Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2015, Qupperneq 28
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
28 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Ritstjórnarfulltrúi: Jóhann Hauksson
Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir • Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Helgarblað 20.–23. mars 2015
Já, við erum skilin Það eru sveiflur í
þessu
Passíusálmarnir eru björg-
unarsálmar
Stöndum fyrir utan óvissuleiðangur ESB
Alma Dögg Torfadóttir er ófrísk og einstæð. – DV Haraldur Briem segir bóluefnið hafa virkað illa á Íslendinga. – DV Séra Vigfús Þór biðlar til björgunarsveitarfólks um að lesa Passíusálmana. – DV
A
llt frá því að lagt var af stað í
þá vegferð að sækja um að-
ild að Evrópusambandinu
árið 2009 hefur verið afar illa
haldið á þeim málum. Út-
spil ríkisstjórnarinnar í liðinni viku er
þar engin undantekning. Ekki virðist
liggja skýrt fyrir innan stjórnarflokk-
anna hvort að með bréfi utanríkis-
ráðherra til Evrópusambandsins hafi
aðildarumsókn Íslands formlega ver-
ið afturkölluð. Talsmaður stækkunar-
stjóra ESB hefur lýst því yfir að afstaða
sambandsins sé sú að það hafi ekki
verið gert.
Viðbrögð stjórnarandstöðunnar,
að stórum hluta sömu flokka og töldu
að það bryti ekki í bága við þings-
ályktun þáverandi ríkisstjórnar að
hætta viðræðum við ESB í ársbyrj-
un 2013 án samráðs við utanríkis-
málanefnd, hafa verið fyrirsjáanleg
– og verða seint talin einkennast af
hófstillingu. Formanni Samfylkingar-
innar hefur þannig tekist að saka ut-
anríkisráðherra um „landráð“ þrátt
fyrir að hann telji að aðildarumsóknin
sé í reynd enn í „fullu gildi.“ Ekki verð-
ur séð hvernig báðar fullyrðingar geta
staðist.
Á sama tíma og þessi umræða
stendur yfir á Alþingi þá fer minna fyr-
ir efnislegri umræðu um hvort Ísland
eigi yfirhöfuð erindi í Evrópusam-
bandið – og þar með upptöku evru –
í náinni framtíð. Sú staða þjónar hins
vegar hinum fáu talsmönnum aðildar
að ESB vel um þessar mundir. Yfirlýs-
ing um aðild að ESB og í kjölfarið upp-
töku evru átti á sínum tíma að vera
„töfralausn“ við efnahags- og fjár-
málalegum óstöðugleika. Sex árum
síðar er ljóst að slíkar yfirlýsingar voru
í besta falli hlægilegar.
Upptaka evrunnar hefur framkall-
að alvarlegustu kreppu Evrópusam-
bandsins frá stofnun þess – og engin
lausn er í sjónmáli. Hinn sameigin-
legi gjaldmiðill hefur magnað skulda-
kreppu einstakra aðildarríkja sam-
bandsins og gert að pólitískum og
efnahagslegum vanda fyrir allt mynt-
bandalagið. Sú skoðun var áður ríkj-
andi á meðal forystumanna Evrópska
seðlabankans að greiðslujafnaðar-
vandi, líkt og sá sem Ísland hefur glímt
við frá bankahruninu, myndi ekki
skipta máli hjá aðildarríkjum evru-
svæðisins. Þeir höfðu stórkostlega
rangt fyrir sér.
Reynsla Kýpverja, sem þurftu í árs-
byrjun 2013 að setja víðtækar höml-
ur á fjármagnshreyfingar á milli landa
og úttektir af bankainnstæðum, sýnir
glögglega að losun fjármagnshafta á
Íslandi tengist ekki gjaldmiðilsvanda
vegna krónunnar. Á sama tíma og út-
lit er fyrir að Ísland sé að stíga afger-
andi skref úr viðjum hafta eru raun-
verulegar líkur á því að fleiri evruríki
– einkum og sér í lagi Grikkland –
verði nauðbeygð til þess á komandi
misserum að kynna til sögunnar fjár-
magnshöft í því skyni að koma í veg
fyrir að skarpt útflæði fjármagns sem
muni að lokum orsaka djúpstæða fjár-
málakreppu. Allar evrur eru nefnilega
ekki jafnar þegar á reynir.
Aðeins þeir sem kjósa að setja kík-
inn fyrir blinda augað geta haldið því
fram að það hafi ekki verið meirihátt-
ar pólitísk og hagfræðileg mistök að
stofna til evrópska myntbandalagsins.
Stefnusmiðir á evrusvæðinu standa
frammi fyrir fordæmalausri áskorun
á komandi árum. Hin alþjóðlega fjár-
málakreppa varpaði ljósi á kerfislæga
galla evrunnar – og þeir verða ekki
leystir í bráð. Eigi myntsvæðið að geta
lifað af í óbreyttri mynd þarf að koma
á fót pólitísku sambandsríki. Slíkur
leiðangur mun ekki njóta stuðnings
hins lýðræðislega vilja almennings í
Evrópu. Ráðamenn á evrusvæðinu
eru á milli steins og sleggju.
