Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2015, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2015, Side 25
Páskablað 31. mars–7. apríl 2015 Kvarnir - Brimrás - Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is Ný sending af hjólapöllum, áltröppum og fibertröppum. Fréttir Erlent 25 Þau eru áhrifamest á netinu Einnig nefndir Gwyneth Paltrow, Cristina Fernández de Kirchner, Matt Drudge, Yao Chen, Joy Cho, Ta-Nehisi Coates, Grace Heligb, Vani Hari (Food babe), Bethany Mota, Alexei Navalny, Britt- any Furlan, Shakira, Denny Januar Ali, Anita Sarkeesian, Josh Ostrovsky (a.k.a. The Fat Jew), Brandon Stant- on, J.K. Rowling, Narendra Modi, Jimmy Fallon, Caitlin McNeill.  Nash Grier Íslandsvinurinn Nash Grier, sem gerði allt vitlaust með unglingum í Smáralind í janúar í fyrra, kemst á lista Time. Nash Grier er fimmtán ára Bandaríkjamaður sem hefur notið mikillar hylli fyrir myndbönd sín á myndbandasíðunni vine.com. Á þeirri síðu birta notendur sex sekúndna löng myndbönd í gegnum smáforrit sem tengist samfélagsmiðlinum Twitter. Með smáforritinu geta notendur birt myndbönd, fylgst með öðrum notendum, líkað við og deilt myndböndum annarra ásamt því að skrifa athugasemdir við þau. Það eru um það bil 40 milljónir notendur skráðir á Vine. Ellefu milljónir þeirra fylgjast með honum sérstaklega.  Janet Mock Janet Mock þykir hafa gjörbreytt réttindabaráttu transfólks með notkun sinni á samfélags- miðlum. Þar er hún afar sýnilega og að auki óhrædd við að láta í sér heyra þegar henni misbýður. Það gerðist til dæmis eftir heimsókn hennar til þáttastjórnandans Piers Morgan þar sem hún taldi hann hafa talað niður til hennar. Hún lét hann heyra það á Twitter og tóku fylgjendur hennar virkan þátt í því að koma því á framfæri hversu ósáttir þeir voru við framgöngu Morgans. Að lokum var Mock boðið aftur í þáttinn þar sem málin voru útkljáð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.