Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2015, Side 45
Lífsstíll 45Helgarblað 20.–23. mars 2015
Hlutverkaleikur
Lostakvendi táldregur
bókhneigðan mann.
T
ilbreyting í kynlífinu er mik-
ilvæg til að halda kynlífs-
samböndum ferskum og
spennandi. Bæði karlar
og konur örvast kynferðis-
lega af nýjungum ... þess vegna er
grasið nú oft grænna hinum megin
við girðinguna. Ef fólk í sambönd-
um ætlar að halda lostanum á lífi er
því eins gott að huga að þessu áður
en rútínan drepur kynlífið. Hér eru
nokkrar hugmyndir að spennandi
tilbreytingum sem gætu hrist aðeins
upp í hlutunum.
1 Valdaskipti Í kvöld færð þú að ráða en á morgun snýst það
við. Sá sem ræður ákveður ALLT og
hinn þarf að hlýða. Til þess að þetta
verði skemmtilegt fyrir báða þarf
vissulega að vera búið að ræða um
mörk – hvað má og hvað má ekki –
og að sjálfsögðu er gott að hafa augu
og eyru opin á meðan kynlífsleik-
urinn stendur yfir. Ef þig hefur alltaf
dreymt um að fá að sleikja konuna
þína í klukkutíma, en hún aldrei
nennt að hafa þig milli fótanna leng-
ur en korter er þetta gullið tækifæri!
2 Kynlíf um miðja nótt Prófið að láta vekjaraklukkuna
hringja um miðja nótt og byrjið
tafarlaust að kela og knúsast og
nuddast og njótast. Gerið þetta helst
þegar það er frí daginn eftir!
3 Fjötrar Léttar bindingar geta verið
skemmtilegar. Sá bundni
verður bara að gjöra svo vel
að slaka á og njóta. Þetta
þarf ekki að vera flókið eða
útheimta innkaupaferð í Byko.
Prófið að nota trefla eða klúta, samt
ekki silkiklúta því hnútarnir eiga það
til að herðast svo hrottalega að þeir
verða varla leystir, og ekki nota neitt
sjúklega dýrmætt sem þú myndir
ekki tíma að klippa. Ekki herða neitt
að hálsi og ekki binda svo fast að þú
truflir blóðflæði.
4 Kynlíf án samfara Það er nefnilega til! Alltof margir
eru gjörsamlega samfaramiðaðir í
kynlífi sínu en undir þeim kringum-
stæðum vill gleymast að líkamar
okkar eru meira en bara kynfærin.
Notið hendur, munn, fætur og allt
hina líkamshlutana sem gaman er
að gæla við. Samfarir eru bannaðar
og þær hömlur ættu að kveikja á
sköpunargleðinni.
5 Munngælur að morgni Deilir þú rúmi með
einhverjum sem á erfitt með
að vakna á morgnana?
Prófaðu að vekja hann/
hana með munngælum.
6 Hlutverkaleikur Prófið að skrifa hand-
rit og leikið það svo í svefnher-
berginu. Hér er tækifæri til þess
að máta ýmiss konar hlutverk sem
mega alveg vera órafjarri raun-
veruleikanum. Kannski hefur þig
alltaf dreymt um að leika stöðu-
mælavörð sem hefur skyndisam-
farir við prest, eða húsþrifakarl sem
serðir seiðkonu. Hlutverkaleikir eru
framlenging á
kynórum og
bráðskemmti-
leg iðja fyrir
skapandi kyn-
verur.
7 Húslestur Lesið erótískar sögur hvort/hver/hvor fyrir
annað/aðra/annan. Kannski eru
einhverjar blautlegar bókmenntir til
á heimilinu en ef ekki er tilvalið að
kíkja á síður eins og literotica.com.
Þeir sem finna sköpunarþörfina
ólga innra með sér ættu endilega
að prófa að stinga niður penna og
skrifa sína eigin erótík.
8 Samfróun Það er ljómandi skemmtilegt að fróa sér
saman. Eða skiptast á að horfa á
hvort/hverja/hvorn annað/aðra/
annan. Ef athyglisgáfan er í lagi
er hægt að komast að alls konar
lostaleyndarmálum um hinn aðil-
ann og nýta þau síðar í ástarleikjum.
Sjálfsfróun er persónuleg reynsla
sem við stundum yfirleitt í einrúmi
– þannig er þetta fyrirtaks leið til að
auka nánd milli elskenda. n
Átta nýjar leiðir í
svefnherberginu
n Húslestur, hlutverkaleikir og samfróun n Eitthvað fyrir alla!
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Rétt hegðun
í BDSM-partíi
Grasrótarhreyfingin Reykja-
vík Munch hefur undanfarna
mánuði staðið fyrir opnum leik-
partíum á skemmtistaðnum Pal-
oma. Í fyrstu stóð til að halda eitt
partí en aðsóknin hefur verið slík
að hópurinn hyggst halda sínu
striki fram á sumar. Partíin, sem
hafa hina þjálu yfirskrift RMSSS-
DLP (Reykjavík Munch Svaka
Skemmtilegt Súper Dúper Leik-
partýs Leikpartý), eru opin fólki
yfir 18 ára en á staðnum gilda
strangar reglur um hegðun og
virðingu. Spenntir geta nálgast
upplýsingar á Facebook-síðum
Reykjavík Munch og BDSM á Ís-
landi, en hér eru reglurnar sem
gestir þurfa að fara eftir:
n Hér eru allir
vinir.
n Við viljum
benda gestum á
að virða trúnað
við aðra.
n Það sem gerist í RMSSSDLP
verður í RMSSSDLP.
n Öllum er velkomið að fylgjast
með því sem er að gerast en á
sama tíma er ekki í boði að trufla
fólk í leik.
n Athugið að hávaði eins og hróp
og hlátur geta truflað fólk í leik.
n Virðum persónulegt rými
fólks.
n Ölvun er ekki velkomin.
n Ekki taka myndir án sam-
ráðs við stjórnendur og alla þá
sem hugsanlega geta sést á
myndinni. Best er að fá hirðljós-
myndarann til að taka alvöru
mynd fyrir sig.
n Það er bannað að snerta annað
fólk án leyfis.
n Það er líka bannað að snerta
dót annarra án leyfis.
n Það er alls engin skylda að
leika eða taka þátt í einu eða
neinu.
n Það má segja já og það má
segja nei.
n Berum virðingu fyrir öðrum og
því sem þeir/þær/þau/það eru
að gera og fíla.
Nútímafólk með athyglisbrest á stefnumóti Koddahjal
Umsjón: Sirrý Margrét Lárusdóttir
og Smári Pálmarsson Lostafulla
tæknihornið
Love Life Role Play er nafn á
skemmtilegu smáforriti sem hægt
er að hlaða niður ókeypis í snjall-
síma. Eins og nafnið gefur til
kynna er forritið sérhannað hjálp-
artæki fyrir hlutverkaleiki elsk-
enda sem ætla að krydda kynlífið.
Hægt er að láta forritið velja
senu, kasta upp á hlutverkin og
hefja leika. Senurnar sem eru í
boði eru ansi fjölbreyttar, en sum-
ar að sama skapi klisjukenndar.
Þarna eru gamalkunn minni eins
og lögregluþjónninn og ökudólg-
urinn, fasteignasalinn og húseig-
andinn, stjórnmálaleiðtoginn og
aðstoðarmaðurinn og húsfreyjan
og pípulagningamaðurinn. Flestir
ættu að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi.