Fréttatíminn - 08.01.2016, Qupperneq 78
18 | fréttatíminn | Helgin 8. janúar-10. janúar 2016
auglýsingardeild fréttatímans
S. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.isKynningar | Heilsa
Sólgæti býður Íslendingum
hágæða vörur þar sem gæði, hrein-
leiki og rekjanleiki vörunnar er í
hávegum hafður. „eins og áður er
yfirskrift Sólgætis, heilnæmt og
náttúrulegt, ljómandi gott fyrir
alla,“ segir Hafdís guðmundsdóttir,
vöruþróunarstjóri Heilsu ehf. sem
framleiðir Sólgæti.
„Við leitum eftir því að framleiða
vörur sem uppfylla þarfir neyt-
enda, bæði hvað varðar gæði og
verð. Þess vegna er það með mikilli
ánægju og eftirvæntingu sem við
kynnum nýjungar frá Sólgæti á nýju
ári.“
Meðal nýjunga má nefna; chia fræ,
sólþurrkuð mórber, lífrænt kakóduft
úr 100% hreinum kakóbaunum,
kókossykur og kókosolíu. „allt eru
þetta vörur sem stuðla að heilbrigðu
líferni,“ segir Hafdís.
Chia fræin frá Sólgæti eru lífræn
og stútfull af vítamínum. Þar má
nefna omega 3 og 6, trefjar og pró-
tein. Chia fræ eru frábær viðbót
út í boostið, brauðbaksturinn eða
í hafragrautinn. trefjarnar í chia
fræunum hjálpa til við að lækka
sykurstuðulinn og að halda blóð-
sykrinum innan eðlilegra marka
ásamt því að halda meltingunni
heilbrigðri og ristlinum góðum. eins
og margir vita eru chia fræ alger
ofurfæða og til að hámarka nýtingu
og auðvelda upptöku næringar úr
fræjunum er mikilvægt að láta þau
liggja í vatni áður en þau eru notuð.
Sólþurrkuð mórber hafa verið að
slá í gegn í evrópu, meðal annars
vegna þess hversu dásamlega bragð-
góð þau eru og ekki er verra hversu
holl þau eru líka, full af C-vítamíni,
járni og trefjum. Hægt er að nota
mórber í alla matargerð, þar er
endalaust hægt að prófa sig áfram.
Við mælum líka með að nota þau
sem hollustu snakk með hnetum.
Kókossykur er kærkomin viðbót í
Sólgætis fjölskylduna. rannsóknir
hafa sýnt að kókossykur er með
frekar lágan sykurstuðul sem gerir
hann mjög ákjósanlegan í bakstur-
inn eða matargerðina í staðinn fyrir
brúnan eða hvítan sykur. Kókossyk-
ur er með svipaða áferð og hrásykur
en örlítið bragðmeiri með smávegis
karamellubragði.
Kakóið frá Sólgæti er lífrænt og
framleitt úr 100% kakóbaunum þar
sem engu er bætt við. Kakóbaunir
eru hið fullkomna andoxunarefni og
topp súperfæða. Það er selt í endur-
lokanlegum umbúðum eins og allar
nýju vörurnar frá Sólgæti.
Síðast en ekki síst ber að nefna líf-
rænu kaldpressuðu jómfrúar kókos-
olíuna sem fæst í tveimur stærðum,
400 ml og 200 ml krukkum. Sól-
gætis kókosolían er algerlega hrein
og án nokkurra aukaefna, er frábær
til notkunar í hvers kyns matreiðslu
og að auki góð fyrir húðina og í
hárið. Hafdís mælir með
að fá sér eina teskeið af
kókosolíu út í te eða
kaffi, en það sefar
hungrið og sykur-
þörfina. jafnvel er
talið að þeir sem
neyta að minnsta
kosti matskeiðar
á dag af kókosolíu
brenni fleiri hita-
einingum, sem er
ekki verra.
nýju vörurnar frá Sól-
gæti fást nú í Heilsuhúsinu
og í Krónunni.
„Margar aðrar spennandi
vörur eiga eftir að líta dagsins
ljós hjá Sólgæti á nýju ári,“
segir Hafdís.
