Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2015, Blaðsíða 14
14 Fréttir Viðskipti Helgarblað 20.–23. mars 2015
Deilur tískukóngs og LBI
fyrir íslenska dómstóla
S
litastjórn gamla Lands
bankans (LBI hf.) hef
ur hafnað 11,6 milljarða
króna gagnkröfum breska
kaupsýslumannsins Kevins
G. Stanford sem fjárfestirinn vill að
gangi upp í skuld hans við kröfu
hafa slitabúsins. Ágreiningsmálið
er komið til kasta íslenskra dóm
stóla en það verður þingfest í Hér
aðsdómi Reykjavíkur 27. mars
næstkomandi.
Samkvæmt nýrri skýrslu
slitastjórnarinnar, sem var lögð
fram á kröfuhafafundi 12. mars
síðastliðinn og DV hefur und
ir höndum, eru kröfur Stanfords
settar fram sem skaðabótakröfur
sem eigi að koma til skuldajafn
aðar gegn kröfum sem yfirréttur í
London (e. High Court of Justice)
hefur dæmt hann til að greiða
LBI. Verði gagnkröfur Stanfords
samþykktar mun það hafa áhrif á
heimtur slitastjórnarinnar á lánum
með veðum í fasteign í miðborg
London og skíðaskála í frönsku
Ölpunum.
Þarf að greiða 4,4 milljarða
Í skýrslunni er rakið hvernig LBI
hefur síðustu ár staðið í málaferl
um fyrir enskum og frönskum
dómstólum vegna innheimtu á
tveimur fasteignaveðlánum sem
Stanford fékk hjá Landsbankanum
í Lúxemborg árið 2007. Lánin hafi
verið með veði í fasteign í Kens
ingtonhverfinu í miðborg London
annars vegar og skíðaskála á Cho
urchevelskíðasvæðinu í frönsku
Ölpunum hins vegar.
Árið 2012 voru lánin framseld
LBI með samningi milli slitastjórn
arinnar og skiptastjóra Lands
bankans í Lúxemborg. Málaferlin
voru þá þegar hafin en slitastjórn
LBI tók við fyrirsvari í þeim. Kröfu
gerð slitastjórnarinnar fyrir yfir
réttinum í London sneri að viður
kenningu á tilvist skuldar og
fullnustu veðréttar yfir fasteign
inni þar í borg. Samhliða þessu
gerði LBI kröfu um fullnustu veð
réttar yfir skíðaskálanum í frönsku
Ölpunum fyrir dómstólum í Frakk
landi. Málareksturinn þar í landi er
enn í gangi.
Breski yfirrétturinn féllst á kröf
ur LBI þann 25. nóvember í fyrra og
dæmdi Stanford til að greiða 17,4
milljónir punda og 5,7 milljónir
evra, jafnvirði samtals 4,4 milljarða
króna miðað við núverandi gengi,
auk áfallandi vaxta.
Kostnaðarsamt fyrir LBI
Réttaráhrifum dómsins var aftur á
móti frestað þar til niðurstaða um
leyfi til áfrýjunar lægi fyrir sem
og niðurstaða íslenskra dómstóla
um gagnkröfur Stanfords á LBI.
Samkvæmt skýrslunni var kröfu
um afhendingu fasteignarinn
ar í London frestað fram á mitt ár
2015 og Stanford gefinn kostur á að
fela fasteignasala að reyna að selja
hana í samráði við slitastjórnina.
Allar leigutekjur af eigninni eiga að
renna til LBI.
Málskostnaðurinn er hvorki
gefinn upp í skýrslunni né í dómi
breska yfirréttarins. Í skýrslunni
segir að dómsmálið hafi verið mjög
kostnaðarsamt, bæði fyrir LBI og
Landsbankann í Lúxemborg, en
Stanford var dæmdur til að greiða
kostnaðinn.
„Vonir standa því til að tak
ast muni að endurheimta þennan
kostnað að mestu,“ segir í skýrsl
unni. n
Breski athafnamaðurinn Kevin G. Stanford hefur krafið slitastjórn gamla Landsbankans um 11,6 milljarða króna
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Var viðskiptafélagi Baugs
Tengdist íslensku viðskiptalífi nánum böndum
K
evin Gerald Stanford er
þekktastur fyrir að hafa
stofnað bresku tískuversl
anakeðjuna Karen Millen
ásamt fyrrverandi eiginkonu sinni.
Hann var um tíma einn af stærstu
eigendum Mosaic Fashions sem
var fjórða stærsta tískuvörukeðja
Bretlands með um 1.700 verslan
ir í 27 löndum. Helstu vörumerki
félagsins voru Oasis, Coast, Karen
Millen og Whistles.
