Fréttatíminn - 08.01.2016, Qupperneq 2
Þ að gerðist lítið í fyrsta sinn en í annað skiptið rann allt lífshlaup mitt framhjá mér,
alveg frá því ég var sex ára og
fram á daginn í dag,“ lýsir maður á
miðjum aldri áhrifunum af suður-
ameríska seyðinu ayahuasca sem
er komið í nokkra tísku á Íslandi,
einkum meðal fólks sem er sjálfs-
hjálparhópum, hugrækt og hug-
leiðslu. „Ég sá hvað allt mitt til-
finningalíf og viðhorf höfðu breyst
vegna ofsalegrar höfnunar sem
ég varð fyrir um sex ára aldur-
inn, tilfinningalegrar bjögunar
og kynferðislegrar misnotkunar
innan fjölskyldunnar,“ heldur mað-
urinn áfram. „Það varð allt í einu
kristalskýrt fyrir mér hvernig þetta
hefur litað líf mitt eftir þetta. Ég er
sex barna faðir, á fjórar barnsmæð-
ur og mörg mislukkuð sambönd
að baki. Ég hef alla tíð frá bernsku
sótt í fíknir, flótta og stanslausa
útrás til að kæfa kvíðann sem hafði
læst sig um mig þegar ég var barn.
Það varð ljóslifandi fyrir mér að ég
hef átt hunderfitt lífshlaup vegna
þess að mér tókst aldrei að vinna úr
þessum áföllum.“
Seiðmaður stjórnaði athöfninni
Ástæða þess að viðmælandi okkar
tók inn þetta kröftuga seyði var að
hann greindist með krabbamein í
ristli og vildi leita allra leiða til að
losna við hefðbundna lyfjameð-
ferð. Þegar hann frétti af því að
perúskur seiðmaður væri á leið til
landsins til að stjórna ayahuasca-
athöfn sló hann til og fór með um
fimmtán manna hópi í vikudvöl upp
í sveit. Þar tók hann seyðið í fjögur
skipti undir leiðsögn og tónlistar-
flutningi meistarans. „Ég vildi fá
að vita hvers vegna ég væri með
krabbamein og hvað ég ætti að gera
í því,“ segir hann. „Þegar ég kom
úr ferðalaginu var ég harðákveðinn
að láta skera það burt og fara í hefð-
bundna lyfjameðferð. Það var eitt
sem kom út úr þessu. Annað var al-
gjörlega nýr skilningur á hver ég er
og hvað hefir stjórnað samskiptum
mínum við annað fólk hingað til.
Ég hef klippt á samskipti við margt
fólk eftir þetta.“
Varpar réttu ljósi á hlutina
En hvað er ayahuasca? Er það dóp?
Getur fólk misnotað þetta seyði?
„Ég hef ekki nokkra trú á því,“
segir viðmælandi okkar. „Ég tók
þetta fyrir ári og hef löngun til að
taka þetta aftur. Reynslan er svo
sérstök og sterk og allt önnur en
af vímuefnum. Ég er enn að vinna
úr reynslunni mörgum mánuðum
seinna. Ég er óvirkur fíkill en
ayahuasca kveikti enga löngun í
meira.“
Það sama segir annar viðmæl-
andi okkar, karl á fertugsaldri. „Ég
hef tekið allskonar hugvíkkandi
efni, LSD, sveppi, meskalín og alls-
konar en ayahuasca er allt annars
eðlis,“ segir yngri maðurinn. Hann
tók inn seyðið til að vinna á áfalla-
streituröskun eftir allskyns áföll í
lífinu, meðal annars langvarandi
fíkniefnaneyslu. Hann hafði rekist
á Vice-þátt á netinu um ayahuasca
og var eitthvað að pæla í því þegar
hann rakst á mann á alanon-fundi
sem sagði honum að von væri á
seiðmanni til landsins. Hann lét því
slag standa, fór á sérstakt mataræði
í tíu daga og þurfti að sannfæra þá
sem stóðu fyrir athöfninni að hann
ætti ekki í djúpstæðum geðrænum
vanda.
Og virkaði seyðið?
„Já, ég er enn að vinna úr þessu.
Þetta er ekki endanleg lausn.
Seyðið strokaði ekki út allan minn
vanda. En ég held að þetta hjálpi
mér til að sjá hlutina í réttu ljósi og
bregðast rétt við. Þetta var stór og
mikil reynsla sem hefur og mun
marka viðhorf mín,“ segir yngri
maðurinn.
Ayahuasca er ólöglegt á Íslandi
og á flestum Vesturlöndum. Það er
ástæða þess að viðmælendur okkar
vilja ekki koma fram undir nafni.
-gse
Sá í sviphendingu að
allt lífið var brenglað
Suður-ameríska seyðið ayahuasca er í tísku meðal fólks í sjálfshjálparsamtökum og hugleiðslu.
