Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2015, Blaðsíða 12
Helgarblað 20.–23. mars 201512 Fréttir
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
Fermingartilboð
20% afsláttur
Danish Design – falleg gæðaúr
á frábæru verði.
Tilboðsverð frá
14.900 kr.
20% afsláttur
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 151165
Hvattir til að sniðganga
vörur vegna hvalveiða
Hvalveiðum Íslendinga mótmælt á stærstu sjávarútvegssýningu Bandaríkjanna um síðustu helgi
T
ólf dýraverndunarsamtök
mótmæltu hvalveiðum Ís-
lendinga um síðustu helgi
á stærstu sjávarútvegssýn-
ingu Bandaríkjanna og
hvöttu gesti til að sniðganga vörur
matvælafyrirtækja sem kaupa
sjávar afurðir frá íslenskum fyrir-
tækjum sem tengjast veiðunum.
Hvalverndarsinnarnir höfðu þá út-
búið stórt skilti, með áletrun um að
551 langreyður hefði veiðst hér við
land frá árinu 2006, sem þeir keyrðu
um Boston í Massachusetts-ríki og
komu við á stöðum þar sem íslensk
matvæli og menning voru kynnt.
Skiltinu lagt við veitingastaði
Hvalverndarsinnarnir byrjuðu á að
keyra skiltið að kvikmyndahúsi í
borginni þar sem Iceland Naturally,
samstarfsverkefni ríkisstjórnar-
innar og tíu íslenskra fyrirtækja,
stóð á laugardag fyrir sýningu á ís-
lenskum kvikmyndum. Daginn eft-
ir var skiltinu lagt fyrir utan sjávar-
útvegssýninguna Seafood Expo
North America þar sem fimmtán
íslensk fyrirtæki kynntu sjávar-
afurðir og tæknilausnir í grein-
inni. HB Grandi, Iceland Seafood
og Fjarðalax voru á meðal þeirra
en markmiðið með þátttöku í sýn-
ingunni er að koma á viðskipta-
samböndum og auka sölu í Banda-
ríkjunum og Kanada. Samkvæmt
vefsíðu hvalverndarsinnanna, dont-
buyfromicelandicwhalers.com,
var skiltinu einnig lagt fyrir utan
tvo veitingastaði í Boston þar sem
Iceland Naturally stóð fyrir kynn-
ingu á íslenskri matargerð og tónlist.
Aðgerðirnar voru fjármagnað-
ar af Greenpeace, Animal Welfare
Institute (AWI) og hinum tíu dýra-
verndunarsamtökunum. Þær voru
liður í herferð sem hófst í mars í
fyrra þegar samtökin keyptu aug-
lýsingapláss á strætisvögnum og
neðanjarðarlestum í Boston undir
auglýsingar sem hvöttu fólk til að
sniðganga vörur sem hægt er að
tengja við hvalveiðar hér á landi.
Var þá vakin athygli á því að Ís-
lendingar hafa síðustu ár veitt hval
í atvinnuskyni í trássi við alþjóðlegt
bann sem hefur verið í gildi í tæpa
þrjá áratugi. Stuttu síðar fyrirskipaði
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, að endurskoða ætti tvíhliða
samstarf við Ísland vegna hvalveiða.
Einblína á HB Granda
Herferðin hefur einkum beinst að
HB Granda en ástæðan er tengsl
sjávarútvegsfyrirtækisins við
hvalveiðar. Vogun hf., sem er í eigu
Hvals hf., er stærsti hluthafi HB
Granda og Kristján Loftsson, for-
stjóri Hvals, er stjórnarformaður
sjávarútvegsfyrirtækisins.
Norður-ameríska matvælafyrir-
tækið High Liner Foods tilkynnti
í sama mánuði og herferðin hófst
í fyrra að það myndi ekki stunda
frekari viðskipti við HB Granda
vegna tengsla þess við hvalveiðar.