Hagsmunir Íslands felast hins
vegar óumdeilanlega í því að standa
fyrir utan þann óvissuleiðangur í fyrir-
sjáanlegri framtíð. Ísland yrði jaðar-
ríki í slíku bandalagi. Uppbygging
hagkerfisins er einfaldlega með þeim
hætti – og breytist ekki við það eitt
að taka upp evru – að það er mikil-
vægt að Íslandi búi við sveigjanlegt
gjaldmiðlakerfi þar sem gengið getur
aðlagað sig þegar framboðsskellur
verður í hinum hlutfallslega fáu út-
flutningsgreinum þjóðarbúsins. Ís-
land verður aldrei Þýskaland enda
hefur hagsveiflan hér á landi lítil sem
engin tengsl við hagsveifluna í kjarna-
ríkjum evrusvæðisins. Þegar alvarleg
efnahagsáföll koma upp þá verður Ís-
land fast í spennitreyju myntbanda-
lags þar sem úrræði stjórnvalda munu
einskorðast við aukið atvinnuleysi og
launalækkanir með handafli.
Tíma alþingismanna yrði bet-
ur betur varið í umræður um óleyst
vandamál heima fyrir en tilgangslaust
karp um misráðna aðild að Evrópu-
sambandinu. n
Ekki sigurstrangleg
Fyrirfram var talið að lands-
fundur Samfylkingarinnar yrði í
daufara lagi en Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir hleypti fjöri í leikinn
þegar hún tilkynnti óvænt í gær,
fimmtudag, um formannsfram-
boð sitt gegn Árna Páli Árnasyni.
Sigríður Ingibjörg gæti feng-
ið nokkuð fylgi á fundinum, en
afar ólíklegt er talið að hún muni
vinna formanninn. Þótt Árni Páll
sé ekki óumdeildur innan Sam-
fylkingar á hann samt stóran hóp
sem mun eflaust fylkja sér um
hann. Einnig verður að taka með
í reikninginn að innan Samfylk-
ingarinnar er Sigríður Ingibjörg
jafnvel umdeildari en formað-
urinn.
Hvað gerir Ari?
Í viðskiptalífinu velta menn því
fyrir sér hvað
Ari Edwald taki
sér fyrir hendur
á næstunni, nú
þegar hann er
laus undan skyld-
um forstjóra fjöl-
miðlafyrirtækis-
ins 365.
Ari er lögmaður og er byrjaður
að praktísera sem slíkur, en þó
eiga margir von á að hann hafi
áhuga á forstjórastarfi í fyrirtæki,
bjóðist það á næstunni.
Óvissuferð Illuga
Ferð Illuga Gunnarssonar mennta-
málaráðherra til Kína hefur vak-
ið upp spurningar. Eyjan.is sagði
frá því á þriðjudag
að ferðin stæði
fyrir dyrum en að
ekki hefðu fengist
upplýsingar um
tilgang hennar,
dagskrá né föru-
neyti ráðherrans.
Einkennilegt þykir að ekki liggi
fyrir dagskrá ferðar af þessu tagi
þremur dögum áður en haldið
skal af stað en ráðherra held-
ur til Kína í dag. Upplýsingar um
dagskrá ferðinnar komu svo loks
frá menntamálaráðuneytinu í
gær, fimmtudag. Hinni formlegu
heimsókn lýk ur 26. mars.
Margir halda um
ráðherrapennann
Menn hafa velt fyrir sér samráð-
inu sem Gunnar Bragi Sveinsson
utanríkisráðherra hafði við ráða-
menn í Brussel
um ritun og efni
uppsagnarbréfs-
ins fræga. Nefndi
hann að háttsett-
ir embættismenn
sínir hér innan-
lands hefðu kom-
ið þar nærri. Á fundi Viðreisnar-
manna í vikunni var því hvíslað
að enn einn kunnur áhrifamaður
hér á landi hafi komið nærri ritun
bréfsins. Sá heitir Eiríkur Svavars-
son, lögfræðingur og Indefence-
maður. Nú síðast hefur nafn
hans tengst ríflegum opinberum
styrkjum til Matorku sem hann á
hlut í ásamt konu sinni.
Á
að selja áfengi í matvörubúð-
um eða ekki?
Áhugaverð spurning. En
henni ætla ég ekki að svara í
þessum stutta pistli.
Þess í stað langar mig örlítið að
fjalla um ákvörðunarferlið sjálft, þ.e.
hvernig við myndum svara spurn-
ingunni á sem lýðræðislegastan
hátt. Í sjálfu sér má taka fyrir eitt-
hvert annað mál en þetta er tekið fyr-
ir vegna þess að flestir hafa skoðun á
því sem byggir yfirleitt á misjöfnum
forsendum, viðhorfum og fjölbreyttu
gildismati fólks.
Þannig er með málavexti að svona
ákvarðanir eru teknar af 63 þing-
mönnum sem starfa á Alþingi.
