Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2016, Blaðsíða 47

Læknablaðið - 01.07.2016, Blaðsíða 47
LÆKNAblaðið 2016/102 363 Nokkrar breytingar hafa orðið á regl um um útgáfu heilbrigð- isvottorða til farmanna á farþega- og kaupskipum og snýr breytingin að kröfum til lækna sem gefa út slík vottorð. Þurfa þeir frá og með 1. janúar næstkomandi að sækja um sérstaka viðurkenningu Samgöngustofu sem hefur umsjón með leyfis- veitingum. Í tilkynningu frá Samgöngustofu segir að læknar þurfi hér eftir að sækja um viðurkenningu til að gefa út heilbrigðisvottorð fyrir far- menn og kemur þetta til framkvæmda þann 1. janúar 2017. Hér á landi eru gefin út alþjóðleg skipstjórnar- og vélstjórnar- skírteini á grundvelli STCW-alþjóðasamþykktarinnar. Samþykktin snýr að menntun, þjálfun, skírteinum og vaktstöðum sjómanna. Ísland hefur verið aðili að samþykktinni frá árinu 1995. Í sam- þykktinni er kveðið á um samræmdar kröfur um hæfni skipstjóra, annarra yfirmanna og sjómanna sem gegna tilteknum stöðum um borð í kaupskipum. STCW-samþykktin tók allnokkrum breyting- um árið 2010 með hinum svokölluðu Manila-breytingum. Með tilskipun Evrópusambandsins nr. 2008/106/EB er efni STCW-sam- þykktarinnar ásamt Manila-breytingunum tekið upp í sambands- rétt. Ísland er bundið af tilskipuninni á grundvelli EES-samnings- ins. Breyting á heilbrigðiskröfum farmanna Meðal þeirra krafna sem gerðar eru til þess að fá útgefið alþjóð- legt skírteini eru að farmaður uppfylli tilteknar heilbrigðiskröfur. Sérhver farmaður, sem er handhafi réttindaskírteinis eða hæfnis- skírteinis og sem starfar á sjó skal vera handhafi gilds heilbrigðis- vottorðs. Í því skyni hefur farmaður þurft að skila læknisvottorði ásamt umsókn um STCW-skírteini. Með Manila-breytingunum á samþykktinni urðu þær breytingar að slík læknisvottorð skyldu stafa frá læknum sem hlotið hefðu sérstaka viðurkenningu til að gefa út heilbrigðisvottorð farmanna. Þá skal gildistími heilbrigðis- vottorðs vera að hámarki tvö ár. Krafan um að læknar séu viðurkenndir kemur til framkvæmda 1. janúar 2017 og annast Samgöngustofa viðurkenningu lækna. Við undirbúning hinnar nýju framkvæmdar hefur Samgöngu- stofa horft til ákvæða STCW-samþykktarinnar og leiðbeininga sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur gefið út í samráði við Alþjóðasiglingaröryggisstofnunarina (IMO) um viðurkennda lækna. Samgöngustofa hefur haft til hliðsjónar þá staðreynd að menntunarstig íslenskra lækna er tiltölulega hátt. Þannig hefur Samgöngustofa það að markmiði að gera læknum tiltölulega auð- velt að öðlast viðurkenningu. Ekki er gert ráð fyrir því að læknar sæki sérstakt námskeið. Hins vegar skulu læknar kynna sér og starfa samkvæmt reglum og viðmiðum sem um læknisskoðun sjófarenda gilda. Gerð er krafa um að umsækjandi um viðurkenningu Sam- göngustofu sé handhafi almenns lækningaleyfis samkvæmt lögum um heilbrigðisstarfsmenn og reglugerðum settum á grunni þeirra. Umsækjandi skal kynna sér og skuldbinda sig til að starfa í samræmi við þau lög og reglur sem gilda um áhafnir skipa og um heilbrigðiskröfur sjómanna. Hann skal jafnframt hafa kynnt sér leiðbeiningarefni Samgöngustofu um læknisskoðun sjófarenda. Útgáfa læknisvottorða skal lúta sömu skilyrðum og útgáfa annarra skírteina samkvæmt ákvæðum STCW-samþykktarinnar, þar með talið skal útgáfan lúta ákvæðum gæðakerfis Samgöngu- stofu. Í leiðbeiningarefni Samgöngustofu um störf viðurkenndra lækna er farið nánar yfir stjórnsýslu tengda viðurkenningu lækna og þeim reglum sem viðurkenndum læknum ber að starfa eftir. Er þar vísað í lög, reglur og alþjóðlegar leiðbeiningar eftir því sem við á. Heilbrigðisvottorð farmanna Læknar þurfa viðurkenningu til að gefa út vottorðin ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson - Aktivitet og deltakelse Valnesfjord Helsesportssenter i Norge er en landsdekkende institusjon innen spesialisthelsetjenesten med lang erfaring og solid kompetanse på fagområdene habilitering, rehabilitering og arbeidsrettet rehabilitering. Vi tilbyr individuelt tilpasset rehabilitering i grupper og vårt hovedvirkemiddel er tilpasset fysisk aktivitet. Overlege i fysikalsk medisin og rehabilitering Fast stilling som overlege i fysikalsk medisin og rehabilitering er ledig med ønske om snarlig tiltredelse. For godt kvalifiserte søkere kan tilsetting som avdelings- overlege vurderes. Nærmere opplysninger fås ved henvendelse til rehabiliteringssjef Elisabeth Johannessen på mob. + 47 913 13 570 eller medisinskfaglig rådgiver/overlege Odd Almendingen på mob. + 47 482 38 543. Søknadsfrist: 7. august 2016 Fullstendig utlysningstekst på www.vhss.no U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.