Ákvörðunin vakti mikla athygli og
í kjölfarið sendi Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, forstjóri HB Granda, frá
sér tilkynningu þar sem hann sagð-
ist ekki sjá ástæðu til að tjá sig í ís-
lenskum fjölmiðlum um viðskipti
fyrirtækisins við High Liner Foods.
Vilhjálmur minnti þá á að hluta-
bréf fyrirtækisins ganga kaupum
og sölum á markaði og sagði það
útilokað fyrir fyrirtækið að skipta
sér af því hvernig einstakir hluthaf-
ar hagi sínum högum.
„Við erum sammála stjórn-
völdum í skynsamlegri nýtingu
náttúruauðlinda en höfum ekk-
ert með það að gera hvaða starf-
semi einstakir hluthafar kjósa að
stunda eða stunda ekki,“
sagði Vilhjálmur í
tilkynningunni.
Rúmum mánuði síðar greindi
Bændablaðið frá því að bandaríska
verslanakeðjan Whole Foods hefði
ákveðið að hætta að auglýsa íslenskt
lambakjöt í verslunum fyrirtækisins
vegna hvalveiða Íslendinga. Í frétt
blaðsins var einnig fullyrt að útflytj-
endur á lambakjöti hefðu þurft að
beita talsverðum fortölum til að
fá stjórnendur Whole Foods til að
selja íslenska kjötið áfram. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Skiltið Samtökin lögðu þessu skilti fyrir utan stærstu sjávarútvegssýningu Bandaríkjanna
og fyrir utan veitingastaði og kvikmyndahús þar sem verið var að kynna íslensk matvæli og
menningu. Á skiltinu er meðal annars spurt: „Veist þú hver veiddi þitt sjávarfang?“
Forstjóri HB Granda
Vilhjálmur Vilhjálmsson.
Dýrið verkað Starfsmenn
Hvals hf. veiddu 134 langreyðar
árið 2013. mynD SiGtryGGur ari
Dæmdur til
að greiða fyrir
varahluti
Fyrrverandi starfsmaður í
varahlutaverslun Heklu hefur
verið dæmdur til að greiða bif-
reiðaumboðinu rúmlega eina
og hálfa milljón króna auk
dráttarvaxta vegna vöruúttekta
mannsins þegar hann vann þar.
Maðurinn naut afsláttarkjara
sem starfsmaður og nýtti sér
það óspart og safnaði veruleg-
um skuldum við vinnuveitanda
sinn. Hann var rekinn í nóvem-
ber 2013 vegna grófrar misnotk-
unar á aðstöðu sinni enda hafði
hann nýtt sér vöruúttektir í eig-
in þágu og í allmargar bifreið-
ar annarra og látið hjá líða að
reikningsfæra þær.
Með dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur var manninum, sem
einnig stefndi Heklu, gert að
endurgreiða umboðinu 1,5 millj-
óna króna skuld sem hann hafði
safnað upp en til frádráttar kem-
ur krafa mannsins að fjárhæð 202
þúsund króna vegna vangoldinna
launa fyrir nóvember 2013.
Var honum gert að greiða
Heklu 800 þúsund í málskostn-
að en allur gjafsóknarkostnaður
mannsins greiðist úr ríkissjóði,
þar með talin þóknun lögmanns
hans að upphæð 1,2 milljónir.
Sýna handritin
Fimm handrit voru á fimmtudag
flutt í lögreglufylgd í Aðalstræti
16 þar sem Landnámssýningin
– Borgarsögusafn Reykjavíkur er
til húsa.
Handritin verða hluti af sýn-
ingunni Landnámssögur – arfur í
orðum í Borgarsögusafni Reykja-
víkur. Sýningin hefst á laugardag.
Handritin hafa ekki verið til
sýnis í langan tíma og gefst því
almenningi tækifæri til að sjá
ein helstu menningarverðmæti
þjóðarinnar.