Læknablaðið - 01.07.2016, Blaðsíða 36
352 LÆKNAblaðið 2016/102
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Dagana 26.-28. maí tóku um 40 sér-
fræðingar í heimilislækningum þátt í
námskeiði á Siglufirði fyrir lærimeist-
ara, mentora, í sérgreininni, því fyrsta
sem haldið er eftir að ný reglugerð um
sérnám í læknisfræði og kandídatanám
tók gildi fyrir rúmu ári. Margir þeirra
sem tóku þátt í námskeiðinu hafa setið
slík námskeið áður svo segja má að
þarna hafi lærimeistararnir verið að
auka við kunnáttu sína.
„Marklýsing fyrir sérnám í heimilislækn-
ingum hefur verið til staðar um árabil, sú
fyrsta reyndar í nokkurri sérgrein læknis-
fræði sem kennd er á Íslandi,“ segir Valþór
Stefánsson yfirlæknir fyrir Heilbrigðis-
stofnun Norðurlands í Fjallabyggð (Siglu-
fjörður og Ólafsfjörður). „Á sínum tíma
var unnin gríðarlega góð og mikil vinna
við marklýsinguna og við njótum þess nú
eftir að ný reglugerð um sérnám í lækn-
isfræði tók gildi fyrir rúmu ári en þurfum
að uppfæra marklýsinguna með tilliti til
nýju reglugerðarinnar. Við höfum haldið
reglulega námskeið fyrir lærimeistara,
mentora, en þetta var hið fyrsta eftir að
nýja reglugerðin tók gildi. Í reglugerðinni
er kveðið á um að sérstök mats- og hæfis-
nefnd skuli meta hvort sérnám tiltekinnar
greinar læknisfræðinnar stenst kröfur og
formaður nefndarinnar, Reynir Tómas
Geirsson, kom og kynnti starf nefndarinn-
ar og kynnti sér kennsluaðferðir okkar.“
Aðspurður um ástæðu þess að nám-
skeiðið var haldið á Siglufirði segir Valþór
að staðurinn sé í dag uppspretta mikillar
framkvæmdaorku og nýsköpunar á mörg-
um sviðum og því hafi þótt tilvalið að
velja námskeiðinu þessa umgjörð eins og
einnig átti við árið 2014 þegar síðasta nám-
skeið þar á undan var haldið á Siglufirði.
Mentoranámskeið á Siglufirði
Lærimeistarar læra meira
Þátttakendur
slaka á eftir
langan dag.
Hópurinn allur fyrir utan nýja hótelið á Sigló. Myndirnar tók Sigurður Ægisson.