Fréttatíminn - 08.01.2016, Side 16
• R-Line ytra útlit og 18” álfelgur
• Litað gler
• Alcantara áklæði
• Webasto bílahitari með fjarstýringu
• Hraðastillir
• Bluetooth fyrir farsíma og tónlist
• Climatronic - 3ja svæða loftkæling
• Bílastæðaaðstoð
• Aðfellanlegt dráttarbeisli
• Bakkmyndavél
• Leiðsögukerfi fyrir Ísland
• Panorama sólþak
Staðalbúnaður í Tiguan R-Line 4Motion 2.0 TDI dísil, fjórhjóladrifnum og sjálfskiptum
Er ekki kominn
tími á Tiguan?
VW Tiguan R-Line er vel útbúinn með öllu því helsta sem gerir bíl að sportjeppa.
Taktu skrefið til fulls og fáðu þér Tiguan. Góða skemmtun!
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirðiwww.volkswagen.is
5.990.000
kr.
Sjálfskiptur
og fjórhjóla
drifinn
Tiguan R-Li
ne:
Neitar ásökunum um lögbrot en
játar óhefðbundnar starfsaðferðir
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatíminn.is
J e ns Gunnarssyni, þraut-reyndum fíkniefnalögreglu-manni sem var úrskurðaður
í gæsluvarðhald 29. desember,
var sleppt í gær, fimmtudag. Hann
neitar staðfastlega sök en honum
er borið á brýn að hafa þegið
greiðslur frá þekktum brota-
mannni fyrir upplýsingar um mál í
rannsókn lögreglunnar.
Sá hefur hlotið dóma fyrir fíkni-
efnamisferli en var í gær úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 15. janúar.
Helgi Magnús Gunnarsson vara-
ríkissaksóknari staðfesti gæslu-
varðhaldsúrskurðinn í samtali við
Fréttatímann í gær. Hann sagði að
rannsóknin héldi nú áfram en ekki
hefði verið talið nauðsynlegt að
fara fram á frekara gæsluvarðhald
yfir lögreglumanninum.
Tengist ekki tálbeitumáli
Handtakan hefur verið sögð tengj-
ast tálbeituaðgerð lögreglunnar í
máli hollensku konunnar Mirjam
Van Twuyer í apríl í fyrra en hún
situr nú af sér ellefu ára fangelsis-
dóm fyrir fíkniefnasmygl. Heim-
ildarmenn Fréttatímans segja
að svo sé ekki, allavega á þessu
stigi málsins. Eina tengingin sé
sú að Jens kom að rannsókninni.
Í aðgerðinni vakti athygli og var
gagnrýnt að maðurinn sem tók við
fíkniefnunum var handtekinn áður
en hann gat skilað þeim til höfuð-
paursins í málinu.
Uppnám er innan lögreglunnar
vegna málsins en áratugir eru
síðan lögreglumaður hefur verið
settur í gæsluvarðhald vegna brota
í starfi. „Þetta er afar sorglegt,
segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir
aðstoðarlögreglustjóri. „Þetta
sýnir samt svart á hvítu að kerfið
virkar og þegar svona mál koma
upp, þá hlífum við engum.“
Franklín og
byssuleyfið
Samkvæmt heim-
ildum Fréttatímans
hefur lögreglumaðurinn játað á
sig óhefðbundnar starfsaðferðir
sem fólu í sér samskipti við brota-
menn sem gengur gegn reglum
lögreglunnar en hann hefur neitað
að hafa gerst brotlegur við lög.
Árið 1996 flettu fjölmiðlar ofan
af umdeildum samskiptum þá-
verandi yfirmanns fíkniefnalög-
reglunnar við Franklín Steinar
sem var þekktur í undirheimun-
um. Yfirmaður fíkniefnalögregl-
unnar hafði meðal annars skrifað
upp á byssuleyfi fyrir Franklín.
Þótt hörð hríð væri gerð að lög-
reglunni í málinu og margvíslegar
ávirðingar kæmu fram á starfs-
hætti lögreglunnar var enginn
handtekinn eða dæmdur. „Ég
hugsaði til þess þegar ég heyrði af
þessu fyrst,“ segir Snorri Baldurs-
son, formaður Landssambands
lögreglumanna.
Snorri segir að eðli málsins
samkvæmt sé mikil ólga í lög-
regluliðinu vegna málsins, enda
hafi enginn haft neina ástæðu til
að gruna lögreglumanninn um
neitt misjafnt. Þetta hafi því kom-
ið sem þruma úr heiðskíru lofti.
Mannlíf fjallaði fyrst um málið en aðrir
fjölmiðlar fylgdu í kjölfarið.
Tæpur helm-
ingur lækna
í fullri vinnu
Einungis tæpur helmingur
þeirra sérfræðinga sem starfa
á Landspítalanum eru í fullri
vinnu. Flestir sérfræðingar
starfa einnig utan spítalans við
einkastofur. Páll Matthíasson,
forstjóri Landspítalans, segir
að það sé truflandi að vera með
fólk í hlutastörfum, þótt það geti
hentað í vissum tilvikum.
Meðallaun lækna fyrir fulla
vinnu á spítalanum eru fjórtán
hundruð og fimmtíu þúsund á
mánuði.
Stofur sérfræðilækna hafa
að meðaltali 20 milljónir á ári
í heildartekjur af stofurekstri,
samkvæmt tölum frá Sjúkra-
tryggingum Íslands. Inni í því er
kostnaður við rekstur stofanna.
Kostnaður ríkisins af sjúkra-
húsunum hefur ekki lækkað
þrátt fyrir aukinn einkarekstur.
Þótt sérfræðilæknar úti í bæ taki
hluta af sjúkrahúsþjónustunni
yfir þarf ríkið áfram að halda
grunnþjónustunni við. „Það er
vandamál að reka tvö kerfi sem
eru fjármögnuð á mismunandi
hátt,“ segir Páll. Þótt einka-
rekstri hafi verið gert hátt undir
höfði á kostnað sjúkrahúsanna
sé frekar um að kenna áratuga
stefnuleysi en einstefnu í átt til
einkarekstrar. „Bætt kjör lækna
vekja vonir um að þetta sé að
breytast,” segir Páll. -þká
Vandamál að reka tvö kerfi
16 | fréttatíminn | Helgin 8. janúar-10. janúar 2016