Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2015, Page 52
Helgarblað 20.–23. mars 201552 Menning
Gagnslaus hönnun fyrir betri framtíð
V
ið gerum ráð fyrir að
hönnun eigi að vera gagn-
leg, en þegar maður hann-
ar eitthvað sem virkar
gagnslaust platar það fólk
og skýtur því skelk í bringu. Þetta
magnar tilfinningalegu tengslin
við hönnunina. Smám saman ger-
um við okkur grein fyrir því að
þetta var ekki gagnslaust held-
ur fólst gagnið í því að hönnun-
in vakti okkur til umhugsunar,“
segir Anthony Dunne, einn að-
alfyrirlesara á Hönnunarmars.
Dunne skipar helming hins fram-
sækna hönnunarteymis Dunne &
Raby ásamt eiginkonu sinni, Fionu
Raby.
Gagnrýni í gegnum hönnun
Ólíkt flestum vöruhönnuðum sem
gera neysluvörur straumlínulag-
aðri, notendavænni, hagkvæmari
og söluvænlegri reyna Dunne og
Raby þvert á móti að vekja fólk til
umhugsunar um hönnunina sjálfa,
samfélagið og samtímann, hönnun
sem miðar ekki að því að leysa
vandamál og fá fólk til að kaupa
vörur heldur að spyrja spurninga.
Þessa iðju tók Dunne upp eft-
ir hefðbundið hönnunarnám og
stutt stopp hjá Sony Design í Jap-
an. Um miðjan tíunda áratuginn,
þegar þau höfðu bæði fengið
stöðu við Royal College of Arts
í London, tóku hjónin að nefna
þessa aðferðafræði sína „gagnrýna
hönnun“ (e. Critical design).
„Í grunninn þýðir það að nota
hönnun til að spyrja gagnrýnna
spurninga um tækni. Til dæmis
var eitt af fyrri verkefnunum okk-
ar aukahlutur fyrir farsíma. Í stað
þess að reyna að svara því hvern-
ig við gætum gert símann not-
endavænni, aukið aðdráttarafl
hans eða jafnvel gert hann hag-
kvæmari í framleiðslu, spurðum
við hvaða áhrif bylgjurnar sem
koma frá honum hafa á líkamann
og hvort fólk vissi yfirhöfuð að sím-
ar geisluðu frá sér orku? Við ákváð-
um að hanna tæki sem gerði þessa
ósýnilegu geislun sýnilega, og það
átti að vekja fólk til vitundar svo
það gæti rökrætt málið. Þannig að
við notum tungumál hönnunar:
neysluvara, húsgagna, klæðnað-
ar og aðdráttarafl hönnunarinnar
til að draga fólk inn og heilla það,
en við erum að spyrja spurninga
eða jafnvel ögra fólki til að velta sér
upp úr erfiðum hugmyndum,“ seg-
ir Dunne.
Tækið sem Dunne nefnir var
hluti af Lyfleysuverkefninu (e.
Placebo project), sem eins og
nafnið gefur til kynna var röð
hönnunarafurða sem virkuðu
eins og lyfleysur gegn vandamál-
um samtímans. „Hönnun er tak-
mörkunum háð og einnig við sem
einstaklingar. Svo hvað gat mað-
ur gert ef maður áleit rafsegul-
bylgjur vandamál þarna í kringum
aldamótin? Maður gat ekki bara
slökkt á símasendunum eða fram-
leitt eigin síma, en maður gat leitt
þessi mál fyrir sjónir almennings.
Að þessu leyti er þetta ákveðinn
aktívismi. Þetta snýst um að gera
heiminn að betri stað. En frekar
en að einbeita sér að því að breyta
efnisheiminum snýst þetta um
að breyta viðhorfum, skoðunum,
gildum og hugmyndum – að hafa
áhrif á hugsun fólks. Og ef hugur
fólks fyllist af áhugaverðum hug-
myndum mun betri heimur leiða
af því,“ segir Dunne.
n Okkur dreymir ekki lengur, við bara vonum, að sögn Anthony Dunne
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Höfum frelsi til að
móta framtíðina Ant-
hony Dunne flutti fyrirlestur
um hönnun fyrir mögulegar
framtíðir á Hönnunarmars.
