Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2016, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 01.07.2016, Blaðsíða 7
LÆKNAblaðið 2016/102 323 R I T S T J Ó R N A R G R E I Nhttp://dx.doi.org/10.17992/lbl.2016.0708.88 Árið 1977, þegar SÁÁ var stofnað, var ung- lingadrykkja vel þekkt vandamál á Íslandi og unglingar á aldrinum 15-19 ára byrjuðu snemma að koma þar til meðferðar. Á 9. áratugnum fjölgaði unglingum í meðferð jafnt og þétt og kannabisneysla varð al- gengari meðal þeirra. Á árunum 1995-2000 jukust innritanir áfengis- og vímuefnasjúk- linga á aldrinum 15-19 ára á Vog skyndilega úr rúmlega 100 á ári í rúmlega 300 árlega á þessum aldri. Nýgengi ungu sjúklinganna varð mest árið 2002 og fór þá í rúmlega 800 á hverja 100.000 íbúa á aldrinum 15-19 ára. Síðan hefur dregið stöðugt úr nýgengi inn- lagna þeirra sem eru yngri en 20 ára og árið 2015 var það komið niður í tæp 300 á sama mælikvarða. Sjúklingahópurinn sem kemur til afeitr- unar hjá SÁÁ breytist ár frá ári. Á upphafs- árunum settu túradrykkjumenn mestan svip á hópinn og hlutur kvenna fór hratt vaxandi, hlutfall þeirra fór úr 20% í rúm 30%. Um 1980 urðu kannabissjúklingarn- ir á aldrinum 20-30 ára meira áberandi í hópnum. Stóra breytingin kom svo 1983 þegar ungu kannabissjúklingarnir fóru að nota ólöglegt amfetamín í vaxandi mæli og sjúklingar sem notuðu vímuefni í æð sáust í fyrsta skipti í Reykjavík. Upp úr 1995 fór neysla vímuefna hratt vaxandi á Íslandi og hélst mikil fram yfir aldamót. Kókaín kom til Reykjavíkur 1999 og vímuefnasjúklingar sem sprautað höfðu amfetamíni í æð sóttu í vaxandi mæli í morfín sem þeir leystu upp úr forðatöflum ætluðum verkjasjúklingum. Ástandið fór hratt versnandi en átakanlegast var þó að áður óþekktur fjöldi ungmenna 19 ára og yngri rataði í vímuefnavanda. Unglingar höfðu alla tíð verið hluti af sjúklingahópn- um hjá SÁÁ en svo brá við rétt fyrir síðustu aldamót að fjöldi ungu einstaklinganna sem lagðist inn á Sjúkrahúsið Vog ríflega tvöfaldaðist árlega. Innritanirnar hjá þess- um aldurshópi fóru vel yfir 300 á hverju ári og fjöldinn fór úr tæplega 100 í rúmlega 200 árlega. Ljóst var að í óefni stefndi. SÁÁ brást við þessum vanda með því að byggja við Sjúkrahúsið Vog 11 rúma deild fyrir unglinga sem voru 19 ára og yngri og stórauka göngudeildarþjónustu. Unglinga- meðferðin var endurskipulögð og boðið upp á göngudeildarþjónustu fyrir ungling- ana og foreldra þeirra, bæði fyrir og eftir Vogsdvölina. Síðan hafa unglingar ekki þurft að bíða eftir leguplássi á Vogi. Á síðustu 20 árum hefur umfang þjón- ustunnar fyrir unglinga verið mikið. Á ár- unum 1996-2015 leituðu 2853 einstaklingar (kvenhlutfall 37,7%) sem voru 19 ára eða yngri sér meðferðar í fyrsta sinn. Á sama árabili voru innritanir fyrir sama aldurs- hóp 6340. Það vímuefni sem gerir ungling- ana helst félagslega óvirka er kannabis en þeim stafaði einnig hætta af amfetamíni, e-pillu, morfíni og vímuefnaneyslu í æð. Árangur í slíkri meðferð næst fyrst og fremst með mikilli vinnu, þrautseigju, fjár- magni og góðum húsakosti. Skyndilausnir eru ekki til þó þeim sé oft lofað. Meðferðin á Vogi bjargar mannslíf- um því að í ljós hefur komið að þrátt fyr- ir