Skagfirðingabók - 01.01.2008, Page 136

Skagfirðingabók - 01.01.2008, Page 136
SKAGFIRÐINGABÓK Illt er að trúa örgum þrjót hann Össur sagði í haus á þræli með hamri lysti, hann af slíku óvit gisti.41 Þegar Þórður sér eftirförina leggur hann strax á ráðin um undankomu til betra vígis en minnist ekkert á Skeggjahamar: Veit eg hvar er vígi gott að vekja rómu og eiga kíf við klækja dóla kæmumst við í Sviðningshóla Hálir skaflar hengu fram af hæðum víða stikluðu þeir á storðar dýnum og studdu sig með spjótum sínum.42 Þannig ná þeir að hasla sér vígvöll í Sviðningshólum, ekki Sviðgríms- og þaðan af síður Hreðuhólum, og búast til orustu áður en Ossur kem- ur. — Þessi lýsing ber með sér að höf- undur leitast við að hafa frásögnina þokkalega trúverðuga og taka mið af raunverulegum aðstæðum. Ríviur af Þórði hreðu eftir Hallgím Jónsson eru hins vegar ortar eftir að Þórðar saga var prentuð og því líklegt að þær styðjist við hina prentuðu út- gáfu. Hallgrímur þessi var nefndur „læknir“ og bjó á ýmsum stöðum í Skagafirði, m.a. Kálfsstöðum í Hjaltadal 1824—25, en áður hafði hann búið í Fljótum og í Sléttuhlíð. Frá Kálfsstöðum fór hann fram í Tungusveit en bjó í Miklagarði á Langholti er hann dó 1861. Honum gat því verið sögusviðið nokkuð kunnugt en hann leiðréttir þó ekki nafn hólanna eins og Þorvaldur. Ásgeir Finnbogason ritar athygl- isverðan eftirmála að frumprentun Þórðarrímna Hallgríms 1852. Þar segir hann m.a. að „Rímur af Þórði hreðu" komi nú loks „fyrir almenn- ings sjónir á prenti, eptir að þær hafa farið víða um land, bæði í manna minnum og skrifaðar, núna upp 119 ár frá því skáldið kvað þær. Og hafa þær hvervetna geðjast svo vel, að höf- undur þeirra hefir sagt að „munnlegar og skriflegar bænir hafi iðuglega komið til sín, um að láta þær ganga út á prent“ og að „undarleg umkvört- un sé um að þær fáist ekki skrifaðar, svo nægi.““ Getur Ásgeir þess að út- gáfan sé ekki gerð eftir handriti höfundar, heldur öðru yngra sem höfundur hafi aðeins náð að lesa lauslega yfir. Rímur Hallgríms virð- ast því hafa orðið mjög vinsælar og til marks um það segir Ásgeir merkilega sögu af manni sem hafði að megin- atvinnu að afrita þessar rímur: Skepnulaus þurrabúðarmaður, sem hvorki stundaði lands- né sjóargagn, lagði það fyrir sig að skrifa upp Þórðarrímur dags daglega, árið í gegnum 1 16 ár, og seldi hverjar fyrir 2 rbd. til 15 mrk.; framdró svo nauðalaust líf sitt og konu sinnar á þessu til þess hann yfirgaf heiminn nú í haustið var (þ.e. 1851), sakn- aður frá þessu starfi, og gat þó varla að hálfu leyti — á þeim 16 ára tíma — aflokið því, sem um var beðið.43 41 Lbs. 3833 8vo víxlar í þessari vísu orðunum þræl og þrjót. 42 Lbs. 3833, 8vo: stikla þeir á storðar dýnum / og stungu niður spjótum sínum. 43 Rt'mur af Þórði hreðu. Ortar af Hallgrtmi lœkni Jónssyni. Reykjavík 1852. Eftirmáli eftir Ásgeir Finnbogason. 132
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Skagfirðingabók

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skagfirðingabók
https://timarit.is/publication/1154

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.