Mynd SiGtryGGur Ari
Of fjölmenn framtíð Í
þessu verkefni gera Dunne &
Raby ráð fyrir að stjórnvöld-
um heims takist ekki að
leysa matarskort mannkyns
og því þurfi einstaklingar
að finna nýjar leiðir til að
afla sér mata. Innblásin af
meltingarferlum ýmissa
dýra þróuðu þau tæki sem
gætu nýst við fæðuöflun
mannkyns í framtíðinni.
Stíga út fyrir þægindarammann
rökkurró fagnar útgáfu þriðju breiðskífu sinnar, Innra, með tónleikum á föstudagskvöld
Þ
etta er fyrsta platan þar sem
textanir eru mestmegnis á
ensku og okkur langaði að
nafnið á plötunni gæti svo
gott sem skilist á báðum tungumál-
um. Lengi vel var eina orðið sem
okkur datt í „best“ en það var aug-
ljóslega aldrei að fara að gerast,“
segir Árni Þór Árnason, gítarleikari
hljómsveitarinnar Rökkurró, sem
fagnar útgáfu þriðju breiðskífu
sinnar, „Innra“, með tónleikum á
skemmtistaðnum Húrra á föstu-
dagskvöld klukkan 21.00. Innra
hefur hlotið góðar viðtökur gagn-
rýnenda og er hljómsveitin meðal
annars tilnefnd til Menningarverð-
launa DV 2014 fyrir plötuna.
Tónlist sveitarinnar hefur
hingað til verið viðkvæm og lág-
stemmd jaðarpopptónlist en nú
hefur hljóðheimurinn stækkað,
orðið rafrænni og fjölbreyttari.
„Áður vorum við einhvern veginn
að reyna að vinna innan einhvers
ákveðins ramma, hugmyndar eða
ímyndar í kollunum á okkur um
það hvernig hljómsveit Rökkurró
væri. Við hefðum til dæmis aldrei
leyft okkur að setja „afróbít“-kafla
í lag á fyrri tveimur plötunum sem
er raunin á þessari. Sömuleiðis
hafði okkur lengi langað að prófa
okkur áfram í raftónlist en svolítið
látið það stoppa okkur að enginn
okkar væri sérfræðingur í slíku
og það væri á skjön við „soundið“
okkar,“ segir Árni.
Hér sleppti hljómsveitin hins
vegar af sér beislinu og þakkar Árni
það meðal annars upptökustjóran-
um Helga Hrafni Jónssyni, en plat-
an var tekin upp í hljóðveri Helga
og eiginkonu hans, Tinu Dico, í
Danmörku. „Helgi hjálpaði okkur
alveg ótrúlega mikið og ekki síst
með það að vera óhrædd við að
stíga út fyrir þægindarammann
og viðurkenna fyrir sjálfum okkur
að við værum að gera popptónlist.
Markmiðið var að hreyfa við sem
flestum hlustendum. Ef það yrði
talið popp þá var það líka bara allt
í lagi.“
Ítarlegra viðtal við Árna Þór má
finna á dv.is/menning. n
kristjan@dv.is
Fjölbreyttari en fyrri plöturnar
Árni Þór segir að við gerð plötunnar hafi
Rökkurró þurft að viðurkenna fyrir sjálfri sér
að hún væri að gera popptónlist.
Mynd SKjáSKOt
Metsölulisti
Eymundsson
11. mars –17. mars 2015
Íslenskar kiljur
1 Britt - Marie var hérFredrik Backman
2 Dansað við björninnRoslund & Thunberg
3 ViðDavid Nicholls
4 AfturganganJo Nesbø
5 AlexPierre Lemaitre
6 NáðarstundHannah Kent
7 ÖræfiÓfeigur Sigurðsson
8 VesturfarasögurnarBöðvar Guðmundsson
9 LjónatemjarinnCamilla Läckberg
10 Kamp KnoxArnaldur Indriðason
Allar bækur
1 Britt - Marie var hérFredrik Backman
2 Dansað við björninnRoslund & Thunberg
3 ViðDavid Nicholls
4 AfturganganJo Nesbø
5 Meðvirkni - Orsakir, einkenni, úrræði
Ýmsir höfundar
6 AlexPierre Lemaitre
7 KortAleksandra Mizielinscy/
Daniel Mizielinscy
8 Náðarstund kiljaHannah Kent
9 Öræfi kiljaÓfeigur Sigurðsson
10 VesturfarasögurnarBöðvar Guðmundsson