Ákvarðanir sem þessar eru sum
sé teknar af fólki sem hefur tekið
meðvitaða ákvörðun um að bjóða
sig fram í alþingiskosningum og ná
þannig nógu mörgum atkvæðum til
að verða ýmist þingmaður eða ráð-
herra.
Þetta er hins vegar eina fólkið sem
tekur þátt í ákvörðuninni. Með öðr-
um orðum, til þess að hafa nokkuð að
segja um það hvort áfengi skuli selt í
matvörubúðum eða ekki, þarf mann-
eskja að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
Hún þarf að mynda sér skoðun
í öllu sem spyrli í fréttaskýringa-
þætti gæti dottið í hug að spyrja um.
Ömur leg skoðun er þá jafnan skárri
en engin skoðun.
Hún þarf að segja upp í vinnu
sinni, eða hætta í skóla og hefja fullt
starf við að meðal annars sökkva sér
inn í alls konar málefni svo sem utan-
ríkismál, samgöngur, auðlindamál
og náttúruvernd.
Hún þarf að verða opinber
persóna sem allir vita hver er, með
allri þeirri félagslegu fötlun sem
frægðinni fylgir.
Uppfylli hún ekki að minnsta
kosti þessi skilyrði er hún sjálfkrafa
úr leik og fær engu að ráða um áfeng-
issölu í matvöruverslunum, sama
hversu vel hún hefur kynnt sér efnið
og sama hversu vel hún getur rök-
stutt sína skoðun.
Upplýst skoðun
Nú getur manneskja sem hyggst
starfa við að taka ákvarðanir fyrir
hönd annarra vel sætt sig við þessi
skilyrði, enda verða þau til við það
að fólk bjóði sig fram og beinlínis
sækist eftir völdum. Þegar 63 mann-
eskjur taka ákvarðanir fyrir 240.000
manneskjur er eðlilegt að þær búi
við fyrrgreindar kröfur og svari oft
og ítarlega fyrir skoðanir sínar og
ákvarðanir.
En ekkert af þessu er á neinn hátt
nauðsynlegt til þess að mynda sér
upplýsta skoðun á afmörkuðu máli
eins og því hvort áfengi skuli selt í
matvörubúðum. Hvort áfengi skuli
selt í matvörubúðum er í megin-
atriðum ein spurning sem ekki þarf
heilan starfsframa og margra ára
sviðsljós fjölmiðla til að svara fyrir
sjálfan sig. Þegar atkvæðisvægið er
í beinu hlutfalli við þann fjölda sem
þola þarf ákvörðunina er enn frem-
ur engin sérstök þörf á neins konar
pólitísku aðhaldi nema í formi upp-
lýstrar umræðu.
Enn fremur má gera ráð fyrir því
að venjulegt fólk kæri sig ekkert um
að búa við fyrrgreindar aðstæður
til þess eins að taka ákvörðun sem
þessa. Venjulegt fólk með skoðun
á einstaka málefni vill geta notið
einkalífs, starfað við það sem því
sýnist og skipulagt tíma sinn sjálft.
Almennt hefur fólk engan áhuga á
því að verða að umdeildum, opin-
berum persónum, jafnvel þótt það
hafi mjög sterkar, vel upplýstar og vel
rökstuddar skoðanir.
Gjá milli þings og þjóðar
Það er því óeðlileg krafa á hendur
þeim sem vilja taka sinn litla þátt í
ákvörðunarferli um mál sem þessi,
að þau sigri í kosningum til þess að
öðlast þann rétt. Hér liggur nefni-
lega einn stærsti galli fulltrúalýð-
ræðisins; þverskurður þjóðarinnar
hefur engan sérstakan áhuga á völd-
um og því er ekki við því að búast að
valdhafar almennt séu þverskurður
þjóðarinnar, jafnvel í lýðræðisríki.
Það er óháð því hvort frambjóðend-
ur sækist eftir völdum í þágu þjóðar
eða eigin hagsmuna.
Með hliðsjón af fyrrgreindu ætti
það í rauninni ekki að koma nein-
um á óvart að viðvarandi gjá sé milli
þings og þjóðar, jafnvel þegar hið
stjórnmálalega loftslag er tiltölulega
friðsælt.
Af þessu leiðir að þjóðaratkvæða-
greiðslur ættu ekki bara að vera ein-
hvers konar öryggisventill á Alþingi,
né þess þá heldur áfellisdómur yfir
störfum þess, heldur ættu þjóðar-
atkvæðagreiðslur að vera tiltölu-
lega algengur og eðlilegur hluti
ákvörðunarferlisins sjálfs. n
Málskotsréttur þjóðarinnar;
ekki bara öryggisventill„En ekkert af þessu
er á neinn hátt
nauðsynlegt til þess
að mynda sér upplýsta
skoðun á afmörkuðu máli
eins og því hvort áfengi
skuli selt í matvörubúð-
um.
Helgi Hrafn Gunnarsson
þingmaður Pírata
Kjallari
Leiðari
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
„Sex árum síðar er
ljóst að slíkar yfir-
lýsingar voru í besta falli
hlægilegar.