Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2016, Blaðsíða 50

Læknablaðið - 01.07.2016, Blaðsíða 50
366 LÆKNAblaðið 2016/102 Samkomuna heiðruðu nokkrir af helstu frammámönnum læknastéttarinnar. Nýútskrifaðir læknakandídatar ársins 2016 heimsóttu Læknafélag Íslands og undirrituðu læknaeiðinn að hefð- bundnum hætti ásamt því að vera boðin velkomin í LÍ af formanninum, Þorbirni Jónssyni. Í ávarpi sínu sagði Þorbjörn meðal annars að læknis- starfið væri afar samfélagslega mik- ilvægt og það hefði notið ákveðinnar virðingar í samfélaginu. „Það er þakklátt þegar allt gengur að óskum en umfram allt er það skemmtilegt og gefandi.“ Þorbjörn sagði ennfremur að hann legði sérstaka áherslu á að læknar temdu sér samviskusemi, vandvirkni og heiðarleika og að læknar legðu sig eftir því að hlusta bæði á sjúklinga og samstarfsmenn. „Ef við fylgjum þess- um einföldu reglum held ég að menn hafi góðan grundvöll til þess að farn- ast vel í starfi um langa framtíð.“ Magnús Karl Magnússon forseti læknadeildar HÍ lagði áherslu á gæði læknanámsins í ávarpi sínu og kvaðst stoltur af því hversu vel námið stæð- ist samanburð við læknanám í þeim erlendum skólum sem þættu hvað bestir. Magnús sagði gæði íslenskrar læknismenntunar ekki síst fólgna í því að íslenskir læknar sæktu sér- fræðimenntun sína til bestu háskóla- sjúkrahúsa, bæði austur um haf og vestur, og hvatti hina nýútskrifuðu kandídata til að feta í þau spor. Fleiri góðir gestir úr hópi eldri og virðulegri lækna ávörpuðu hina ungu lækna og óskuðu þeim velfarnaðar á þessum tímamótum. Kandídatar 2016 klárir í slaginn Undirritun læknaeiðsins hefur verið ómissandi hluti af heimsókn nýútskrifaðra kandídata um áratugaskeið. U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.