Fréttatíminn - 08.01.2016, Blaðsíða 61
Á fullu í mömmuleikfimi
og ungbarnasundi
Heilsa
fréttatíminn Helgin 8. janúar-10. janúar 2016
n Handbolti Orri æfir sex sinnum í viku n Hleypur Hlaupaæfingarnar heilagur tími hjá Erlu n Þríþraut Pétur keppti átta sinnum í þríþraut í fyrra
„Við Harpa reynum að hreyfa
okkur eitthvað á hverjum degi. Ég
var í crossfit þegar ég varð ólétt en
með stækkandi
maga færðum
við okkur yfir
í meðgöngu-
leikfimi hjá
Fullfrísk. Á
seinni hluta með-
göngunnar syntum
við mikið og fórum í meðgöngujóga
sem bjargaði okkur bæði líkamlega
en aðallega andlega fyrir fæðing-
una. núna förum við nokkrum
sinnum í viku í mömmuleikfimi hjá
Fullfrísk og svo förum við auðvitað
mikið út að ganga. Við erum svo
nýlega byrjaðar í ungbarnasundi svo
að Harpa er ansi öflug, þrátt fyrir
ungan aldur,“ segir Birna erlings-
dóttir, móðir Hörpu Sigríðar gunn-
arsdóttir.
Hvers konar hreyfingu
stundið þið?
„Harpa er ekki farin að velta sér en
hún er farin að halda haus alveg
sjálf og gerir tilraunir til þess að
grípa í tærnar sínar. Við nýtum
síðan daginn vel í að hlæja og
brosa. Viðhorf til heilsuræktar hefur
breyst mikið á undanförnum árum
og hlakka ég til að ala Hörpu upp í
heilbrigðu umhverfi þar sem fyrir-
myndir okkar eru sterkar og sjálfs-
öruggar konur sem borða hollan og
góðan mat og rífa upp 200 kíló í
réttstöðulyftu.“
Hvernig er hefðbundinn morgun-
matur hjá ykkur?
„Það er mjólkursopinn fyrir Hörpu
í öll mál ásamt D-vítamín dropum
einu sinni á dag. Sjálf byrja ég alla
daga á hafragraut, vítamínum og
grænu tei en Harpa mun fá að kynn-
ast þessari lífsnauðsynlegu þrennu
bráðlega.“
Hvað gerið þið til að slaka á?
„Á seinni hluta meðgöngunnar
fórum við í meðgöngujóga en sjálf
hef ég stundað jóga í mörg ár. Ég er
enn meðvitaðri um að halda mér í
góðu jafnvægi núna því að streita
og stress smitar út frá sér yfir í litlu
krílin. Harpa er einstaklega rólegt
barn og trúi ég því innilega að ef
ég er róleg og held mér í góðu jafn-
vægi þá verður Harpa það líka. jóga
og hugleiðsla getur hjálpað manni
mikið og finnst mér að allir ættu
að gefa sér 5 mínútur á dag til þess
leiða hugann inn á við og slaka á.
að fara í sund á kvöldin og þá helst
í rigningu er mín hugleiðsla og býst
ég við að Harpa verði einnig mikil
sundkona.“
Lumar þú á einu heilsuráði sem
hefur gagnast þér vel í gegnum
tíðina?
„Ég held að það sé aldrei hægt að
segja það nógu oft, en vatnið og
svefninn eru alltaf heilsuráð númer
eitt, tvö og þrjú. Harpa á ennþá
eftir að tileinka sér vatnið en hún
sefur í 12 tíma á nóttu, leggur sig
yfir daginn og brosir og hlær þess
á milli. Ég hugsa að það sé eflaust
besta heilsuráð sem hægt er að taka
til sín. Það er magnað að sjá þróun-
ina hjá svona litlu kríli á einungis
þremur mánuðum. Það er gríðar-
lega mikið að gerast inni í þessum
litla líkama og ég sé mun á henni
nánast daglega.“
Einhver markmið varðandi heils-
una á nýju ári?
„Við Harpa höfum ekki sett okkur
nein stór markmið fyrir komandi ár.
Við ætlum að halda áfram að lifa
heilbrigðum lífsstíl, taka einn dag í
einu og setja
andlega
líðan í
fyrsta
sæti því
þaðan
fáum við
orkuna
til þess að
brosa, hlæja
og njóta lífs-
ins.“
Mæðgurnar Harpa Sigríður og
Birna njóta þess að vera saman.
Birna segir dóttur sína vera öfl-
uga miðað við aldur og hlakkar
til að ala hana upp í heilbrigðu
umhverfi. Ljósmynd/Hari
ára
0
Flóki HraFnS-
Son er fimm
ára og býr
í Vesturbæ
reykjavíkur
með foreldrum
sínum, Stellu
ólafsdóttur háskóla-
nema og Hrafni gunnarssyni, graf-
ískum hönnuði.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir?
„Fara í smellukubba, eða að gefa
öndunum brauð.“
Hvers konar hreyfingu stundar
þú?
„Ég hleyp inni og í útiveru.“
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
„pítsa.“
Hvernig er hefðbundinn morgun-
matur hjá þér?
„Í jólafríinu fékk ég lucky Charms,
hjá ömmu og afa fæ ég góðan
hafragraut.“
Hvað gerir þú til að slaka á?
„Þá sef ég.“
Skemmtilegt
að gefa önd-
unum brauð
Heilsuvenjur Flóka
Hrafnssonar - 5 ára
ára
5
Heilsuvenjur Hörpu Sigríðar Gunnarsdóttur – á fyrsta ári
á ö l lum a ldri