Læknablaðið - 01.07.2016, Blaðsíða 10
326 LÆKNAblaðið 2016/102
Inngangur
Blóðflokkar byggja á mismunandi samsetningu mótefn-
isvaka á rauðum blóðkornum. Nú eru þekktir um 300
mismunandi blóðflokkamótefnisvakar sem tilheyra
30 blóðflokkakerfum en af þeim eru ABO- og Rhesus-
kerfin best þekkt og mikilvægust varðandi blóðgjöf.1
ABO-blóðflokkakerfið samanstendur af tveimur ríkj-
andi mótefnisvökum (A og B) sem tvö ósamgena sykru-
ensím mynda, en óvirk ensím einkenna blóðflokk O.
Almennt eru anti-A og/eða anti-B mótefni í sermi til
staðar gegn framandi A og/eða B mótefnisvaka frá
þriggja til 6 mánaða aldurs.2 Meginhluti anti-A og anti-
-B eru IgM-mótefni en ABO-blóðflokkamisræmi veld-
ur aðeins vandamálum hjá fóstri ef móðir hefur háan
styrk IgG anti-A og/eða anti-B mótefna og eru það helst
mæður í O-blóðflokki.3 Ólíkt ABO eru mótefnisvakar
flestra annarra blóðflokkakerfa fjölpeptíð en ekki sykr-
ur, til dæmis Rhesus, Kell, Kidd og fleiri. Mótefni gegn
fjölpeptíðamótefnisvökum eru ekki til staðar frá nátt-
úrunnar hendi en myndast nær eingöngu eftir næm-
ingu, til dæmis við blóðgjöf eða á meðgöngu.4
Fóstur- og nýburablóðrof (Hemolytic disease of the
fetus and newborn, FNB) stafar af eyðingu rauðkorna
fósturs/nýbura vegna mótefna frá móður með tilheyr-
andi blóðleysi og/eða hækkun bilirúbíns hjá fóstri/
barni. Alvarlegustu afleiðingar FNB eru fósturbjúgur á
Inngangur: Fóstur- og nýburablóðrof stafar af eyðingu fósturrauðkorna
vegna rauðkornamótefna móður. Rofið getur leitt til blóðleysis og fóstur-
bjúgs á fósturskeiði og gulu hjá nýburum. Prófið Direct Antiglobulin Test
(DAT) greinir mótefni bundin við rauðkorn og er hluti af greiningarferli
rofsins. Á Íslandi er DAT gert á naflastrengs-/blóðsýnum nýbura ef móðir
er RhD-neikvæð eða hefur rauðkornamótefni önnur en anti-A/-B. Markmið
rannsóknarinnar var að rannsaka orsakir og afleiðingar jákvæðs DAT hjá
nýburum á Íslandi á 8 ára tímabili.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknarhópurinn var nýburar með jákvætt DAT
á árunum 2005-2012. Úr tölvukerfi Blóðbankans voru sóttar upplýsingar
um blóðflokk móður og barns, blóðgjafir og DAT. Úr mæðraskrá fengust
upplýsingar um fæðingarþyngd, meðgöngulengd og ljósameðferð. Úr
rafrænu sjúkraskrárkerfi Landspítala fengust upplýsingar um meðferð og
afdrif nýbura.
Niðurstöður: Á árunum 2005-2012 greindust 383 nýburar með jákvætt
DAT á Landspítala. Í 73,6% tilvika var orsökin ABO-blóðflokkamisræmi á
milli móður og barns, hjá 20,4% voru rauðkornamótefni móður önnur en
anti A/-B, hjá 3,9% hvort tveggja, en hjá 2,1% var orsök óljós. Alls fengu
179 (47,6%) börn meðferð vegna jákvæðs DAT með nýburagulu, þar af 167
(93,3%) ljósameðferð eingöngu. Átta nýburar þurftu blóðskiptameðferð,
þar af 5 vegna Rhesus-mótefna en þrjú vegna ABO-blóðflokkamisræmis.
Ályktun: Jákvætt DAT hjá nýburum á Íslandi árin 2005-2012 stafaði í flest-
um tilvikum af ABO-blóðflokkamisræmi á milli móður og barns. Tæplega
helmingur barnanna þurfti meðhöndlun en oftast nægði ljósameðferð. Í
alvarlegustu tilfellum ABO-blóðflokkamisræmis eða rauðkornamótefna
annarra en anti-A/-B var þörf á blóðgjöf eða blóðskiptameðferð.
ÁGRIP
meðgöngu (hydrops fetalis) og kjarnagula (kernicterus) hjá
nýbura.5 Um miðja síðustu öld var FNB algengur sjúk-
dómur og fyrir árið 1945 létust 50% allra fóstra sem voru
með sjúkdóminn.6 Eftir að orsök sjúkdómsins varð ljós
urðu miklar framfarir í meðferð og mæðravernd7 og nú
eru alvarlegir fylgikvillar og dauðsföll af völdum FNB
og kjarnagulu sjaldséð á Íslandi.
Lengst af voru mótefni gegn Rhesus D (RhD) mótefn-
isvaka á rauðkornum fósturs algengasta orsök FNB, en
með tilkomu fyrirbyggjandi meðferðar gegn myndun
anti-D ónæmisglóbúlíns er ABO-blóðflokkamisræmi nú
algengasta orsökin á Vesturlöndum.6,8 Mótefnaskimun
í meðgöngu og fyrirbyggjandi meðferð með Rhesus D
ónæmisglóbúlíni (RhIg) var innleidd á Íslandi árið 1969
(Rhesus varnir)9 og beinist að RhD-neikvæðum konum
eftir fæðingu RhD-jákvæðs barns og ef hætta er á að
blóðblöndun hafi orðið milli móður og fósturs í með-
göngu, til dæmis eftir fósturlát, legvatnsástungu eða
áverka. Víða í nágrannalöndum okkar fá allar RhD-nei-
kvæðar mæður auk þess RhIg á síðasta þriðjungi með-
göngu í fyrirbyggjandi skyni.10
Skimunarprófið Direct antiglobulin test (DAT, einnig
kallað Coombs-próf) greinir mótefni bundin við rauð
blóðkorn.11 Notkun þess var fyrst lýst af Coombs og
félögum árið 1946.12 Á Íslandi er DAT gert á nafla-
Greinin barst
23. október 2015,
samþykkt til birtingar
13. maí 2016.
Höfundar hafa
útfyllt eyðublað um
hagsmunatengsl.
Mótefni bundin við rauðkorn nýbura;
orsakir og klínískar afleiðingar
Tilfelli greind í Blóðbankanum 2005-2012
Þórdís Kristinsdóttir1 læknanemi, Sveinn Kjartansson2 læknir, Hildur Harðardóttir1,3 læknir, Þorbjörn Jónsson4 læknir,
Anna Margrét Halldórsdóttir4 læknir
1Læknadeild Háskóla
Íslands, 2barnadeild,
3kvennadeild, 4Blóðbanka
Landspítala.
Fyrirspurnir:
Anna Margrét
Halldórsdóttir,
annamha@landspitali.is
http://dx.doi.org/10.17992/lbl.2016.0708.90R A N N S Ó K N