Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2015, Blaðsíða 25
Páskablað 31. mars–7. apríl 2015
Kvarnir - Brimrás - Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur
sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
Ný sending af
hjólapöllum,
áltröppum og
fibertröppum.
Fréttir Erlent 25
Þau eru áhrifamest á netinu
Einnig nefndir
Gwyneth Paltrow, Cristina Fernández
de Kirchner, Matt Drudge, Yao Chen,
Joy Cho, Ta-Nehisi Coates, Grace
Heligb, Vani Hari (Food babe),
Bethany Mota, Alexei Navalny, Britt-
any Furlan, Shakira, Denny Januar
Ali, Anita Sarkeesian, Josh Ostrovsky
(a.k.a. The Fat Jew), Brandon Stant-
on, J.K. Rowling, Narendra Modi,
Jimmy Fallon, Caitlin McNeill.
Nash Grier Íslandsvinurinn Nash Grier, sem gerði allt vitlaust með
unglingum í Smáralind í janúar í fyrra, kemst á lista Time. Nash Grier er fimmtán ára
Bandaríkjamaður sem hefur notið mikillar hylli fyrir myndbönd sín á myndbandasíðunni
vine.com. Á þeirri síðu birta notendur sex sekúndna löng myndbönd í gegnum smáforrit
sem tengist samfélagsmiðlinum Twitter. Með smáforritinu geta notendur birt myndbönd,
fylgst með öðrum notendum, líkað við og deilt myndböndum annarra ásamt því að skrifa
athugasemdir við þau. Það eru um það bil 40 milljónir notendur skráðir á Vine. Ellefu
milljónir þeirra fylgjast með honum sérstaklega.
Janet Mock Janet Mock
þykir hafa gjörbreytt réttindabaráttu
transfólks með notkun sinni á samfélags-
miðlum. Þar er hún afar sýnilega og að auki
óhrædd við að láta í sér heyra þegar henni
misbýður. Það gerðist til dæmis eftir
heimsókn hennar til þáttastjórnandans
Piers Morgan þar sem hún taldi hann hafa
talað niður til hennar. Hún lét hann heyra
það á Twitter og tóku fylgjendur hennar
virkan þátt í því að koma því á framfæri
hversu ósáttir þeir voru við framgöngu
Morgans. Að lokum var Mock boðið aftur í
þáttinn þar sem málin voru útkljáð.