Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2015, Síða 48
Helgarblað 29. október–2. nóvember 201540 Fólk Viðtal
Neitar að skammast sín
S
umir eru uppteknir af því
að verða fullorðnir. Það hef
ur aldrei verið neitt sérstakt
takmark hjá mér að hætta
að leika mér,“ segir tónlistar
konan Ragnheiður Eiríks dóttir, sem
margir þekkja sem Heiðu í Unun eða
Heiðu í Hellvar en gengur í dag undir
listamannsnafninu Heiðatrúbador.
Ennþá unglingur
Heiða er að fara að túra um landið og
spila tónlistina sem hún hefur samið
meðfram hljómsveitar stússinu. Hún
segir nýja efnið fókusaðra en það sem
hún hefur áður gert ein. „Kannski er
ég ein af þeim sem er lengi ungling
ur. Allavega finnst mér ég ennþá vera
unglingur þótt ég sé komin með smá
lífsreynslu og geti setið lengur á ein
um stað en ekki flögrað um. Kannski
er ég bara svona seinþroska. Það þarf
ekkert að vera neikvætt né að þýða
að ég sé greindarskert. Og kannski
þroskast ég bara aldrei.“
Fátækir listamenn
Heiða fæddist árið 1971 og ólst upp í
Reykjavík til níu ára aldurs þegar for
eldrar hennar fluttu til Keflavíkur þar
sem hún bjó til tvítugs. Aftur flutti
hún svo á Suðurnesin þegar hún og
sambýlismaður hennar, Elvar Geir
Sævarsson, komu sér þar fyrir þegar
þau fluttu heim frá Berlín árið 2005.
„Við vorum fátækir listamenn, höfð
um ekki efni á leigunni í Reykjavík
og seldum okkur þá hugmynd að í
Keflavík væri stórkostlegt að vera.
Þetta var þegar uppsveiflan var í
gangi og leiguverð rauk upp úr öllu
valdi. Við keyrðum á milli en svo fór
bensínverðið að hækka og við vor
um farin að tapa á þessu og fluttum
í borgina. Ég var líka komin með nóg
af því að keyra Reykjanesbrautina.“
Furðleg og listræn
Hún lýsir áhyggjulausri æsku í
Keflavík. „Ég naut lífsins við höfnina,
klifrandi á síldartunnum. Þetta
var hinn fullkomni draumur,“ seg
ir Heiða en bætir við að lífið hafi
breyst þegar hún komst á unglings
aldurinn og íþróttir fóru að skipa
stærri sess í lífi vinanna. „Hópurinn
skiptist í fylkingar; íþróttafólkið og
svo við hin. Ég hafði lítinn áhuga og
enga hæfileika í íþróttum og fyrir vik
ið var lítið í boði fyrir mig en ég fann
mér bara eitthvað sjálf að gera. Eft
ir á að hyggja var þetta tilvalið um
hverfi fyrir ungan listamann að alast
upp í. Ímyndunaraflið varð örugg
lega sterkara fyrir vikið. Ég sat mest
ein með vasadiskóið að hlusta á tón
list, skrifa ljóð og spila á gítar. Ég var
svona eins og skrítna stelpan í Break
fast Club; ótrúlega furðuleg og áreið
anlega mjög listræn þótt ég vissi það
ekki þá. Samt var ég aldrei einmana.
Ég elskaði tónlist og þá er ekki hægt
að vera einmana.“
Einbirni og algjör mús
Heiða, sem er einbirni, segir mikla
tónlist í fjölskyldunni. „Mamma
og pabbi eignuðust mig ung og
voru hippar. Hann spilaði á gítar og
mamma söng og þau hlustuðu mik
ið á tónlist. Það var alltaf plata á fón
inum. Æskan snerist um Bítlana, Led
Zeppelin og Janis Joplin. Þetta var
frábært,“ segir hún en viðurkenn
ir að hafa á tímabili langað að eign
ast systkini. „Ég hef alltaf lesið mikið
og þegar ég var lítil las ég allar þess
ar bækur eins og Börnin í Ólátagarði,
Línu langsokk, Ævintýra og Fimm
bækurnar. Þessar bækur fjalla ekki
bara um vinahópa heldur systkin og
lýsa fjörugum heimilum. Þar var ekki
sagt frá þegar systkini rífast og slást
svo sýn mín var skert enda hætti ég
fljótlega að hugsa um systkini. Ég var
einfari og held að ég hafi verið algjör
mús. Allavega var ég aldrei með læti
í skólanum. Kannski vegna þess að
ég var einbirni og hafði engan til að
hanga með ef allt klikkaði. Ég varð
að vera varkár svo ég hefði örugglega
einhvern til að leika mér við.“
Leiðast hefðir
Heiða og Elvar hafa verið saman í
rúm 15 ár og eiga soninn Oliver. „Við
Elvar kynntumst á Gamla Garði. Við
vorum bæði að bera dótið okkar inn
ásamt fleirum þegar ég sá að hann
var með gítar. Svo kom í ljós að hann
var líka í heimspeki og hafði þegar
tekið eftir mér í tímum. Örlögin stilltu
okkur saman. Við vorum bestu vinir
Tónlistarkonan Ragnheiður Eiríksdóttir
er líklega best þekkt sem Heiða í Unun en gengur
núna undir listamannsnafninu Heiðatrúbador.
Indíana Ása Hreinsdóttir ræddi við Heiðu um tón-
listina sem hún lifir fyrir, æskuna í Keflavík, unglings-
árin sem hún varði að mestu ein, álit annarra sem
hún kærir sig kollótta um, ástina sem hún fann í
heimspekinni og þunglyndið sem hún vann bug á.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Ég er með
kirkjufóbíu og
finnst mjög leiðinlegt
að mæta í brúðkaup
annarra
Stundum í tísku
Heiða segist detta
inn og út úr tísku.
Mynd SIgtryggur ArI
Ennþá unglingur
Heiða stefnir á að
verða 110 ára.
Mynd SIgtryggur ArI