Fréttatíminn - 15.01.2016, Page 72
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Hrósið ...
...fær Hermann Ragnars-
son múrari fyrir að undir-
búa heimkomu albönsku
fjölskyldnanna og vekja at-
hygli á aðstæðum þeirra.
Margir hafa velt því
fyrir hvort Jón
Gnarr hyggi á
forsetaframboð á
vordögum en hann
hefur reglulega gefið
þeim sögusögnum undir fótinn.
Ekki virðist mikið fararsnið á Jóni í
starfi hans sem framkvæmdastjóri
dagskrársviðs 365 því nú berast
fregnir af því að hann undirbúi
fjórðu Vaktar-seríuna síðar á
árinu. Mun hún kallast Öryggis-
vaktin og skarta sömu söguhetjum
og fyrr í þessum vinsælu þáttum
og bíómynd. Jón verður því sjálfur
í aðalhlutverki á eigin stöð en til
að rýma fyrir Öryggisvaktinni
hefur gerð fjórðu þáttaraðar
Pressu verið sett á ís...
Íslenska Twitter-
samfélagið hefur
látið í sér heyra
í vikunni vegna
herferðar WOW Air,
#wowincali. Í Twit-
terheimum vill fólk forðast slíka
leiki sem gjarnan tröllríða öllu á
Facebook. Meðal þeirra sem hafa
úthrópað herferðina eru Katrín
Atladóttir og Dagur Hjartar-
son skáld. Einn þeirra sem tók
þátt í leiknum var popparinn
Unnsteinn Manuel sem sagðist
gjarnan vilja fara með strákunum í
Sturla Atlas til Kaliforníu...
Mikið áhorf hefur
verið á sjónvarps-
þættina Ófærð
á sunnudags-
kvöldum á RÚV.
Þættirnir eru sem
kunnugt er úr smiðju
Baltasars Kormáks og þykja bera
handbragð hans – þó fleiri sjái
reyndar um leikstjórn en hann.
Að minnsta kosti segja kunnugir
í kvikmyndabransanum að tökur
af bruna frystihússins minni
óneitanlega á frystihúsbrunann
í kvikmynd Baltasars, Hafinu frá
2002, og jafnvel sé um sömu tökur
að ræða...
Síminn undirbýr
útsendingar frá
EM í knattspyrnu í
sumar og hermt er
að mikið verði lagt
í umgjörð útsending-
anna. Því er nú róið að því öllum
árum að Guðmundur Benedikts-
son verði aðalmaðurinn í umfjöll-
un um leikina og verði staðsettur
í Frakklandi. Guðmundur lýsir
sem kunnugt er enska boltanum
á miðlum 365 og mun hugmyndin
sú að hann verði leigður yfir til
Símans. Þykir sú ráðstöfun til
marks um sífellt meira samstarf á
milli risanna tveggja...
KidWits.net
Sunneva 4 ára.
Er það
hérna sem
allir eru
krossfestir?‛‛
‛‛