Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2015, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2015, Page 17
Páskablað 31. mars–7. apríl 2015 Fréttir 17 Alhliða veisluþjónusta Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is Gerðu daginn eftirminnilegan Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir Veisluréttir úr smiðju meistarans · Eingöngu fyrsta flokks hráefni Skírn · Ferming · Útskrift · Brúðkaup Gullnámur í gömlu bönkunum n Slitastjórnir hafa tekið sér milljarða í þóknanir síðastliðin fjögur ár n Hæstar hjá Glitnisfólki n Leynd yfir þóknunum hjá LBI n Veislunni senn að ljúka En hvernig gengur að ljúka slitameðferð bankanna? Slitastjórnum hefur verið legið á hálsi fyrir að draga það fram úr hófi að ljúka því að slíta þrotabúunum og maka krókinn í leiðinni. Hefur því verið haldið fram að fjár- hagslegir hagsmunir slitastjórnarmanna liggi í því að ferlið dragist á langinn. Yfirlýst stefna þeirra allra er þó að ljúka þessu sem fyrst en verkefnin eru vissulega risavaxin. LBI klári fyrir 2016 Páll Benediktsson, hjá LBI, segir stöðuna á slitameðferðinni góða. LBI hf. hafi innheimt tæplega 1.300 milljarða króna af þeim 1.637 milljörðum sem áætlað er miðað við stöðuna í árslok 2014, eða tæplega 80 prósent af áætluðum heildarinnheimtum. Alls 1.118 milljarðar hafi verið greiddir upp í forgangskröfur eða 84 prósent af kröfum. Áætlanir slitastjórnar gera ráð fyrir að búið verði að innheimta nægt fé til að greiða eftirstöðvar þeirra, alls 210 milljarða króna, fyrir árslok 2016. „Sem fyrr stefnir slitastjórn að því að ljúka slitameðferð LBI með nauðasamningi þegar greiðslu slíkra forgangskrafna hefur verið lok- ið og er undirbúningur hafinn í þeim efnum.“ Afstaða ráðherra og Seðlabanka ræður miklu Slitastjórn Kaupþings segir að rík áhersla hafi verið lögð á að ljúka slitameðferðinni á sem skemmstum tíma með nauðasamningi. Umtalsverð verðmætaaukning hafi orðið á eignum félagsins frá upphafi slitameð- ferðar og vel hafi gengið að umbreyta eignum í handbært fé og mikill árangur náðst í úrlausn ágreiningskrafna. Sú vinna sé langt komin. Verkefnum fari fækkandi eftir því sem uppgjöri búsins vindur fram. Enda- hnúturinn sé þó í höndum stjórnvalda. „Slitastjórn getur ekki lokið slitameð- ferðinni einhliða að óbreyttum lögum. Greiðslur til kröfuhafa, hvort heldur er í tengslum við nauðasamning eða í kjölfar gjaldþrotaskipta, eru háðar samþykki Seðlabankans að höfðu samráði við fjármála- og efnahagsráðherra. Afstaða Seðlabankans og ráðherra mun því ráða miklu um það hvernig og hvenær slitameð- ferð lýkur. Í samræmi við ofangreint óskaði slitastjórn Kaupþings eftir undanþágu frá gjaldeyrishöftum í október árið 2012. Vinnu Seðlabankans við mat á greiðslujafnað- aráhrifum umsóknarinnar er ekki lokið og hefur því ekki verið tekin endanleg afstaða til hennar. Það er forsenda þess að hægt sé að ljúka slitameðferð Kaupþings og þar með vinnu slitastjórnar,“ segir Davíð Stefánsson hjá Kaupþingi í svari við fyrirspurn DV. Langt komið „Þetta er langt komið. Staðan á skulda- hliðinni er sú að af 7.000 kröfum sem var lýst þá eru 36 í ágreiningi þannig að ég held að það sé ekki hægt að segja annað en að þetta sé langt komið,“ segir Steinunn Guðbjarts- dóttir í samtali við DV. Heildareignir Glitnis hafi aukist um 61% að verðmæti og stærstum hluta eigna hefur verið breytt í laust fé. Hvenær lýkur þessu? Þetta segja þau um gang slitameðferða Slitastjórn Glitnis Páll Eiríksson og Steinunn Guðbjarts- dóttir skipa slitastjórn Glitnis. Mynd SIGtryGGur ArI Slitastjórn SPB (áður Icebank) Meðlimir: Tómas Jónsson Berglind Svavarsdóttir Ár Þóknun 1.-3. fjórðungur 2014 48 milljónir 2013 105 milljónir 2012 113 milljónir 2011 126 milljónir * Alls: 392 milljónir (*) Sameiginleg heildarþóknun slitastjórnar og skilanefndar. Slitastjórn SPB Berglind Svavarsdóttir og Tómas Jónsson sitja í slitastjórn SPB. Slitastjórn Kaupþings Meðlimir: Feldís L. Óskarsdóttir Jóhannes R. Jóhannsson Theodór S. Sigurbergsson Davíð B. Gísla syni, (hætti í lok árs 2013) Ár Þóknun 2014 248 milljónir 2013 331 milljón 2012 337 milljónir 2011 125 milljónir Alls: 1.041 milljón Upplýsingar úr ársskýrslum Kaupþings. Upphæðir með 25,5% vsk. sem rennur til ríkissjóðs og því hvorki til fyrirtækja né meðlima slitastjórnar persónulega. Feldís L. Óskars- dóttir Situr í slitastjórn Kaupþings. Mynd MeGIn.IS Jóhannes r. Jóhannsson Situr í slitastjórn Kaupþings. theodór S. Sigurbergsson Situr í slitastjórn Kaupþings.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.