Mosaic var skráð á Aðalmarkað
Kauphallar Íslands í júní 2005 en
afskráð í október 2007. Samkvæmt
skýrslu rannsóknarnefndar Al
þingis um fall íslensku bankanna
voru Baugur, Kaupþing, og Stapi
fjárfestingarfélag stærstu eigendur
félagsins haustið 2008.
Stanford átti um tíma hús
við Ingólfsstræti í Reykja
vík en hann var giftur Kötlu
Guðrúnu Jónasdóttur. Hann
var fjórði stærsti hluthafinn í
Kaupþingi en bankinn keypti
um helming hlutafjár í Karen
Millen árið 2001. Breski fjár
festirinn var einnig einn af stærri
hluthöfum í FL Group, í gegnum
Materia Invest ehf., og átti hlut
í Baugi. Árið 2004 stóð Stanford
ásamt Baugi og fleiri fjárfestum
að kaupum á breska félaginu Big
Food Group sem átti meðal annars
verslanakeðjurnar Iceland, Booker
og Woodward.
Hluti eigna Stanfords end
aði í höndum skilanefnda ís
lensku bankanna eða varð gjald
þrota. Síðast var fjallað um hann
í íslenskum fjölmiðlum í tengsl
um við ákæru sérstaks saksóknara
á hendur fyrrverandi stjórnend
um Kaupþings vegna meintra
óheimilla lánveitinga þeirra til
eignarhaldsfélaga sem keyptu
skuldatryggingar á bankann í að
draganda hrunsins. Samkvæmt
ákæru sérstaks saksóknara var lán
að til nokkurra félaga en eitt þeirra,
Trenvis LTD, var í eigu Stanfords.
ÖRYGGISVÖRUR
VERKTAKANS
KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
– Þekking og þjónusta í 20 ár
Kemi • Tunguhálsi 10 • 110 Reykjavík
www.kemi.is • Sími: 415 4000
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30.
Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
Ágreiningsmál
Gagnkröfur
Kevins Stanford á
slitastjórn gamla
Landsbankans
verða teknar fyrir í
héraðsdómi .
600 milljóna sparnaður
15 þúsund fermetra nýbygging Landsbankans
L
ands bank inn ger ir ráð fyr ir
að rýma 28 þúsund fer metra
og koma starf sem inni sem
á þeim var fyr ir á 15 þúsund
fer metr um í ný bygg ing unni á lóð
bank ans við Aust ur höfn. Efnt verð
ur til sam keppni um teikn ing ar að
bygg ingu sem fell ur vel að um hverf
inu. Gerir bankinn ráð fyrir því að
með þessum breytingum náist fram
600 milljóna króna sparnaður á ári.
Þetta kom fram í ræðu Tryggva
Pálssonar, formanns bankaráðs
Landsbankans, á aðalfundi bank
ans síðastliðinn miðvikudag.
Hann benti á að eitt af þeim við
fangsefnum sem blasi við sé endur
skipulagning á húsnæði fyrir mið
lægar starfseiningar bankans en
í dag fer starfsemi þeirra fram í 19
húsum sem flest eru tekin á leigu.
„Engum dytti í hug að skipuleggja
höfuðstöðvar bankans með þess
um hætti ef nokkur kostur væri á
öðru. Með því að færa starfsemina í
hentugra húsnæði skapast tækifæri
til þess að fækka fermetrum undir
starfsemina um tæpan helming og
spara um leið verulegar fjárhæð
ir í rekstri bankans,” sagði Tryggvi í
ræðu sinni.
Fyrirhuguð nýbygging á lóð
bankans við Austurhöfn hefur mætt
andstöðu, þar á meðal stjórnmála
manna. Fram kom í máli Tryggva
að bankinn tæki mark á þeirri
gagnrýni. „Þrjár spurningar sem
vöknuðu í umræðunni eru lykilat
riði: Er þetta eyðsla eða sparnaður,
verður byggt stórhýsi sem skyggja
mun á Hörpuna og miðbæinn og
hvað verður gert við gömlu höfuð
stöðvarnar?”
Tryggvi sagði að brugðist yrði við
öllum þessum atriðum. Til stend
ur að efna til samkeppni um teikn
ingar að byggingu sem fellur vel að
umhverfinu. „Loks þurfum við að
sjá til þess að gamla, sögulega hús
ið við Austur stræti fái nýtt hlutverk
sem þjóðin getur verið stolt af en
annað húsnæði selt og leiguhús
næði rýmt. Við vinnum að farsælli
lausn og kynnum hana opinberlega
þegar málið er fullunnið.” n