ýmiskonar meðferðarinngrip er þessi ungi sjúklingahópur í mun meiri hættu á að deyja ótímabært en jafnaldrar þeirra. Á árunum 2001-2005 var áhættan 11 sinnum meiri (relative risk 11,4) en 7 sinnum meiri á árabilinu 2005-2010 fyrir þá sem voru 15-19 ára. Sjúkrahúsið Vogur býður þessum hópi upp á flýti- og skyndiinnlagnir þar sem markmiðið er að koma jafnvægi á hættu- ástand vegna neyslunnar og í framhaldi að aðstoða foreldra og forráðamenn unglings- ins við að skapa félagslega umgjörð og að- hald sem dregur úr alvarleika ástandsins. Áhugahvöt unglinga til að breyta vímuefnaneyslunni er oft lítil framan af. Markmiðið er þá að fleyta hópnum í gegnum slysa- og sýkingahættur þar til samstarfsvilji skapast til markvissrar með- ferðar. 678 úr þessum hóp hafa sprautað vímuefnum í æð og 475 byrjuðu á því fyr- ir tvítugt. 237 hafa fengið lifrarbólgu C og þar af 92 fyrir tvítugt. Í byrjun árs 2016 var ljóst að 168 þessara einstaklinga þurfa lyfja- meðferð og 49 hafa þegar hafið slíka með- ferð hjá SÁÁ og Landspítala þegar þetta er skrifað. Meðferðin á Sjúkrahúsinu Vogi er oft upphaf að auknum lífsgæðum og var- anlegu bindindi. Þegar sjúklingar undir tvítugu koma til meðferðar í fyrsta sinn er ekki hægt að vænta þess að nauðsynlegur samstarfsvilji skapist eins oft strax og hjá þeim fullorðnu. Margir hinna ungu eru líka hálfþvingaðir til meðferðar í fyrstu innlögn. Þrátt fyrir þetta næst oft góður árangur í fyrstu meðferð og margur ung- lingurinn kemur fljótt til endurinnlagnar með breytt hugarfar. 1487 einstaklingar af umræddum 2853 unglingum, eða 52%, hafa einungis komið á Vog einu sinni og 83% hafa verið þar þrisvar sinnum eða sjaldnar frá 1996-2015. Ekkert heilbrigðisvandamál er jafn al- gengt og hættulegt fyrir unglinga og notk- un vímuefna. Það er því fagnaðarefni að áfengis- og vímuefnavarnir Íslendinga hafi skilað svo góðum árangri að innlögnum vegna áfengis- og vímuefnasjúkdómsins hjá 15-19 ára ungmennum hafi fækkað um rúmlega helming frá árinu 2002. Admissions of adolescents at Vogur have fallen by over 50% since 2002 Þórarinn Tyrfingsson MD Head Physician at Vogur thorarinn@saa.is Innlagnir unglinga á Vog helmingi færri nú en árið 2002 Þórarinn Tyrfingsson forstjóri á Sjúkrahúsinu Vogi H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - A c ta v is 5 1 8 0 0 2 Virkt innihaldsefni: Hver freyðitaa inniheldur 400 mg af dísúlfíram. Ábendingar: Áfengissýki. Skammtar og lyagjöf: Fullorðnir: Byrjunarskammtur 800 mg daglega í 2–3 daga. Viðhaldsskammtur: 100–200 mg daglega eða 600–800 mg tvisvar í viku. Frábendingar: Ómeðhöndlaðir hjartasjúkdómar, háþrýstingur, staðfest geðrof, alvarlegar vefrænar heilaskemmdir, alvarlegar persónuleikatruanir, áfengisneysla, ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyaskrá – www.serlyaskra.is. Pakkningar og hámarksverð í smásölu (ágúst 2015): 400 mg, 50 stk: 10.538 kr. Afgreiðsluflokkur: R. Greiðsluþátttaka: G. Markaðsleyfishafi: Actavis Group hf. Frekari upplýsingar: www.actavis.is, s: 550 3300. Dagsetning síðustu samantektar um eiginleika lyfsins: 14. febrúar 2012. Ágúst 2015. – 400 mg freyðitöurAntabus Við áfengissýki

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.