasta árið en sérbýlis um 9,7 prósent. Alls hefur því raunverð íbúðarhúsnæðis hækk- að um 12,4 prósent á síðustu tólf mánuðum. Frá hruni hafa viðskipti með íbúðarhúsnæði aukist nær stöðugt og bendir Hag- sjá Landsbankans á að í fyrra höfðu þau þrefaldast frá árinu 2009 þegar þau voru í lágmarki. Svo virðist sem þessi aukning hafi stöðvast og hefur fjöldi viðskipta verið óbreyttur síðustu fjóra mánuði sé miðað við tólf mánaða með- altal. Leiða má líkur að því að lítið framboð á húsnæði sé drifkrafturinn að baki verðhækkunum undanfar- in misseri. Eftirspurn eftir húsnæði hefur einnig aukist og samkvæmt lögmálinu eiga þessir tveir þættir að leiða til verðhækkana. n Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkar enn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.