Skagfirðingabók - 01.01.2008, Page 135
ÞÓRÐUR HREÐA í KOLBEINSDAL
og nefndist Agœtar fornmanna sögur.
Söguþættirnir komu út í 1000 ein-
tökum og Fornmannasögurnar líka,
en einnig voru gefnar út tvær þýdd-
ar skemmtisögur. Sala þessara bóka
mun þó hafa gengið treglega og út-
gefendur sættu nokkru ámæli fyrir
ókristilegt og siðspillandi efni.35
I Söguþáttunum er Þórður nefndur
hræða. Þá er Skeggjahamar nefndur
Skógahamar í megintextanum en hitt
afbrigðið nefnt neðanmáls.36 Verður
að teljast líklegt að þessi bók hafi
með nokkrum hætti orðið til að auka
áhuga á Þórðar sögu en þó e.t.v. með
óbeinum hætti. Eins og fyrr sagði
seldust bækurnar ekki sérlega vel.
Almenningur var ekki vanur að
kaupa sögur til að lesa sér til gamans.
Bækur voru dýrar, lestrarkunnátta
e.t.v. takmörkuð og lítil hefð fýrir
skemmtilestri; sagnaskemmtun var á
þessum tíma líklega mest iðkuð með
rímum. Rímurnar voru oft ortar eftir
skráðum sögum; þannig mátti „fjöl-
falda“ efni þeirra til flutnings í
heyranda hljóði hvenær sem hentaði
og rímnakveðandi er vitaskuld ekki
bara epík heldur líka tónlist.
ÞðrSarrímur
Þórðar saga hreðu hefur getið af sér
nokkrar rímur og er a.m.k. kunnugt
um þrennar sem voru eldri en hin
prentaða útgáfa. í fýrsta lagi er varð-
veitt ríma eftir Þorvald Magnússon
(1670-1740).37 Þá er þess getið að
Sigurður Gíslason Dalaskáld (d. 1688)
hafi ort um hluta sögunnar.38 Loks
er varðveittur „Einn mansöngur til
gamans úr Þórðar rímum hræðu
hvörjar kveðnar vóru af sál. Sig-
munde H.S. en eru nú aldeilis nið-
ur fallnar og undir lok liðnar."39
Sigmundur Helgason var uppi
1657-1723.
ÞórSarrima Þorvaldar Magnússonar
er varðveitt í heild í nokkrum hand-
ritum frá 18. og 19. öld.40 Frásögn
hennar af aðdraganda bardagans í
Kolbeinsdal ber þess merki að höf-
undur hafi þekkt nokkuð til staðhátta
og leitast við að láta atburðarásina
ríma við umhverfisaðstæður. Hann
byrjar hér að lýsa hvernig þeim Þórði
gengur hrossaleitin:
Bragnar skildu bóndann við og burtu
gengu
í hlíðina upp en hvörgi fundu
hófadýrin þar um grundu.
Þórhallur beið, sem fýrr sagði, við
heygarðinn þegar „Össur kom með
ýta sína“:
Össur skipar þræli þeim til Þórðar segja
hann kvað vera hreystidrenginn
í hlíðina upp og Eyvind genginn.
35 Nockrer Marg-Frooder S0gu-þœtter hlendinga. Hoolum 1756. Endurprentun með inngangi
Ólafs Pálmasonar, Reykjavík 1967.
36 Nockrer Marg-Frooder S0gu-þœtter, bls. 75.
37 Finnur Sigmundsson. Rímnatal I, bls. 513; II, bls. 151-152.
38 Rímnatal II, bls. 125-126.
39 JS60 4to, bl.147 v.
40 Hér er stuðst við Lbs. 4665 4to, bl. 231 r. sem er 18. aldar handrit. Ennfremur Lbs. 3833
8vo, bls. 21, sem er frá 19. öld.
131