Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2015, Page 18
Helgarblað 20.–23. mars 201518 Fréttir
F
ramsóknar- og flugvallarvinir
í Reykjavík telja að svör við
fyrirspurnum kjörinna full-
trúa innan borgarkerfisins sé
svarað allt of seint. Fulltrúar Fram-
sóknar og flugvallavina í borgar-
stjórn biðu í rúma fjóra mánuði eft-
ir svörum við tveimur fyrirspurnum
flokksins í skóla- og frístundaráði
frá fulltrúa flokksins, annars vegar
varðandi notkun skólabúninga í
skólum borgarinnar og hins vegar
varðandi prentkostnað.
„Þetta tefur fyrir því að sveitar-
stjórnarmenn geti sinnt lögbundnu
eftirlitshlutverki sínu og stefnumót-
unarvinna þeirra líður fyrir það að
svör við fyrirspurnum berast eins
illa og seint og raunin er,“ segja full-
trúar flokksins í borgarstjórn og
bæta því við að það sé álit þeirra að
svörum við fyrirspurnum sé hrað-
að eins og kostur er og þau skili sér
innan eðlilegra tímamarka. n
S
eðlabankastjórum verður
fjölgað úr einum í þrjá og
embætti aðstoðarseðla-
bankastjóra lagt niður.
Þá er sú breyting kynnt til
sögunnar að ekki verður upplýst
opinberlega um nöfn umsækj-
enda að stöðu seðlabankastjóra.
Þetta er á meðal tillagna sem
nefnd um heildarendurskoðun
laga um Seðlabanka Íslands legg-
ur til í skýrslu sem hún hefur skil-
að til fjármála- og efnahagsráð-
herra, samkvæmt heimildum DV.
Nefndin skilaði áfangaskýrslu að
drögum að frumvarpi til nýrra laga
um Seðlabankann fyrir tveimur
vikum. Í uppfærðri þingmálaskrá
ríkisstjórnarinnar er boðað að
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, ætli að leggja
fram frumvarp á Alþingi byggt á
tillögum nefndarinnar ekki síðar
en 26. mars næstkomandi.
Samkvæmt heimildum DV
er lagt upp með að það verði
einn aðal seðlabankastjóri. Þá
verði að auki annars vegar seðla-
bankastjóri sem beri ábyrgð á fjár-
málastöðugleika og hins vegar
seðlabankastjóri sem hafi um-
sjón með verðstöðugleika. Ekki
er gert ráð fyrir stöðu aðstoðar-
seðlabankastjóra í tillögum að
breytingum á yfir stjórn bankans
en Arnór Sighvatsson hefur gegnt
því embætti frá árinu
2009 eftir að þáver-
andi ríkisstjórn
gerði viðamikl-
ar breytingar
á lögum um
Seðlabank-
ann. Seðla-
bankastjórum
var þá fækk-
að úr þremur
í einn auk þess
sem komið var
á fót peninga-
stefnunefnd
sem tekur
ákvörðun um vexti bankans.
Sú breyting sem jafn-
framt er lögð til, sam-
kvæmt heimildum DV,
að horfið verði frá því
að greina opinberlega
frá þeim einstaklingum
sem sækja um stöðu
seðlabankastjóra er
gerð í því skyni að auka
líkur á því að fleiri um-
sóknir berist frá hæfum
umsækjendum. Þegar
embætti seðlabankastjóra
var síðast auglýst laust til
umsóknar í júní árið 2014
sóttu tíu umsækj-
endur um
stöð-
una.
Ekki sameining FME og SÍ
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, skipaði nefnd
sérfræðinga um heildarendur-
skoðun laga um Seðlabankann í
maí á liðnu ári. Í nefndinni sátu
Ólöf Nordal, innanríkisráðherra
og formaður nefndarinnar, Frið-
rik Már Baldursson, hagfræðipróf-
essor við Háskólann í Reykjavík,
og Þráinn Eggertsson, hagfræði-
prófessor við Háskóla Íslands. Ólöf
Nordal var formaður bankaráðs
Seðlabankans en lét af því embætti
í desember á síðasta ári þegar hún
gerðist innanríkisráðherra.
Átti nefndin að gaumgæfa þró-
un á starfsemi annarra Seðlabanka
og löggjöf á sviði peningamála og
efnahagsstjórnunar með það að
markmiði að treysta trúverðugleika
og sjálfstæði bankans og traust
á íslenskum efnahagsmálum. Þá
átti nefndin einnig að kanna hvort
ástæða væri til gera breytingar á
skipulagi fjármálamarkaðar og
Fjármálaeftirlitsins í því skyni að
„efla samstarf og skýra verkaskipt-
ingu milli Fjármálaeftirlitsins og
Seðlabankans,“ eins og sagði í til-
kynningu fjármálaráðuneytisins.
Samkvæmt heimildum DV stend-
ur þó ekki til að ráðast í sameiningu
FME og Seðlabankans á þessu stigi.
Fram kom í áliti sendinefndar
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þann 19.
desember síðastliðinn að nauðsyn-
legt væri að viðhalda sjálfstæði og
trúverðugleika Seðlabankans. „Við
endurskoðun laga um bankann
ætti að styðjast við helstu endur-
bætur á stjórnskipan hans frá
2009, svo sem umgjörð um pen-
ingastefnunefnd, gagnsæi og trú-
verðugleika við ákvarðanatöku.
Trúverðugur, sjálfstæður og vel
fjármagnaður Seðlabanki eykur
mátt peningastefnu sem eflir fjár-
hagslegan stöðugleika og vöxt og
styður við losun fjármagnshafta,“
segir í álitinu.
Full þörf á endurskoðun
Sjö mánuðir eru síðan fjármála-
ráðherra endurskipaði Má Guð-
mundsson í embætti seðla-
bankastjóra. Í skipunarbréfi
ráðherra var hins vegar vakin
athygli á því að vinna væri hafin
við heildarendurskoðun laga um
Seðlabankann sem gætu haft áhrif
á störf Más í bankanum. Af því til-
efni sendi Már frá sér yfirlýsingu
þar sem meðal annars kom fram
að hann teldi fulla þörf á slíkri
endurskoðun.
Már benti hins vegar á að hann
hefði í nokkur ár haft hug á að
skoða þann möguleika að hverfa á
ný til starfa erlendis. „Ég taldi ekki
heppilegt að gera það nú í ljósi
ástandsins og verkefnastöðunnar
í Seðlabankanum auk fjölskyldu-
aðstæðna. Þetta mun breytast á
næstu misserum. Það er því óvíst
að ég myndi sækjast eftir endur-
ráðningu komi til slíks ferlis vegna
breytinga á lögum um Seðlabanka
Íslands á næstu misserum,“ sagði
í yfirlýsingu Más í ágúst á síðasta
ári. n
Seðlabankastjórum verður
fjölgað úr einum í þrjá
n Breytingar á yfirstjórn n Staða aðstoðarseðlabankastjóra lögð niður
Fjögurra mánaða bið
Telja borgina svara fyrirspurnum kjörinna fulltrúa of seint
Fjármálaráð-
herra Bjarni
Benediktsson.
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Seðlabankastjóri
Már Guðmundsson.
Breytingar á yfirstjórn Már Guðmundsson sagði
í ágúst síðastliðnum óvíst hvort hann myndi sækjast
eftir endurráðningu. Mynd Sigtryggur Ari