Fréttatíminn - 08.01.2016, Page 70
fréttatíminn | Helgin 8. janúar-10. janúar 201610 |
Heilsa
Brakandi góð og vel
bökuð súrdeigsbrauð
að hætti Jóa Fel
Steinbökuð brauð með heilkorni.
Enginn viðbættur sykur!
TOSCANA,
súrdeigsbrauð með heilkorna hveiti
HOLTABRAUÐ,
gróft fimmkornabrauð með súrdeigi
SVEITABRAUÐ,
dökkt súrdeigsbrauð með heilkorni og rúgi
„Ég þarf ekki að fara í einhverja
stöð til að láta segja mér hvað ég á
að hlaupa. en ég stoppa aldrei allan
daginn, það vita
þeir sem þekkja
mig. Ég held
mér í fínu formi
við almennilega
vinnu í mínum
frítíma, smíðar
og göngu og fleira.
Svo er ég með göngubretti úti í skúr
þegar það er of mikill snjór úti,“
segir níels Árni lund.
níels, sem á árum sat á þingi og
hefur starfað sem ráðuneytisstjóri,
er um þessar mundir að jafna sig
eftir axlaraðgerð. „þetta er eitthvað
sem annar hver maður fer í. það
þarf að víkka göngin fyrir taugarnar
niður í öxlina. þeir fara bara með
Black & Decker þarna inn og bora
þetta.“
Borðarðu hvað sem er eða hugs-
arðu um það sem þú lætur ofan
í þig?
„Ég er alinn upp á venjulegum
íslenskum mat og ét hann enn
hiklaust. Með miklu af smjöri og
rjóma. Ég borða eiginlega allt sem
vellur út úr ísskápnum, hvort sem
það er á daginn eða á nóttunni.
en ég er ekkert í gosinu. þetta eru
Borða venjulegan
íslenskan mat
Heilsuvenjur Níelsar Árna Lund – 65 ára
ára
65
ára
70
„Ég Hef stundað sund töluvert og
útiveru í skógrækt. Ég er með land-
skika þar sem ég planta á hverju
ári og sú útivera
er gríðarlega
holl,“ segir
þórunn Svein-
björnsdóttir,
formaður
félags eldri
borgara.
Borðarðu hvað sem er eða hugs-
arðu um það sem þú lætur ofan
í þig?
„Ég borða gríðarlega hollan mat
og hugsa um hollustuna. Ég borða
gróf brauð, mikið af grænmeti og
ávöxtum. þetta er það sama og ég
hef alltaf borðað en hef þó aðeins
bætt í, sérstaklega með græn-
metið. Mataræðið er fjölbreyttara
en það var.“
Hvernig er hefðbundinn morgun-
matur hjá þér?
„Hafragrautur, eiginmaðurinn lagar
hafragraut með allskonar ljúfmeti
út í. Hann notar epli og allskonar
korn. Við setjum stundum bláber
í hann. þau tínum við á haustin til
að eiga á veturna. það er nóg til af
berjum á Íslandi. þetta er heilög
morgunstund hjá okkur.“
Hvað gerir þú til að slaka á?
„Ég les mikið. Ég er eiginlega alltaf
með góða bók á náttborðinu.
Síðan þykir mér rosa gott að
hafa góða tónlist. Ég hef nú
orðið svo fræg að nefna
það að við eldri borgarar
vildum gjarnan fá okkar
tónlistarhátíð, einskonar airwaves
gold. það er slökun að hlusta á
góða tónlist.“
Lumar þú á einu heilsuráði sem
hefur gagnast þér vel í gegnum
tíðina?
„jákvæðni, hún flytur fjöll. Og að
taka sjálfan sig ekki of alvarlega.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir
áður en þú ferð að sofa?
„að lesa. Ég er núna í kasti með
sakamálasögur en annars er ég
alæta á bækur.“
Hefurðu sett þér einhver mark-
mið varðandi heilsuna á nýju
ári?
„fyrst og fremst að reyna að
stunda útiveru af bestu
getu. Svo stendur félagið
hér fyrir aukinni hreyf-
ingu – við höfum verið
að predika það. aukin
hreyfing mun hjálpa
eldra fólki til bættar
heilsu og betra lífs.“
Heilög morgunstund yfir
hafragraut eiginmannsins
Heilsuvenjur Þórunnar Sveinbjörnsdóttur – 70 ára
Níels Árni er að jafna sig eftir axlaraðgerð en alla jafna er hann á ferð-
inni frá morgni til kvölds. Ljósmynd/Rut Sigurðardóttir
sömu siðirnir hjá mér og hafa alltaf
verið en eftir því sem maður eldist
þá borðar maður minna.“
Hvað gerir þú til að slaka á?
„Ég hef til dæmis óskaplega gaman
af því að vinna í garðinum mínum.
Við vinnum mikið saman, við
hjónin. Við spilum líka bridds, það
er nóg að gera. Ég skrifa líka mikið í
frítíma mínum, enda er ég kominn
niður í hálft starf. Ég var að ljúka
við þriggja binda verk um Melrakka-
sléttu, þúsund síður með 1.500
myndum. Ég er búinn að vinna við
þetta síðustu sex ár. þetta verður
einstakt rit um landsvæði sem er
farið í eyði. Svo á ég þrjú börn og
sjö barnabörn og það er yndislegt
að fá þau í heimsókn. Maður getur
ekki nógsamlega þakkað guði fyrir
hvað lífið er dásamlegt.“