Dýrasti ellilífeyrisþeginn
Ólafur Ragnar Grímsson mun halda
áttatíu prósentum af launum sínum
sem forseti Íslands til dauðadags
eftir svo langa setu í embætti og
fær rúmar 1,8 milljónir króna í eft-
irlaun. Þá fær hann því til viðbótar
lífeyrisgreiðslur frá LSR, sem fyrr-
verandi þingmaður og ráðherra.
Hann sat á þingi í tíu ár, þar af var
hann fjármálaráðherra í þrjú ár.
Samkvæmt því verða eftirlaun hans
439.000 krónur.
Hann mun samkvæmt því þiggja
eftirlaun frá ríkinu og Lífeyrissjóði
starfsmanna ríkisins upp á tæpar
2.3 milljónir á mánuði.
Eftirlaunalögunum var reyndar
breytt árið 2009 og lífeyrisréttindi
æðstu embættismanna ríkisins, svo
sem þingmanna og ráðherra, urðu
þá með sama sniði og hjá öðrum
ríkisstarfsmönnum. Ekki var þó
hægt að taka réttindi af mönnum
sem höfðu áunnið sér þau sam-
kvæmt gömlu lögunum, líkt og
Ólafur Ragnar.
Fréttatíminn er fluttur
í hús Kassagerðarinn-
ar að Köllunarkletts-
vegi 1. Margt gott
hefur orðið til í þessu
fornfræga húsi – þar
mótuðust Bubbi Mort-
hens og hljómsveitin
Utangarðsmenn og
þar vann Jóhanna
Sigurðardóttir áður en
hún hóf stjórnmála-
feril sinn.
Breytingar hafa
verið gerðar á ritstjórn blaðsins, eftir eigendaskipti á dögunum. Gunnar Smári Egilsson
og Þóra Tómasdóttir eru nú ritstjórar Fréttatímans, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir er
fréttastjóri og Höskuldur Daði Magnússon er ritstjórnarfulltrúi.
Ayahuasca er suður-amerískt töfraseyði sem sendir fólk heim í æskuna. Það er soðið upp úr berki af vissum trjám og laufum
af öðrum. Áhrifin af seyðinu eru andlegt ferðalag sem getur verið bæði strangt og erfitt en sem margir fullyrða að sé líka
frelsandi.
Ayahuascaseiði úr berki og laufum af
trjám úr Amazon skóginum.
Fréttatíminn flytur og breytist
Unglingur í sólarhringsvistun vegna kynferðisbrota
Unglingsdrengur með þroskafrá-
vik er vistaður af barnaverndaryf-
irvöldum í sérstöku úrræði vegna
ítrekaðra kynferðisbrota og til-
rauna til brota.
Drengurinn er árásargjarn og
metinn mjög líklegur til að brjóta
aftur af sér. Hann hefur brotið gegn
fleiri börnum. Að sögn Braga Guð-
brandssonar, forstöðumanns Barna-
verndarstofu, er endurtekning
brota ástæða þess að gripið sé til
svo sérstakra öryggisúrræða. „Til
svona róttækra aðgerða er aldrei
gripið nema það sé alveg nauðsyn-
legt.“
Drengurinn er vistaður í sér-
tæku búsetuúrræði án foreldra þar
sem fullorðið fólk fylgist með hon-
um allan sólarhringinn. Er honum
fylgt í og úr skóla og tómstundir
en samkvæmt Braga er reynt er að
haga lífi hans sem með eðlilegust-
um hætti. Afbrigðileg kynferðisleg
hegðun drengsins hefur staðið yfir
í lengri tíma.
Börn og unglingar sem barna-
verndaryfirvöld fá ábendingar um
að sýnt hafi afbrigðilega kynferðis-
lega hegðun fá greiningu og með-
höndlun frá þriggja manna sér-
fræðiteymi Barnaverndarstofu. Að
sögn Braga eru flestir í þeim hópi
metnir ólíklegir til að fremja brot
aftur, færri eru metnir líklegir til
að brjóta af sér aftur. Aðeins örfá
ungmenni eru metin afar líkleg til
að endurtaka brot.
Til algjörra undantekninga heyr-
ir að börn með þroskafrávik og
afbrigðilega kynferðislega hegðun
séu vistuð á sérstökum heim-
ilum. Mikil breyting hefur orðið
á stuðningi og meðferð við börn
með slíkan vanda en barnavernd-
arnefndir veita nú nánast alfarið
meðferð og þjónustu innan heimila
og í nærumhverfi barna. Þessi
drengur er sérstakt tilfelli. - þt
Mynd/NordicPhotos/GettyImages
2 | fréttatíminn | Helgin 8. janúar-10. janúar 2016