Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2015, Qupperneq 52

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2015, Qupperneq 52
Páskablað 31. mars–7. apríl 201540 Skrýtið T haddeus Kalinoski frá Fíladelfíu í Bandaríkjunum lifði frekar hefðbundnu en fábreyttu lífi, þar til fyrir fjór- um árum. Hann vann sem veitingastjóri og átti góða konu. Dag einn missti hann vinnuna og í kjöl- farið fór konan frá honum. Þetta voru nokkur viðbrigði fyrir Kalinoski sem í einsemd sinni for að stunda skemmt- analífið. Hann bætti hratt á sig kíló- um, lagðist í þunglyndi og hætti í þokkabót að raka sig. Það var um það bil þá sem lífið tók óvænta stefnu. Það var einmitt sú ákvörðun að safna skeggi sem leiddi til þess að okkar maður var með 35 milljónir króna í árslaun í fyrra. „Dag einn stóð ég órakaður og klipptur fyrir framan spegilinn og það rann upp fyrir mér að ég væri eins og Alan úr Hangover,“ er haft eftir manninum í Daily Mail. Eftir því sem hárið og skeggið óx fóru sífellt fleiri að hafa orð á því hversu mjög hann líktist kvikmyndapersón- unni. Hann ákvað þá, atvinnulaus og fráskilinn, að gera út á þessi líkindi. „Ég ákvað að athuga hvort hægt væri að fá aur út úr þessu.“ Svakaleg partí Það að verða Alan breytti lífi mínu. Ég bý nú í Vegas þar sem ég lifi á því að skemmta mér, bara vegna þess að ég lít út eins og maður í kvikmynd. Ég þarf stundum að klípa mig til að trúa því að þetta sé raunverulega það sem ég geri. Á hverjum degi lifi ég eins og Alan úr Hangover og geri stundum hluti sem eru jafn ruglað- ir og Alan gerði í myndunum.“ Hann segir að hann hafi aldrei grunað að þetta ætti eftir að endast. En það er öðru nær. „Ég hef farið í svaka- leg partí með skemmtilegu fólki og hef hlegið linnulaust að þessu öllu saman. Mig hefði aldrei grunað að þessi yrði raunin.“ Hann segir að viðbrögðin þegar fólk sjái hann séu ótrúleg. Hann rifj- ar upp fyrstu vikuna í Vegas. „Fólk gekk upp að mér og bauð mér ókeyp- is drykki gegn því að fá að taka mynd- ir af mér. Allir voru svo vingjarnlegir. Stelpur komu upp að mér og kysstu mig og keluðu við mig um leið og þær hittu mig,“ segir hann. Fyrsta kvöldið rétti maður mér 100 dollara og sagði mér að fara á barinn. „Trúði varla eigin augum“ Hann ákvað strax að flytja á Hooters Hotel og gekk um næturklúbba og spilavíti. „Það var eins og ég væri fræg- asti maðurinn í Las Vegas. Ég trúði varla eigin augum.“ Hann segir að þeir Alan hafi mjög áþekka rödd og svo hefur hann reynt eftir fremsta megni að tala eins og kvikmyndapersónan. Kalinoski segir við Daily Mail að hann neyðist til að vera nokkrum kílóum of þungur. En það er honum ekki þungbært. „Ég elska að drekka og borða.“ Hann setti sér fljótlega þá reglu að biðja fólk sem tekur af hon- um myndir aldrei um fé. Því sé hins vegar haldið stíft að honum. „Sérstak- lega eru ferðamenn frá Dúbaí og Mið- Austurlöndum örlátir. Evrópu- búar eru sérstaklega vinalegir og vilja iðjulega fá mig með í partí,“ segir hann og heldur áfram. „Ástralar eru mjög villtir og miklir drykkju- menn. Mér rennur blóðið til skyldunnar og reyni að halda í við þá,“ segir Kalin- oski. Honum er statt og stöð- ugt boðið í veislur af ýms- um toga. Hann tekur nú þúsund dollara, um 140 þúsund krónur, fyrir slík boð og hefur í vopnabúri sínu alla frasa kvikmynda- persónunnar úr myndun- um. „Ég fer aldrei úr karakt- er. Ég legg mikið upp úr því að hafa fyndin tilsvör og setningar á takteinum við allar aðstæður.“ Hann hef- ur meira að segja látið út- búa eftirlíkingu af barni til að bera framan á sér, eins og Alan gerði í myndinni. Ráðinn í Hangover 3 Gervið sem Kalinoski hefur komið sér upp er svo líkt Alan úr Hangover að við tökur á þriðju Hangover- myndinni réðu framleiðendurn- ir hann sem staðgengil leikarans Zach Galifianakis. „Kona gekk upp að mér og sagði: „Ég er búin að leita að þér úti um allt. Við viljum fá þig í myndina“. Ég var svolítið ringlaður og spurði „Hvaða mynd?“. „Ég held þú vitir hvaða mynd,“ sagði hún.“ Kalinoski segir að það hafi verið frábær upplifun að hitta leikarana, en hann lék í nokkrum senum í stað Galifianakis. Sérstaklega hafi verið skemmtilegt að hitta fyrirmyndina. „Viðbrögðin hefðu ekki getað verið betri. Hann brosti þegar ég mætti og sagði „Þetta er ótrúlegt, eins og að horfa í spegil“.“ Kalinoski segist þekkja sín tak- mörk. Hann taki sér alltaf gott vetr- arfrí þar sem hann snerti hvorki áfengi né skyndibita. Þá segist hann láta öll fíkniefni eiga sig. Hafnar ekki þurfandi konum Hann segist þó ekki geta setið á sér þegar fallegar konur krefja hann um kynferðislegt samneyti. „Til mín hafa komið gullfallegar konur sem nánast hafa grátbeðið mig að sofa hjá sér. Það er með ólíkindum,“ segir hann og heldur áfram. „Það hafa komið kvöld þar sem ég kela við fimm kon- ur. Las Vegas er einstakur staður.“ Kalinoski segist gera sér grein fyr- ir því að þetta líferni geti hann ekki stundað endalaust. „En þetta hefur verið ótrúlegt ferðalag. n Hermir eftir Alan n Fráskilinn, feitur, órakaður og atvinnulaus sá Kalinoski að hann líktist Alan úr Hangover Sláandi líkir Hér má sjá eftirlíkinguna Kalinoski að gervinu þar sem Alan ber barn framan á sér. MyndiR FRonT page Media„Til mín hafa komið gullfal- legar konur sem nán- ast hafa grátbeðið mig að sofa hjá sér. Það er með ólíkindum. ÖRYGGISVÖRUR VERKTAKANS KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! – Þekking og þjónusta í 20 ár Kemi • Tunguhálsi 10 • 110 Reykjavík www.kemi.is • Sími: 415 4000 Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00. Með Bradley Cooper Kalinoski hitti alla leikara na úr Hangover, þegar framleiðendur myndanna réðu hann. Villt líferni Kalinovski er umkringdur fallegum konum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.