Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 08.01.2016, Síða 37

Fréttatíminn - 08.01.2016, Síða 37
Njóttu þess að vera nörd ’NTV í samstarf við CCPNámskeið Þar sem tölvur og tækni eru farin að skipa stærri sess í okkar dag- lega lífi verður okkur hættara til að gleyma okkur í þeim heimi, hvort heldur það séu tölvuleikir, sam- félagsmiðlar eða smáforrit. Þetta er mjög heillandi og spennandi heimur með stöðugum nýjungum og því mjög skiljanlegt að fólk á öllum aldri sogist þar inn. „Hættan er að við eyðum of miklum tíma í þessum heimum sem getur haft þær afleiðingar að við dettum út úr vinahópum, herbergið eða heimilið fær minni athygli, hættum að hugsa um okkur og þá sem eru í kringum okkur,“ segir Ólafur Þór Jóelsson, Dale Carnegie þjálfari. Hann er einnig þekktur sem Óli í GameTV. segir hann þetta oft leiða til þess að við missum sjálfstraust gagnvart öðrum, eigum erfiðara með að hafa samskipti við aðra og láta drauma okkar rætast. Þegar við erum komin í þá stöðu þá er meiri líkur á að við einangrumst og líði ekki vel í eigin skinni. „Til að geta í alvöru notið allra þessara spennandi hluta þá er mikil- vægt að halda öðrum boltum í lífi sínu á lofti,“ segir Ólafur. Nefnir hann þá helst að passa upp á að tala við vinina og gera eitthvað með þeim, tala við foreldrana og þá sem standa okkur nærri, hreyfa sig, sinna öðrum áhugamálum, vinnu eða námi og hreinlega passa að lífið þjóti ekki framhjá okkur meðan við erum föst í tækniheimum. „Það sem við leggjum áherslu á hjá Dale Carnegie fyrir ungt fólk er að þátttakendur á námskeiðum okkar setji sér markmið í mikilvæg- ustu þáttum lífsins og segi sjálfum sér hvernig þau ætla að ná þeim,“ segir Ólafur. auk þess eru þeim sett þeim verk- efni tengd samskiptum sem miða að því að þau styrki sambandið við þá aðila sem skipta þau mestu máli í sínu lífi og tryggi þar með tengslin. Ólafur segir þau einnig gera æfingar sem miða að því að keyra upp sjálfs- traustið sem auðveldar þeim að segja skoðun sína, þora að fara út í lífið og reyna á sig, þora að gera mis- tök og það mikilvægasta að þora að vera þau sjálf. „Ofan á þetta bætist að við vinnum heilmikið með við- horf og finnum út í sameiningu hvar það er neikvætt gagnvart ákveðnum hlutum eða fólki og vinnum í að finna jákvæðari fleti á þeim hlutum til að okkur líði betur,“ segir Ólafur. að lokum bætir hann við: „að spila tölvuleiki er til dæmis eitt það skemmtilegasta sem ég geri, en til að njóta þeirra í botn verð ég að hafa aðra hluti í lagi í kringum mig. Hafa sjálfstraust til að gera aðra hluti, láta drauma mína rætast og hafa samskipti við fólkið í kringum mig. Þegar þetta allt er í lagi, þá fyrst get ég notið þess að vera nörd.“ Unnið í samstarfi við Dale Carnegie Ólafur Þór Jóelsson Dale Carnagie þjálfari segir mikilvægt að passa að lífið þjóti ekki framhjá meðan við erum föst í tækniheimum. Ólafur Þór Jóelsson er þekktur sem Óli í GameTV. Hann starfar líka sem Dale Carnegie þjálfari og ráðleggur ungu fólki að til að geta notið þess að spila tölvuleiki þurfi það að halda öðrum boltum í lífi sínu á lofti. Til dæmis sé mikilvægt að halda góðu sam- bandi við fjölskyldu og vini. Ljósmynd/Hari FJARNÁM Skráning á vorönn stendur til 10. janúar á slóðinni www.fa.is/fjarnam | Kynningar Helgin 8. janúar 10. janúar 2016 | 37fréttatíminn | HelGiN 8. JaNúar-10. JaNúar 2016

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.