100% HOLLUSTA
PURE safarnir frá Harboe eru 100% hreinir
nýkreistir og ósíaðir safar. Þrátt fyrir að vera
100% hreinir eru safarnir líka án rotvarnarefna.
Byrjaðu daginn með heilnæmum safa frá PURE.
Heilsusamlegar nýjungar frá Sólgæti
fyrir grænkera, sælkera og alla hina líka
Unnið í samstarfi
við Heilsu ehf.
Í göMlu bakhúsi við Skólavörðu-
stíginn leynist blómstrandi starf-
semi þar sem dansinn hefur dunað
í meira en 30 ár. Kramhúsið leynir
á sér. lítið fer fyrir því, það felur sig
bak við hærri hús og andinn er eins
og að koma í annan heim. Húsið var
smíðaskemma en fékk nýtt hlutverk
árið 1984 og síðan hefur dansinn
dunað og ýmsir listasprotar náð fót-
festu eftir aðhlynningu í þessu skap-
andi gróðurhúsi fjölbreytileikans.
nú þegar eru afrískir tónar farnir
að streyma frá Kramhúsinu en fyrsti
gestakennari ársins er mættur og
afró Workshop hitar upp vetrarríkið.
aðal afró kennarar Kramhússins taka
svo við þegar þeir koma frá gíneu
þar sem þeir sækja reglulega jarð-
tengingu og nýja tóna. Kennarar
Kramhússins koma víða að og tíðar
heimsóknir erlendra gestakennara
auka enn á gæðin og skilja eftir
hugmyndir og fólk sem bætast í
gróskumikinn pott kennara hússins.
ein þeirra er anais, danskennari
frá Frakklandi, sem mun nú bjóða
pörum að læra Kizomba. Þessi
blandaði dans hefur verið kallaður
african tangó og nýtur mikilla vin-
sælda í evrópu. einnig geta pör lært
argentínskan tangó frá grunni og
allir geta dansað Milongu á föstu-
dagskvöldum í Kramhúsinu. Í febrúar
bætist aftur í kennararflóruna þegar
alejandra frá Spáni kemur með
Flamenco tíma, en hún hefur sér-
hæft sig í hefðbundnum sporum og
sígaunatakti. Frá Belgíu kemur núna
í fyrsta sinn Contemporary kennari
að nafni Kim. Hugsanlega bætast
enn fleiri í hópinn fyrir vorið.
Eitthvað fyrir alla
Það finna allir eitthvað við sitt
hæfi í Kramhúsinu, hvort sem
leitað er að einfaldri líkamsrækt
eða skemmtilegri mann- og geð-
rækt. Magadans, leikfimi, yoga
eða Pilates henta einnig vel fyrir
bakið. Bollywood, Burlesque eða
Beyoncé dansar eru gleðibombur og
sérlega vinsælt fyrir gæsagigg eða
vinkonuhristing. Diskó, abba, tina
turner og ýmiss konar hristingur eru
einnig sívinsæl gigg þemu enda er
nánast ekkert sem Kramhúsfólki er
ómögulegt að gera þegar kemur að
dansgleði og orkugefandi sköpun.
afró, jane Fonda og Zumbafitness
koma fólki heldur betur á hreyfingu
og Contemporary dansinn heldur
öllum í formi. gríðarleg fjölbreytni
er í barna- og unglingastarfi Kram-
hússins og mikill áhugi á dansi
og skapandi hreyfingu hjá yngstu
kynslóðinni enda þarf að hlúa vel
að unga fólkinu og gleðja í dansins
amstri.
aldursdreifing Kramverja ber vitni
um víddina í starfinu en yngstu
nemendur er á þriðja aldursári og
þeir elstu á níræðisaldri. Kramhúsið
er svo sannarlega fyrir alla!
nánari upplýsingar um Kramhús-
starfið má sjá á vefnum kramhusid.
is og á Facebook síðu Kramhússins.
Skapandi hreyfing í þrjátíu ár
Unnið í samstarfi
við Kramhúsið
Unnið í samstarfi við MS.