Fréttatíminn - 08.01.2016, Blaðsíða 62
2 | fréttatíminn | Helgin 8. janúar-10. janúar 2016
Heilsa
Æfir fótbolta og borðtennis
Heilsuvenjur Lilju Lívar Margrétardóttur – 10 ára
ára
10
lilja lív Margrétardóttir er
tíu ára nemandi í Mýrarhúsaskóla á
Seltjarnarnesi. Hún æfir bæði fót-
bolta og borðtennis
í frístundum
sínum.
„ég er í fótbolta
í fimmta flokki
gróttu. Það er
mjög gaman. Svo
æfi ég borðtennis í
Kr. Það er líka mjög skemmtilegt.“
Hve oft æfirðu í viku?
„ég fer á þrjár borðtennisæfingar og
fjórar fótboltaæfingar.“
Hefurðu þá tíma til að gera annað?
„já, því borðtennisæfingarnar eru
alltaf á kvöldin,“ segir lilja sem fer
með strætó á þær æfingar.
Hvað gerirðu annað þér til
skemmtunar?
„ég les oft bækur eða fer út í fót-
bolta.“
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
„lasagna. Sem mamma gerir.“
Pælirðu eitthvað í mataræðinu
þínu?
„já, ég hugsa pínu um það. ég reyni
að borða hollt.“
Hvað borðarðu í morgunmat?
„ég fæ mér seríós með ab mjólk yfir
áður en ég fer í skólann.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir
áður en þú ferð að sofa?
„ég les oftast bók fyrir svefninn.“
Handbolti sex sinnum í viku
Heilsuvenjur Orra Heiðarssonar – 15 ára
Orri HeiðarSSOn er 15 ára
nemandi í valhúsaskóla. Hann æfir
handbolta sex sinnum í viku og
hefur verið valinn í
unglingalandslið-
ið. „ég æfi með
val og spila
stöðu horna-
manns. Svo æfi
ég líka fótbolta
svona einu sinni í
viku. en handboltinn
er aðalíþróttin,“ segir Orri.
Passarðu vel upp á mataræðið?
já, ég fæ mér auðvitað bara það
sem er í matinn heima en síðan
fæ ég mér skyr og eitthvað svona
á milli æfinga. Það er alltaf hollur
matur heima hjá mér.“
Hvað borðarðu í morgunmat?
„jógúrt með múslí. Fæ mér alltaf
það sama.“
Hvað gerirðu til að slaka á?
„ég spila bara tölvuleiki eða les.“
Hefurðu sett þér einhver markmið
fyrir nýja árið?
„já, að samræma betur íþrótta-
iðkun og námið.“
Orri Heiðarsson borðar hollan mat milli íþróttaæfinga og slakar
á með því að spila tölvuleiki og lesa. Ljósmynd/Hari
ára
15
ára
20
Er eins og jójó þegar
kemur að hreyfingu
Heilsuvenjur Eddu Kristjánsdóttur – 20 ára
„ég æFði fótbolta þegar ég var
yngri en hætti því þegar ég var
fimmtán ára og fór að fara í rækt-
ina í staðinn.
Þegar maður
var yngri
hugsaði
maður
ekkert
um
hreyf-
ingu sem skyldu, meira
sem að það væri
gaman. nú er maður
kannski aðeins
markvissari með
æfingum,“ segir
hin tvítuga edda
Kristjánsdóttir.
edda er að læra
félagsráðgjöf við
Háskóla íslands
og að vinna hjá
styrktarfélag-
inu Ás í nPa
þjónustu.
Hversu miklum
tíma verðu í
heilsurækt?
„ég er svolítið
eins og jójó með
hreyfingu þar
sem ég tek oft
tímabil þar sem
ég hreyfi mig
mjög mikið og
svo rosalega lítið.
Upp á síðkastið hef
ég verið í dálítilli
lægð með heilsu-
rækt en annars reyni
ég að æfa um það bil 4 til 5
sinnum í viku.“
Hvers konar hreyfingu
stundar þú?
„Mismunandi, ég reyni að
mæta bæði í hóptíma í
ræktinni og lyfti sjálf.“
Borðarðu hvað sem
er eða hugsarðu
um það sem þú
lætur ofan í þig?
„ég reyni nú
að hugsa
um það
sem ég
læt ofan
í mig en
ekkert
alltaf.“
Hvernig er hefðbundinn morgun-
matur hjá þér?
„annað hvort hafragrautur eða ab
mjólk.“
Hvað gerir þú til að slaka á?
„til að slaka á horfi ég oftast á Fri-
ends eða hlusta á tónlist. Svo finnst
mér rosa þægilegt að kíkja í bók, ég
var mikill lestrarhestur þegar ég var
yngri.“
Lumar þú á einu heilsuráði sem
hefur gagnast þér vel í gegnum
tíðina?
„að njóta, það skiptir mestu máli.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir
áður en þú ferð að sofa?
„ætli það sé ekki að taka einn
netrúnt og skoða Snapchat.“
Færðu næga hreyfingu úr dag-
legum störfum þínum eða þarftu
að ætla þér tíma til að sinna
hreyfiþörfinni?
„ég þarf alveg að gefa mér tíma í
hreyfingu utan daglegra starfa þar
sem ég er í fullu námi og eyði þar af
leiðandi stórum hluta dagsins fyrir
framan bækur.“
Hefurðu sett þér einhver markmið
varðandi heilsuna á nýju ári?
„já, en þau voru ekkert mjög mark-
viss; einfaldlega að koma bæði
líkamlegri og andlegri heilsu í
betra jafnvægi.“
Edda Kristjánsdóttir horfir á
sjónvarpþættina Friends eða
hlustar á tónlist þegar hún vill
slaka á. Ljósmynd/Rut
Lilja Lív Margrétardóttir
fer á sjö íþróttaæfingar
í hverri viku. Uppáhalds
maturinn hennar er
lasagna. Ljósmynd/Hari
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA
897-2896 OG Á WWW.BAKLEIKFIMI.IS
Hefst 3. september
Fjörugir tímar undir leiðsögn sjúkraþjálfara.
Mánudaga kl. 17.45 og miðvikudaga kl. 18.15 í Grensáslaug
AQUA FITNESS
Hefst 11. janúar
BAKLEIKFIMI &
AQUA FITNESS
UNDIR LEIÐSÖGN SJÚKRAÞJÁLFARA
Í GRENSÁSLAUG, GRENSÁSVEGI 62.
Upplýsingar og skráning
á www.bakleikfimi.is
BAKLEIKFIMI &
SAMBALEIKFIMI
UNDIR LEIÐSÖGN SJÚKRAÞJÁLFARA
Í HEILSUBORG, FAXAFENI 14
Hefst 12. janúar
Þriðju- og fimmtudaga
kl. 12.05, 16.20 og 17.20
Upplýsingar og skráning á
www.bakleikfimi.is